Reykjanes - 01.04.1970, Blaðsíða 7
REYKJANES
Stefnuskrá
Framhald af 4. blaðsíðu
Málefni aldraðra.
Könnuð verði félagsleg að-
staða aldraðs fólks í bænum, og
eftir niðurstöðum þeirrar könn-
unar verði hagað aðstoð við
aldraða.
Styrkt verði svo sem verið hef
ur starfsemi elliheimilisins Hlé-
vangs, og komið verði
á fót sjúkradeild fyrir aldraða
við sjúkrahúsið, þegar aðstaða
þar hefur verið bætt.
Stórbætt aðstoða
Framhald af bls. 8.
Njarðvík til æfinga og leikja, og
jafnvel út í Garð.
Vil ég þar sérstaklega benda
á ,að nú benda önnur bæjarfé-
lög gjarna til Keflavíkur þegar
rætt er um aðstöðu knattspyrnu
manna til æfinga og leikja. Að-
staða öll á íþróttasvæðinu hér er
mjög góð, grasvöllurinn er tal-
inn einhver sá bezti á landinu,
og malarvöllurinn er mjög góð-
ur, og er hann eini flóðlýsti völl-
urinn á landinu, þar sem hægt
er að leika opinbera kappleiki
við lýsingu. Þetta þakka ég sér-
staklega meirihluta bæjarstjórn-
ar svo og allan velvilja og skiln-
ing hans fyrir þörfum íþrótta-
mála bæjarins.
— Að lokum, Hafsteinn.
Hver telur þú vera næstu verk-
efni á íþróttasvæðinu?
— Þau eru stækkun áhorf-
endasvæðisins, áframhald við að
bæta aðstöðu til frjálsíþróttaiðk-
ana, og að Ijúka við girðingu
umhverfis svæðið. Einnig þarf
7
nauðsynlega að stækka íþrótta-
vallarhúsið, sem orðið er of lít-
ið fyrir þá starfsemi, sem fram
fer á völlunum.
Ég er þó ekki að krefjast alls
þessa í einu, ég veit að allt tek-
ur sinn tíma.
Blaðið þakkar Hafsteini Guð
mundssyni viðtalið, og óskar hon
um og íþróttabandalagi Kefla-
víkur allra heilla í starfi, kapp-
leikjum sem öðru.
Hitaveita.
Áfram verði haldið að kanna
þá möguleika, sem fyrir hendi
era á hitaveitumálum bæjarins.
Fegrun.
Fagurt og hreinlegt umhverfi
hefur holl uppeldisáhrif og eyk-
ur á menningarlegan bæjarbrag.
Ber því að leggja áherzlu á,
að bæjaryfirvöld hafi áfram t'or-
ystu um fegrun bæjarlandsins og
örvi og styðji viðleitni bæjar-
búa í þá átt.
Samstarf sveitarfélaga á
Reykjanesi.
Sjálfstæðisflokkurinn í Kefla-
vík telur, að bæjarstjórn skuli
hafa forgöngu um sem víðtæk-
asta samvinnu við nágranna-
sveitarfélögin um lausn ýmissa
sameiginlegra hagsmunamála.
í krafti þessarar stefnuskrár
mun Sjálfstæðisflokkurinn og
fulltrúar hans vinna ósleitilega
að hverju því máli, sem til hcilla
horfir fyrir bæjarfélagið.
Húsið Vesturgata 8 var flutt, vegna skipulags, og er nú notað sem áhaldageymsla skólagarðanna.
Hvern á ég að kjósa ?
Það er flestum nokkurt um-
hugsunarefni, er þeir velja sér
fulltrúa til að fara incð málefni
bæjarfélags síns.
Framsóknarmenn hafa þó
gcrt sitt til að létta mönnum
þetta val. í blaði þeirra hafa þeir
átt viðtöl við ýmsa kjósendur,
og þar er að finna klausur eins
og þessar: „Þessi bæjarstjórnar-
meirihluti, sem ráðið hefur, er
algjörlega óhæfur í starfi. .. .“
„Ég tel, að framsóknarmenn
hafi valið hæfustu og beztu
mennina . . . .“ „Ég hef óbil-
andi trú á þeim mönnum,
sem skipa efstu sætin á lista
framsóknarfélaganna .. . —
„Víðsýnir úrvalsmenn hafa val-
izt í hvert sæti á lista framsókn-
ar . . . .“ „Sjaldan hefur stjórn-
málamaður komið standandi nið
ur úr stærra heljarstökki en Val-
týr Guðjónsson."
Þarna hefur þú það, kjósandi
góður, svo að við ættum ekki að
verða í vandræðum að velja þeg
ar völ á slíkum afburðamönn-
um til að stjórna bænum okkar.
Nú máttu ekki hugsa of mik-
ið um þessi ummæli, gleðstu að-
eins yfir, hve undurfögur og heill
andi þau era.
Ég reyndi þetta, cn tókst það
ekki, og þá kom þetta meðal
annars í hugann. — Ef þér væri
hrósað ákaflega, lesandi góður,
gengir þú þá fyrir hvern mann,
sem á þig vildi hlusta og tækir
við að breiða út hrósyrðin um
þig? Ég held, að fæstir hafi geð
í sér til að haga sér þannig. En
framsóknarmenn hika ekki við
að eyða tugum þúsunda til að
koma þessu hóli um sig til sem
allra flestra.. Það eru nógir pen-
ingar til, þegar koma þarf miklu
nauðsynjamáli fram.
Sjáanlega eru framsóknarfull
trúarnir, sem standa fyrir þess-
ari útbreiðslustarfsemi, sjálfir
farnir að líta á sig sem afburða-
menn, gallalausa og óskeikula.
En er það ekki gömul reynsla,
að menn eru komnir á varasama
braut, þegar þeir eru hættir að
finna neitt að sjálfum sér, þeim
finnst þeir vera orðnir alfull-
komnir. — Nei, sjálfsgagnrýni
og visst Iítillæti er öllum mönn-
um hollt.
Þess skulum við minnast, þeg-
ar við göngum til kosninga.
Ungur kjósandi.
Kjósið D - listann