Reykjanes - 01.04.1970, Page 3
REYKJANES
3
Stórt átak hefur verið unnið í
gatnagerð á síðasta kjörtímabili
í lögn varanlegs slitlags, er á göt
ur bæjarins hafa verið lagðir
rúmir 6 km af malbiki og olíu-
möl, og er nú samanlögð lengd
varanlegs slitlags í bænum urn
9 km af 21,7 km gatnakerfi. Auk
þessa voru lagðar gangstéttir,
alls 2,4 km að lengd, og skipt
um jarðveg í götum sem eru 1,9
km að lengd. Þessu til viðbótar
hafa ný holræsi verið lögð í 2,-
km og ný vatnsveitulögn í 3,1
km. Endurbætur hafa verið gerð
ar á vatnsbóli bæjarbúa og haf-
in er lögn á miklu holræsi, sem
mun koma í veg fyrir frekari
flóð við Aðalgötu og nágrenni.
Til að þetta verk takist, sem
bezt, hefur verið keypt stór hjóla
skófla, sem einnig mun að því
loknu vinna við jarðvegsskipti
og aðra undirbúningsvinnu
vegna gatnagerðar, sem fram-
undan er.
í upphafi kjörtímabilsins var haf-
inn rekstur skólagarða, og hafa
unglingar unnið þar að rækt
grænmetis undir handleiðslu
kennara.
Sumarvinna unglinga við snyrt
ingu og fegrun bæjarins hefur
verið aukin á hverju vori. Hvort
tveggja hefur þetta haft góð á-
hrif á vinnulærdóm unglinga bæj
arins um leið og þeir hafa skap-
að sér tekjur.
Á undanförnum 10 árum hef-
ur íþróttasvæði tekið miklum
stakkaskiptum, fyrir stórt frarn-
tak bæjarins. Malarvöllurinn hef
ur breytzt úr eilífum polli í góð-
an flóðlýstan knattspyrnuvöll,
og grasvöllurinn er almennt tal-
inn einhver bezti sinnar tegund-
ar á landinu.
Áfram verður starfað að full-
um frágangi svæðisins, og hafizt
verður handa um undirbúning
meiri mannvirkja til íþróttaiðk-
ana, sem hér hefur verið og er
sterkur þáttur í félagsstarfi og
uppeldi barna bæjarbúa.