Reykjanes - 01.04.1970, Qupperneq 4
4
REYKJANES
Stefnuskrá
Sjálfstœdisflokksins
í bœjarmálum Keflavíkur
Fjármál og stjórnun.
Fjárhagur bæjarins er grund-
vallaatriði allra athafna hans,
bæði verklegra framkvæmda og
félagslegrar þjónustu.
Sjálfstæðisflokkurinn í Kefla
vík leggur því höfuð áherzlu á,
að ætíð verði gætt fyllstu hag-
sýni við meðferð fjármála bæj-
arins, þannig að bæjarsjóði verði
á hverjum tíma mögulegt að
leysa þau verkefni, sem að kalla,
og bæjarbúar geti notið þeirra
lífskjara, sem bezt gerast ann-
ars staðar. Þannig verði álög-
um á bæjarbúa stillt í hóf, en
til framkvæmda fyrir framtíðar-
byggð verði leitað lánsfjár til
langs tíma.
Framkvæmdaáætlanir verði
gerðar bæði um verkútreikninga
og verkefnaröðun, og verklegar
framkvæmdir bæjarins boðnar
út, þegar hagkvæmt þykir.
Ski4oulagsmál og
gatnagerð.
Hraðað verði kaupum á landi
því, sem ríkissjóður á innan lög
sagnarumdæmis bæjarins, og
haldið verði áfram skipulagn-
ingu þess.
Við allt skipulag bæjarins sé
gætt þeirrar megin stefnu, að at-
vinnurekstur njóti nægs svig-
rúms og byggingarhæfar lóðir
séu fyrir hendi.
Unnið verði áfram að heild-
aráætlun um rafmagns-, vatns-
veitu- og holræsalagnir og gatna
gerð á þeim svæðum, sem tekin
verða til skipulags og bygginga
hverju sinni, en fyrst af öllu
verði hraðað lögn hins mikla hol
ræsis sem firra mun bæinn flóð
um við Aðalgötu og næsta ná-
grenni.
Sérstaka áherzlu ber að leggja
á framhald varanlegrar gatna-
gerðar, svo sem Sjálfstæðisflokk
urinn hefur frá upphafi haft for
ystu um hér í bæ.
Atvinnumál.
Nauðsynlegt er, að aukinn
verði og efldur atvinnurekstur í
bænum.
Stuðlað verði að áframhald-
andi uppbyggingu í undirstöðu-
atvinnuvegi bæjarbúa, sjávarút-
vegi og fiskiðnaði.
Einn af þáttum þess er, að
bæjarstjórn hljóti aukin áhrif á
stjórn hafnarmála með það fyrir
augum að stórauknar fram-
kvæmdir verði við höfnina við
Vatnsnes.
Einnig ber að stuðla að á-
framhaldandi eflingu hvers kon-
ar annars iðnaðar. Sjálfstæðis-
flokkurinn telur að bæjarfélagið
eigi ekki að annast annan at-
vinnurekstur en þann sem telja
megi beina þjónustu við bæjar-
búa, og þær framkvæmdir sem
ekki reynist hagkvæmt að bjóða
út.
Fylgt verði eftir nýtingu þeirra
möguleika, sem skapazt hafa til
stóraukins iðnaðar, sérstaklega
fiskiðnaðar, við tilkomu nýrra
stórvirkjana og þátttöku í
EFTA markaði. Einnig verði
landshöfnin gerð útflutningshöfn
sjóefnavinnslu á Reykjanesi.
Fræðslu- og skólamál.
Sjálfstæðisflokkurinn í Kefla-
vík leggur á það höfuðáherzlu,
að börnum og unglingum sé
tryggð aðstaða til svo fjölbreyti
legs náms hér heima sem bezt er
annars staðar.
Til að svo megi verða er nauð
synlegt, að áfram sé haldið við
uppbyggingu skólahúsnæðis í
bænum og að tækjaútbúnaður
og aðstaða þeirra sé í samræmi
við kröfur tímans.
Unnið verði að áframhald-
andi uppbyggingu Gagnfræða-
skólans með sérstöku tilliti til
fullkominnar verknámskennslu
og væntanlegra framhaldsdeilda.
Unnið verði í samráði við ná-
grannasveitarfélögin að upp-
byggingu iðnskóla með fiskiðn-
deild.
Bæjarstjórn beiti sér fyrir því,
að komið verði á fót rncnnta-
skóla hér í bæ.
Bókasafni verði búið viðun-
andi húsnæði.
Byggðasafn.
Sjálfstæðisflokkurinn í Kefla-
vík leggur áherzlu á, að munum
byggðasafns bæjarins verði kom
ið fyrir í viðunandi húsnæði og
það eflt og aukið.
Æskulýðs- og félagsmál.
Sjálfstæðisflokkurinn í Kcfla-
vík telur eðlilegt, að efla enn hið
ágæta æskulýðsstarf, sem unn-
ið hefur verið á vegum bæj-
arstjómar meðal annars með
því að vinna að aukr.u samstarfi
skóla, kirkju og félagasamtaka,
sem láta sig æskulýðsmál í bæn-
um varða.
Til að slíkt starf beri sem
beztan árangur, verði ráðinn
æskulýðs- og félagsmálafulltrái,
sem hafi á hendi skipulag og for
ystu í félagsmálum á vegum bæj
arins, enda gegni hann og starfi
bamaverndarfulltráa.
Haldið verði áfram stuðningi
við aðra æskulýðsstarfsenri í
bænum og honum viðkomandi,
svo sem Tónlistarskólann, heima
vistarskóla í Krísuvík, dag-
heimili barna og fleira. Leik-
völlum fyrir börn verði fjölgað,
og þeir, sem ætlaðir era smá-
börnum búnir nauðsynlegum
leiktækjum og komið á gæzlu.
Almenna félagsmálastarfsemi
bæjarbúa ber að styrkja og örva,
svo sem verið hefur, með fjár-
framlögum og veittri aðstöðu.
Heilbrigðis- og
öryggismál.
Sjálfstæðisflokkurinn í Kefla-
telur nauðsynlegt að unnið verði
að því að treysta rekstrargrand
völl sjúkrahúss Keflavíkurlækn-
ishéraðs.
Stefnt verði að því að
byggja hæð yfir hinar stóra sval-
ir sjúkrahússins, þar sem betra
og hentugra húsnæði skapast fyr
ir fæðingardeildina. Gerður verði
sérinngangur á neðri hæð húss-
ins, þar sem núverandi fæðing-
ardeild er, og það húsrými not-
að fyrir slysavarðstofu, þannig
að hægt sé að afgreiða slysatil-
felli á afmörkuðu svæði hússins,
án þess að raska þurfi ró sjúkl-
inga sem annars staðar liggja á
sjúkrahúsinu. Mætti þá einnig
stofna vísi að heilsuvemdarstöð
í því aukna húsnæði. Lögð verði
áherzla á aukna og nánari sam-
vinnu rnilli elliheimilisins og
sjúkrahússins, þannig að gamalt
fólk eigi jafnan aðgang að þeirri
hjúkran, sem ekki er kostur að
veita á Elliheimilinu.
Eftirlit verði aukið í öryggis-
málum, svo sem brunamálum,
umferðarmálum og almanna-
vörnum.
íþróttamál.
Þar sem telja ber að starf
íþróttasamtakanna í bænum sé
einn af meginþáttum þess æsku-
lýðsstarfs, sem unnið er, ber að
stuðla að því, að þeirn sé búin
sem bezt aðstaða til fjölbreytt-
astra íþróttaiðkana, til að þau
geti svo sem hingað til borið
hróður bæjar okkar sem víðast
og laðað æskufólk bæjarins til
hollra íþróttaiðkana.
Unnnið verði við að ljúka
þeim íþróttamannvirkjum, sem
þegar eru í byggingu, meðal ami
ars aðstöðu til frjálsíþrótttaiðk-
ana. Hafizt verði handa um
byggingu á stóru íþróttahúsi, sem
ætlað verði til afnota fyrir Gagn
fræðaskólann og íþróttahreyfing
una, bæði til æfinga og kapp-
móta. Komið verði upp aðstöðu
fyrir yngstu aldursflokkana til
íþróttaæfinga víðar um bæinn.
Framhald á 7. síðu.