Reykjanes - 01.11.1959, Blaðsíða 7

Reykjanes - 01.11.1959, Blaðsíða 7
Nóvember 1959 REYKJANES 7 TILKYNNING frá bæjarfógetanum í Keflavík Síðasti gjalddagi útsvara til Sveitarsjóðs Njarðvíkur var 1. nóv. s. 1. Þeir, sem eigi hafa gert skil enn, eru minnt- ir á að gera það nú þegar, svo að komizt verði hjá frekari innheimtuaðgerðum. Atvinnurekendur og aðrir kaupgreiðendur eru hér með áminntir um, að þeim ber að halda útsvarsgreiðslum eftir af kaupi starfs- manna sinna, og standa skil á þeim til Sveitar- sjórans i Njarðvík innan sex daga frá þvi, er kaupið er greitt af hendi, að viðlagðri eigin ábyrgð á útsvarsgreiðslunum. Bœjarfógeti Keflavíkur. Sími 517 Aðalsendibílastöðin Keflvíkingar - Suðurnesjamenn ENSÍN BEIVSÍN BENSÍN Látið Aðalstöðvarstúlkurnar fylla á geyminn og njótið þjónustunnar Aðalstöðin h.f. Sími 515 f Reykjavík er stöðugt verið að rífast um ráðhúsið — ekki það, að nauðsynlegt sé að byggja ráðhús —- um það eru allir sammála —, en það sem ósamlyndinu veldur er, hvar ráðhúsið á að vera. Reykjavik er orðin það þröng, að hvar sem ráðhúsið verður endanlega sett, verður því þrengt niður, og það kemur sjálfsagt til með að bera svipmót þess um alla framtíð. Ef til vill er ráðhús óheppi- legt orð — það gefur aðra hug- mynd um notagildi þeirrar byggingar en raunverulegt er. Ráðhús er að verulegu leyti tæta vaxandi starfsemi bæjar- ins út um allt, í leiguhúsnæði til og frá. — Alveg eins og ein- staklingum er nauðsynlegt að eiga sitt eigið hús, eins er bæj- arfélaginu ekki síður nauðsyn þess. Sérhvert fyrirtæki, þó minna sé í vöfum en opinber rekstur, telur það frumskilyrði að vera í eigin húsnæði, en búa ekki við stöðuga leigu- hrakninga. —• Staðurinn fyrir ráðhús Kefla- víkur? Það er norðan Tjamar- götu, við endann á væntanleg- um skrúðgarði. Þá yrði suður- hliðin á einhvern fallegan hátt Ráðhús skrifstofubygging og aðseturs- staður opinherrar starfsrækslu og þjónustu bæjarins og að mörgu leyti ríkisins líka. Þar á almenningur að geta fundið á einum stað alla þræði hinnar margháttuðu opinberu starfsemi — bæjarfyrirtækja, ráða, nefnda, stjórna, fulltrúa og hvað það nú allt heitir þetta, sem komið er og kemur. Þar er fundarstaður bæjarstjómar, samræmd og sambyggð inn í garðinn, sem síðar á eftir að geyma listaverk og minnis- merki. — f kjallara eða neðstu hæð ætti þá vel heima byggða- safn og skjalasafn Keflavíkur. í anda byggðasafnsins mætti skreyta breiðsvalir hússins, inn- gang og bæjarsalinn sjálfan — þá fengi garðurinn með tíman- um réttara nafn — Minjagarð- ur Keflavíkur. Kef lavíkur bæjarráðs og allra annarra nefnda. — Þar em skrifstofur bæjarins, innheimta skatta og annarra gjalda, tryggingar og allt þess háttar. í ráðhúsinu — bæjarhúsinu — er einnig hinn opinberi móttökustaður bæjar- ins, sem jafnframt er fundar- salur, gerður í einhverjum þeim stíl, sem ber svipmót bæjarins. Ráðhús þarf ekki að vera nein skrauthöll, þó að margar efn- aðar borgir hafi gert sín ráð- hús á þann veg. Að sjálfsögðu er hægt að sameina fallegt út- lit og hagkvæma innréttingu, og einnig er hægt að byggja slíkt hús í áföngum. Reykjavík er illa komin vegna staðsetningar ráðhússins, en vantar hvorki vilja eða fé til að byggja það. -—- Hér í Kefla- vík höfum við staðinn og að sjálfsöguð viljann, en vantar fé, vegna þess að praktísku hlið- inni hefur ekki verið gaumur gefinn sem skyldi. Við þurfum að kjósa eina nefnd í viðbót, ákveða að byggja ráðhús í framtíðinni, og festa staðinn nú þegar inn á skipulagið —- svo má velta hlut- unum fyrir sér og hugsa fram í tímann. Fyrr en seinna kem- ur að því að byggja verður bæj- arhús — það er ekki fært að Svo er það hin hliðin á hús- inu. Tjarnargatan verður breið og falleg gata, vel byggð og bein frá sjó upp á heiði. Allt svæðið norðan Tjarnargötu, frá Hafn- argötu og upp fyrir Sólvalla- götu er raunverulega óbyggt svæði, þó standi þar nú nokk- ur gömul hús, sem öll er auð- velt að flytja burt, sérstaklega þau 4 smáhús, sem standa norð- an við Tjamargötu, milli Suð- urgötu og Sólvallagötu. Þar gæti orðið myndarlegt og stórt torg, sem samsvaraði þörfum og nauðsyn stórbyggingar, sem ráðhúsið verður með tímanum. Það er höfuð nauðsyn, að ekki verði að sinni byggt á næstu 30 til 50 metrum norðan Tjarn- argötu. Raunverulega þarf gamli bærinn allur góðrar og grandgæfilegrar skipulagningar við — en það er annað mál. Við höfum staðinn fyrir ráð- húsið og ráðhústorgið — það er nauðsynlegt að eignast hvort tveggja. — Ráðhúsið kemur til með að bera sig eins og hver önnur rekstrarbygging. Ein- staklingar byggja til að leigja og græða á því — þá er ein- faldlega hægt að græða á því að leigja ekki. hsj.

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/1890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.