Vesturbæjarblaðið - Sep 2023, Page 10

Vesturbæjarblaðið - Sep 2023, Page 10
10 Vesturbæjarblaðið SEPTEMBER 2023 Fyrirhugað er að bjóða út fyrstu framkvæmdir vegna Fossvogsbrúar nú á haust­ mánuðum. Fyrst verður boðin út vinna við landfyllingar á Kársnesi og við Nauthólsvík vegna brúarinnar. Áætlanir gera ráð fyrir að vinna við landfyllingar hefjist fyrir áramót og taki um átta mánuði. Í framhaldinu verða framkvæmdir vegna smíði brúarinnar boðnar út og ættu þær að geta hafist um mitt næsta ár. Markmiðið með Fossvogsbrú er að bæta samgöngutengingar milli Reykjavíkur og Kópavogs. Brúin er ætluð fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, sem og farþega almennings samgangna en á brúnni verður sérrein fyrir Borgarlínuvagna. Leið gangandi og hjólandi vegfarenda milli Reykjavíkur og Kópavogs mun styttast um 1,2 kílómetra með tilkomu brúarinnar. Hún mun einnig tengja miðbæ Kópavogs betur við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands og miðbæ Reykjavíkur. Brúin verður 270 metra löng og allt að 17,3 metrar á breidd. Samhliða útboðinu hefur verið gerð kostnaðaráætlun þar sem kostnaðurinn vegna hönnunar, framkvæmda, umsjónar og eftirlits er metinn á um 6,1 milljarð. Þá gerir kostnaðaráætlun ráð fyrir um 1,4 milljörðum vegna landfyllinga. Um 1,4 milljarðar króna sparast með því að nota hefðbundið stál í stað ryðfrís stáls við byggingu brúarinnar eins áður hafði verið gert ráð fyrir, en um 1 milljarður á líftíma brúarinnar. Fossvogsbrú er hluti af verkefnum sem heyra undir Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem gerður var milli ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu árið 2019. Betri samgöngur ohf., Vegagerðin, Reykjavíkurborg og Kópavogsbær vinna saman að undirbúningi brúarinnar. Samkeppni var gerð um tillögu að Fossvogsbrú. Tillagan Alda bar sigur úr býtum og er samstarfsverkefni EFLU og BEAM Architects. Spurst fyrir um breytingar í gistiskála Reykjavíkurborg hefur borist fyrirspurn um hvot breyta megi annarri og þriðju hæð JL­hússins við Hringbraut í gistiskála líkt og gert hefur verið með efri hæðir þess. Einnig er spurt um hvort innrétta megi jarðhæð sem þjónustumiðstöð, kaffihús, aðstöðu fyrir börn og kennslustofur, samkvæmt uppdrætti. Myndlistarskólinn í Reykjavík hefur verið á annarri og þriðju hæð hússins en áform verið um að finna starfsemi hans annan samastað. Erfiðlega hefur gengið að finna JL byggingunni við Hringbraut framtíðarhlutverk. Ýmislegt hefur verið reynt og misvísandi fréttir hafa birst um framtíðarnýtingu hússins. JL-húsið var eitt sinn tákn um stórhug í Vesturbæ Reykjavíkur en hefur látið á sjá. Ýmiskonar starfsemi hefur verið þar í gegnum tíðina en erfiðlega hefur gengið að finna húsinu hlutverk að undanförnu. Fossvogsbrú boðin út JL-húsið Parísarhjól. Fjölmargar borgir Evrópu og heimsins eru með Parísarhjól. London, Gautaborg, Gdansk og Tblisi svo fáin dæmi séu nefnd. Parísarhjól á Miðbakka? Borgarstjóri vill kanna raunhæfni þess að koma fyrir Parísarhjóli í tilraunaskyni til nokkurra ára á Miðbakka í Reykjavík. Þar vísar Dagur B. Eggertsson til hugmynda í minnisblaði starfshóps um haftengda upplifun og útivist við útisvæði Faxaflóahafna. Þar komu fram ýmsar hugmyndir að haftengdri upplifun og útivist við hafnarsvæðið. Dagur segir að sérstök ástæða sé til að setja hugmynd um Parísar-hjól í farveg. Það verði hugsað á viðskiptalegum grunni, án fjárútláta borgarinnar eða hafnarinnar. Jafnframt verði hugað að útfærslu almennings- og leiksvæða á Miðbakka samhliða uppsetningu slíks hjóls, reynist hugmyndin raunhæf. Ljóst er að umtalsvert flækjustig getur fylgt framkvæmdinni og útfærslu þess. Ljóst sé að hafa þurfi víðtækt samráð um það og vinna nauðsynlega greiningu sameiginlega af Reykjavíkurborg og Faxaflóahöfnum en Miðbakki er á hafnarsvæði Tunnuskiptum vegna nýs flokkunarkerfis sorp hirðu er lokið. Búið er að setja saman rúmlega 30 þúsund nýjar flokkunartunnur og dreifa þeim á heimilin í borginni en þar af er um helmingur tvískiptar tunnur. Búið er að dreifa körfum og bréfpokum til 57 þúsund heimila í borginni, sem þýðir að 4,4 milljón pokar fyrir lífrænan eldhúsúrgang rötuðu beint í eldhús Reykvíkinga. 280 tonnum af lífrænum úrgangi safnað í ágúst Stærsta breytingin með tunnuskiptunum er söfnun á lífrænum eldhúsúrgangi. Núna í ágúst var safnað rúmlega 280 tonnum af lífrænum úrgangi en megnið af því fór áður í gráu tunnuna. Þetta þýðir lækkað kolefnisspor með því að draga úr urðun. Í staðinn er búin til molta og næringin fer aftur inn í hringrásina. Einnig er búið til metan, sem er nýtt á margvíslegan hátt, meðal annars á alla fjórtán sorphirðubíla Reykjavíkurborgar. Um 280 tonn af lífrænum úrgangi þýða að úrgangur til urðunar í Reykjavík hefur dregist saman um 21,5% nú þegar. Þessi tala eftir að hækka enn frekar nú þegar síðasta hverfið hefur bæst við í nýja kerfið. Unnið við sorphirðu. Tunnuskiptum er lokið KLAPPARSTÍG 29 ALPACA FYRIR HAUSTIÐ

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.