Vesturbæjarblaðið - sep. 2023, Blaðsíða 2
2 Vesturbæjarblaðið
Útgefandi: Borgarblöð ehf.
Eiðistorgi 13-15 • 172 Seltjarnarnes • Pósthólf 171
Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími: 893 5904
Netfang: thordingimars@gmail.com
Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298
Heimasíða: borgarblod.is
Net fang: borgarblod@simnet.is
Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son
Um brot: Borgarblöð ehf.
Prentun: Landsprent ehf.
Dreif ing: Póstdreifing ehf.
8. tbl. 26. árgangur
Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í póstnúmerum 107, 102 og 101.
Reykjavík er á fleygiferð. Hefur verið það frá byrjun þessarar
aldar. Þrátt fyrir áföll í þjóðlífinu. Bankahrun og Covid faraldur
hefur þessi för inn í framtíðina haldið áfram. Tæpast þarf annað en
líta yfir lendur og byggðir borgarinnar til að verða þessa áskynja.
Borgarbúum hefur fjölgað hratt. Á aðeins fjórum árum hefur
hann farið úr 123 þúsund í 135 þúsund. Fjölgunin heldur
áfram. Ekki sér fyrir endann á henni.
Íbúafjölgunin hefur kallað á margvíslegar framkvæmdir. Ekki
aðeins íbúðabyggingar heldur einnig stórauknar framkvæmdir
við stoðkerfi borgarinnar. Skólakerfi, veitukerfi og síðast en ekki
síst samgönguframkvæmdir.
Reykjavík býr ekki yfir óendanlegu byggingarlandi. Því hefur
verið gripið til þess ráðs að þétta byggðina. Byggja á mörgum
áður óbyggðum og auðum og jafnvel illa hirtum svæðum og
endurbyggja gamlar og úreltar iðnaðarbyggðir.
Eðlilega kostar þetta sitt en eru engu að síður nauðsynlegar
framkvæmdir. Framkvæmdir sem skila sér inn í komandi
framtíð ætli Reykjavík að standa undir nafni sem höfuðborg.
Reykjavík verður áfram á fleygiferð. Ferð inn í framtíðina. Þótt
einhverjar úrtölur kunni að heyrast. Þótt einhverjir vilji horfa
á þá Reykjavík sem var á liðinni öld og sjá ofsjónum yfir nútímanum
og framtíðinni verður þessi ferð ekki stöðvuð.
Borg á fleygiferð
SEPTEMBER 2023
ALHLIÐA MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
www.husavidgerdir.is/hafa-samband
info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070
Finndu okkur á
Fegrun og lenging líftíma
steyptra mannvirkja er
okkar áhugamál. Við
höfum náð góðum árangri
í margs konar múr- og
steypuviðgerðum,
múrfiltun, steiningu og
múrklæðningum. Hafðu samband
Við skoðum og gerum tilboð!
Íbúar við Sólvallagötu eru hugs
andi yfir hugmyndum Banda
ríska sendiráðsins um að stórefla
öryggis varnir hússins við Sólvalla
götu 14 með því að reisa tæplega
tveggja metra háa rimlagirðingu
úr stáli auk þess að setja vakt hús
við suðvesturhorn hússins fyrir
öryggisgæslu. Bandarískar kröfur
um öryggisvarnir koma Íslending
um nýstárlega fyrir sjónir enda
ekki vanir háum rimla girðingum
eða öryggisskýlum þar sem jafn
vel vopnaðir öryggis verðir geta
haft bækistöðvar til að gæta íbúa
í tilteknum húsum. Áformað er
að húsið verði nýtt sem sendi
herrabústaður en sendi ráð Banda
ríkjanna er í nýjum og skotheldum
húsakynnum við Engjateig.
Reykjavíkurborg hefur borist
umsókn um leyfi til þess að breyta
innra skipulagi, byggja lyftuhús
norðan aðalinngangs, byggja yfir
svalir ofan á inngangi, gera nýjan
inngang og tröppur á norðurhlið
fyrstu hæðar að eldhúsi íbúðar
húss, byggja ofan á bílskúr, með
aðgengi um utanáliggjandi stiga
meðfram vesturhlið, jafnframt því
að byggja vaktskýli fyrir öryggis
gæslu í suðvestur horni lóðar og
reisa öryggisgirðingu inn á lóð og
meðfram lóðarmörkum aðliggjandi
lóða. Bandaríska sendiráðið festi
kaup á húsinu sem áður var í eigu
Andra Más Ingólfssonar, fyrrverandi
aðaleiganda Primera Air og Heims
ferða, og Valgerðar Franklínsdóttur,
eiginkonu hans.
Sendiráðið sendi Reykjavíkur
borg fyrirspurn og teikningar vegna
fyrirhugaðra breytinga í tvígang
á síðasta ári. Í fyrstu hafnaði borg
in sendiráðinu og í það síðara var
niðurstaða skipulagsfulltrúa sú að
vegna sérstakra aðstæðna yrði ekki
gert skipulagslega athugasemd
við að grenndarkynna bygginga r
leyfisumsókn um girðingu, vakthús
og viðbyggingu þegar eða ef hún
bærist. Nýjasta beiðni sendiráð
sins tekin fyrir á afgreiðslufundi
skipulagsfulltrúa nýlega og vísað til
verkefnastjóra til frekari skoðunar.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um
grenndarkynningu vegna málsins.
Íbúar hugsandi vegna hug-
myndar Bandaríkjamanna
Sólvallagata 14.
Sólvallagata
Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs Reykja
víkur tilkynnti nýverið að stígur við Framnesveg
að baki nýbygginga við Hringbraut fengi nafnið
Elísabetarstígur. Stígurinn er nefndur eftir Elísabetu
Jökulsdóttur skáldi og rithöfundi sem bjó lengi í litlu
húsi við Framnesveg. Skilti sem hún hafði í glugga
er löngu orðið frægt. Þar mátti finna góðlátlega
áminningu um skáldlegar hliðar veruleikans. Þar
stóð einfaldlega: Mundu töfrana.
Þegar fregnir bárust af því að nefna ætti lítinn stíg á
bak við gamla húsið hennar Hoffmannsstíg í höfuðið á
Pétri Hoffmann Salómonssyni, sem lengi bjó á þessum
slóðum og stundaði Öskuhaugana lagði Elísabet til
að stígurinn yrði heldur nefndur í höfuðið á henni.
Hún fékk þvert nei frá borgarstjórn en gafst ekki upp
heldur setti af stað undirskriftalista sem yfir þúsund
skrifuðu undir. Þegar hún afhenti formanni borgarráðs
listann fékk þá þessi svör: „Málið er leyst, og stígurinn
fær þetta nafn. Og það þarf að gera smá breytingar
á uppdrættinum og þá er þetta komið. Þannig að til
hamingju með það.“ Elísabet var að vonum ánægð
með þessi málalok enda fer vel á því að nefna stíginn
eftir einhverri þekktustu manneskju sem búið hefur
á þessum slóðum. Elísabet vill deila stígnum með
öðrum konum sem hafa alist upp eða unnið í hverfinu.
„Ég hef verið á sjó og verið sjómannskona og ég veit að
í húsinu þar sem ég bjó var algjör hetja. Steinunn hét
hún og hún ól upp fimm börn á 63 fermetrum. Þannig
langar mig að setja upp skjöld á Elísabetarstíg þar sem
stígurinn er tileinkaður konum, sjómannskonum og
verkamannakonum, sem voru að vinna í hverfinu, sem
og öllum börnum þeirra,“ sagði Elísabet í viðtali þegar
stígnum hafi verið gefið nafn.
Elísabetarstígur við Framnesveg
Elísabet Jökulsdóttir og Einar Þorsteinsson formaður
borgarráðs Reykja víkur.
• Ég býð upp á gítarkennslu í heimahúsum fyrir alla
aldurshópa, byrjendur jafnt sem lengra komna.
• Boðið upp á klassískan og óklassískan gítarleik á
órafmögnuð hljóðfæri eða rafmagnsgítar.
• Ég heiti Sergio og hef margra ára kennslureynslu á gítar.
• Ég hlakka til að skapa tónlist með þér!
• Þú getur haft samband í síma 695-0407.
GÍTARKENNSLA