Reykjanes - 01.11.1959, Page 8

Reykjanes - 01.11.1959, Page 8
ItEYKJANES Nóvembei 1959 8 VATNSVEITA KEFLAVÍKUR LJósm.: Eglll Jónsson. Vatnsgeymarnir. Hinn nýi til vinstri og gamli geymirinn til hœgri. Um síðustu mánaðamót var lokið við að steypa upp nýja vatnsgeyminn uppi á háholt- inu, fyrir enda Tjamargöt- unnar. Nýi vatnsgeymirinn er 8 metra hár og 11.5 metra í þver- mál og rúmar hann því 750 tonn af vatni. Gamli vatnsgeymirinn er úr jámi, var hann keyptur af hemum, hafði þar verið not- aður sem vatnsgeymir einhvers staðar fyrir innan Elliðaár við Reykjavík. Þar var geymirinn rifinn sundur og fluttur til Keflavíkur og endurreistur þar. Endurbygging hans tókst vel eftir ástæðum og hefur sá vatnsgeymir gegnt hlutverki sínu í rúm 13 ár. 1 sumar kom víða leki að samsetningum og mátti búast við því, að hann bilaði alvar- lega þá og þegar, en svo vel hefur tekizt til, að ekki hefur til vandræða komið. Unnið er nú að tengingum við nýja geyminn, og mun hann verða tekinn í notkun einhvern tíma á næstunni. Saga þessa vatnsgeymis er nokkuð löng — sagan hefst eiginlega þegar gamli vatns- geymirinn var byggður — þá var sú framkvæmd á hornum höfð, vegna þess að það féll þá vel við hugsanagang Alþýðu- flokksmanna að vera á móti þeirri bráðabirgðalausn, sem þá var framkvæmd. Bezt er að láta liggja á milli hluta allt það háðsglott og hrakspár, sem þá þóttu hæfa — og síðar breytt- ist í vandræðabros, þegar fram- kvæmd mála komst í þeirra eigin hendur. Vatnstankurinn olli nokkrum kosningahita við bæjarstjómarkosningar hvað eftir annað, og svo hátt steig hitinn, að nokkrum dögum fyr- ir kosningar 1954 lét þáverandi bæjarstjóri, Ragnar Guðleifs- son, aka nokkrum bílförmum af steypuefni upp á holtið, og skyldu nú allir sjá þá fram- takssemi og úrbót glappaskota, sem í vændum væri. Þessi mal- arhaugur lá svo sem lítið holt á holtinu, og tók aðeins á móti regnvatni og snjó. Þegar núverandi bæjarstjórn hafði lokið öllum undirbúningi að því að steypa upp vatns- geyminn, var farið að huga að þessum arfi Alþýðuflokks- stjórnarinnar, og kom í ljós, að hrúgan var ónothæf sem steypuefni. Byggingarverktak- ar þeir, sem ábyrgð áttu að bera á traustleika vatnsgeym- isins, létu rannsaka steypuefn- ið, og reyndist þá þetta kosn- ingaholt vera óhæft vegna sýru- innihalds, til annars en fyll- ingar undir steypu. Engum kemur til hugar, að þessi óhæfni grjótsins hafi ver- ið með vilja gerð — síður en svo — aðeins leiðinleg óheppni, að ekkert af „framtakssemU Ragnars skyldi koma að notum, þegar til framkvæmdanna kom. Núverandi hæjarstjórn hefur hér unnið vel að. Bygging þessa nýja vatnsgeymis skapar ör- yggi og leysir vanda vatns- veitunnar um langa framtíð. Bygging vatnsgeymisins mun kosta rúma hálfa milljón, þeg- ar allar 4 borholurnar eru full- virkjaðar og tengdar við nýja geyminn og aðalæð vatnsveit- unnar frá honum. Byggingarverktakar Kefla- víkur tóku að sér framkvæmd verksins og leystu það vel af hendi. Steypt var upp í skrið- mótum, og er það í fyrsta sinn, sem slík mót eru notuð í Kefla- vík, og tókst það vel. Enda þótt veður, bæði rigning og kuldi, tefði nokkuð fyrir, tók steypu- vinnan rúma 4 sólarhringa, er annars hefði ekki þurft að vera nema um 2 sólarhringa. Þorsteinn Ingólfsson bygg- ingarfulltrúi hafði eftirlit með verkinu fyrir hönd bæjarins. Keflvíkingar - Suðurnesjamenn óíma 517 AÐALSENDIBÍLASTÖÐIN Hafnargötu 55 RÍKISSTJORN MYNDUÐ UNDIR FORSÆTI Rétt þegar blaðið var að fara í prentun, bárust fréttir um, að tekizt hafi samkomulag milli Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu- flokksins um myndun ríkis- stjórnar, sem hafi meiri hluta stuðning á Alþingi. Samningar um samstarf milli flokkanna stóðu lengi, því að mörg og erfið viðfangsefni bíða þeirrar rikisstjórnar, sem nú tekur við, og eru þar sérstak- lega efnahagsmálin og það ó- fremdarástand, sem ríkjandi var eftir viðskilnað vinstri stjórnarinnar og einnig eftir fráfarandi stjóm. Stjómin er nú skipuð 7 ráð- herrum og eru þeir fjórir frá Sjálfstæðisflokknum og 3 frá Alþýðuflokknum. Ólafur Thors myndar stjórn ina og verður forsætisráðherra. Bjarni Benediktsson verður dómsmálaráðherra. Ingólfur Jónsson verður búnaðarmálaráðherra. Gunnar Thoroddsen verður fjármálaráðherra. Emil Jónsson verður at- vinnumálaráðherra. Guðmundur í. Guðmunds- son verður utanríkisráðherra. Gylfi Þ. Gíslason verður meimtamálaráðherra. önnur starfsskipting ráð- herra var ekki kunn, þegar blaðið fór í prentun. Það er von og trú allra þjóð- hollra manna að þessari ríkis- stjórn takist sitt erfiða hlut- verk, að endurreisa þjóðarbú- skap okkar úr því ófremdar- ástandi, sem búið er að koma honum í. Búast má við alls konar moldvörpustarfi og skemmdar- verkum frá Framsókn og komm únistum. Það er þeirra siður. En vænta verður þess, að ríkis- stjórnin sýni slíkum tilburð- um enga linkennd, því að vissu- lega er nú verið að reisa við aftur það, sem Framsókn og kommúnistar — með tilstyrk Alþýðuflokksins — lögðu í rúst- ir á sínum tíma.

x

Reykjanes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjanes
https://timarit.is/publication/1890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.