Kosningablaðið - 19.01.1934, Side 3
Kosningin á morgnn.
Ueidbeining.
Þar sem nú kýs allmargt kjós-
enda í fyrsta sinni við þessar
bæjarstjórnarkosningar er sjálfsagt
að gefa stuttlegar leiðbeiningar
fyrir kjósendur:
1. kjördeild: Allir kjós-
endur, sem eiga upphafsstafina
A til G, að báðum meðtöldum;
2. kjördeiid: Allir kjós-
endur, sem eiga upphafsstafina
H til N, að báðum meðtöldum;
3. kjördeild: AUir kjós-
endur, sem eiga upphafsstafina
O til Ö, að báðum meðtöldum.
Kjósandi gengur inn í kjörher-
bergið og segir til nafns sins og
heimilisfangs, ef með þarf. Þegar
nafn hans er fundið á kjörskránni
fær kjörstjórnin honum saman-
brotin kjörseðil, sem hann gengur
með inn í kjörklefann. Þar opnar
kjósandi seðilinn og setur x með
blýanti framan við bókstaf þess
lista, er hann kýs. Brýtur síðan
seðilinn saman, eins og hann var,
fer með hann fram I kjörherbergið
og stingur sjálfur kjörseðlinum i
atkvæðakassann.
Þeir kjósendur, sem þurfa að-
stoðar vegna sjóndepru eða sjón-
leysis eða öðrum orsökum, er
kjörstjórn metur gildar, geta fengið
aðstoð.
Kjörseðillinn lítur út, eins og
hann er birtur hér I blaðinu.
Setjið krossinn fyrir framan A
og fylgið fast A-listanum.
Það er aldrei ofbrýnt fyrir kjós-
endum, að koma nægilega snemma
til kosnínga,
Enginn Sjálfstæðismaður má
draga sig í hlé til þess að ná
fullum sigri A-listans.
Látið alt flokkseinræði og kúgun
vlkja úr valdasessi. Vinnum sam-
huga að því, að skapa bjartan,
fagran, glaðan og sjálfstæðan bæ,
sem hugsi um hag allra borgar-
anna.
Æskumenn! Þið, sem nú fáið
kosningarrétt i fyrsta skifti. Berið
fram fána frelsis og sjálfstæðis
og fylkið ykkur um A-listann og
látið hann ná fullum sigri.
Fram til baráttu.
Fram til sigurs.
Kveðju skilað.
Jóhann J. Eyfirðingur hefir
beðið blaðið að skila þeirri kveðju
til Finns forstjóra, að maður sá,
er hann nefndi á kosningafund-
inum I gær og tilgreindi að Finn-
ur hefði neitað að fá olíuslopp,
er hann var að leggja út I veiði-
för á Samvinnufélagsbátunum, sé
reiðubúinn að staðfesta umsögn
sfna hvenær sem sé.
Finnur forssjóri sé þvl hinn
sanni verklýðsböðull, eins og hann
hafi sagt honum á fundinum I
gærkveldi.
Útgefandi:
Sjálfstæðisfélag ísflrðinga.
Áb.m.: Arngr. Fr. Bjamason.
KOSNING ABLAÐIÐ 3
Kjósið A-listann!
Þ>eir,sem kjósa A-listann (lista Sjálfstæðis-
flokksins) setja x (kross) fyrir framan bókstaf
listans (A) og lítur þá kjörseðillinn þannig ut:
KJORSEÐILL
við bæjarstjórnarkosningu á ísafiröi 20. janúar 1934.
X A-listi B-listi C-listi
Jón S. Edwald Eggert E. Þorbjarnarson Finnur Jónsson
Jóhann J. Eyflrðingur Halldór Ólafsson Guðmundur G. Hagalín
Finnbjörn Finnbjörnsson Eyjólfur R. Árnason Hannibal Valdimarsson
Gísli Júlíusson Ragnar G. Guðjónsson Jón H. Sigmundsson
Sigurjón Jónsson Karítas Skarphéðinsdóttir Eiríkur Einarsson
Elías P, Kærnested Karlinna Jóhannesdóttir Grímur Kristgeirsson
Björgvin Bjarnason Sigurður Hannesson Guðmundur G. Kristjánss.
Stefán Bjarnason Ingimundur Steinsson Eiríkur Finnbogason
Kristján Tryggvason Unnur Guðmundsdóttir
Ásberg Kristjánsson Páll Kristjánsson
Kjartan Ólafsson Haraldur Guðmundsson
Ólafur Þorbergsson Halldór Ólafsson, múrari
Hjalti Jörundsson Sigurður Guðmundsson
Páll Jónsson Jón Jónsson frá Þingeyri
Harald Aspelund Ingimundur Guðmundsson
Bjarni Sigurðsson Helgi Halldórsson
Ólafur Guðjónsson Pálmi Kristjánsson
Elías J. Pálsson Þórleifur Bjarnason
Allir, sem unna frelsi og sjálfstæði Isa-
fjarðar, styðja lista Sjálfstæðisflokksins, A-listann.
Hann er skipaður sjálfstæðum mönnum af öll-
um stéttum, sem eru reyndir og nýtir borgarar.
Dragið ekki að kjósa fram á siðustu stund,
svo að atkvæði yðar, ef til vill, fari forgörðum.
Fylltið ykkup um Sjálfstæðislistann*
Sækið vel kjörfund.
Minnist 11 ára óstjórnar kratanna og
látið Sjálfstæðismenn ná fullum sigri.
Látið kosningadaginn
verða sigurdag frelsis og
sj ál fstæ ð i s.
Prentstofan ísrán.