Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 04.05.2023, Blaðsíða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 04.05.2023, Blaðsíða 4
4 | | 4. maí 2023 Íslandsmeistari í golfi er markmiðið E Y J A M A Ð U R I N N D A N Í E L I N G I S I G U R J Ó N S S O N Eyjapeyinn Daníel Ingi hefur æft golf að kappi síðustu fjögur ár við toppaðstæður í Háskólanum Rocky Mountain í Montana ásamt því að stunda nám í viðstkipafræði. Daníel Ingi ásamt liði sínu gerðu sér lítið fyrir og unnu í síðustu viku Frontier Conference mótið í Las Vegas og eru því komnir í úrslit um að vinna NAIA golf deildina í Banda- ríkjunum sem er deild fyrir háskólanna þar í landi. Daníel Ingi leiddi mótið um tíma en endaði að lokum í öðru sæti. Síðastliðinn laugardag útskrif- aðist Daníel Ingi frá skólanum með 9.2 í meðaleinkunn. Daníel Ingi er því Eyjamaður vikunna. Nafn: Daníel Ingi Sigurjónsson. Fjölskylda: Foreldrar mínir eru Gunnhildur og Sigurjón, svo á ég fimm systkini sem heita Andri, Jonni, Tanja, Erna og Hjördís. Hefur þú búið annarsstaðar en í Eyjum: Síðustu fjögur ár hef ég búið í Bandaríkjunum, Billings Montana þar sem ég hef verið í skóla. Mottó: Þetta reddast. Síðasta hámhorfið: Þættir Yellow- stone, þeir eru teknir upp á sama svæði og ég bý, þannig þeir voru í miklu uppáhaldi. Uppáhalds hlaðvarp? Ég hlusta ekki mikið á hlaðvörp en Fm95blö er eitthvað sem ég hlusta alltaf á. Aðaláhugamál: Mest allur tíminn minn fer í það að æfa og keppa í golfi. En á veturnar hef ég hrikalega gaman að því að fara á snjóbretti. Eitthvað sem þú gerir á hverjum degi sem þú gætir ekki verið án: Ætli það sé ekki að eyða tíma með vinum mínum. Hvað óttast þú mest: Mér vanalega tekst að týna öllu sem ég á, ætli ég óttist ekki að týna vegabréfinu mínu hérna úti, það væri agalegt bras að redda því. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Kaleo eru alltaf góðir. Hvaða ráð myndir þú gefa 16 ára þér sem veganesti inn í lífið: Þora að breyta til og stíga út fyrir þægindarammann. Hvað er velgengni fyrir þér: Setja mér markmið og ná þeim. Hvenær byrjaðir þú að æfa golf Það var eitthvað í kringum fimm eða sex ára sem ég byrjaði að sveifla kylfu út á golfvelli með pabba. Hvenær fórstu út í skólann? Ég flutti út árið 2019. Hvað varstu að læra úti? Ég var að útskrifast sem við- skiptafræðingur með aukagrein í hagfræði. Hvernig hefur þér gengið úti? Þetta hefur bara gengið flott, við erum með sterkt golflið í skólan- um okkar þannig samkeppnin er mikil þar sem aðeins fimm sæti eru í boði fyrir hvert mót en liðið samanstendum af 14 strákum. Við vorum að klára vinna okkar síðasta mót sem skilar okkur í úr- slitakeppnina um að vinna NAIA golf deildina í Bandaríkjunum. Hver eru markmið þín ? Íslandsmeistari i golfi er markmið sem ég stefni á í framtíðinni. Hvernig er lífið í Montana? Montana er klárlega einn af þeim flottustu stöðum sem ég hef kom- ið til. Ég myndi segja að ég hafi verið hrikalega heppinn með skól- ann sem ég valdi hérna, en hann heitir Rocky Mountain College Hvað tekur við núna eftir að þú hefur lokið námi? Eins og staðan er núna þá er ég að skoða áfram- haldandi nám, hvort það verði í Bandaríkjunum eða einhversstað- ar annarstaðar hef ég ekki ennþá ákveðið. Eitthvað að lokum? Ég vil þakka öllum þeim sem hafa stutt mig í gegnum háskólagolfið mitt. Daníel Ingi Sigurjónsson. Þrjú ungmenni fermdust borgara- lega í Menningarhúsinu Kviku sumardaginn fyrsta, þann 20. apr- íl. Í undanfara athafnarinnar höfðu fermingarbörnin sótt fræðslu á vegum Siðmenntar, þar sem tekist var á við ýmsar spurningar sem fylgja þessum tímamótum og áhersla lögð á að börnin tileink- uðu sér gagnrýna hugsun, viðsýni og heiðarleika. Fermingarfræðslan er með ýmsu sniði, en tvö fermingarbarnanna sóttu ferm- ingarfræðsluna á Úlfljótsvatni, á meðan það þriðja stundaði námið á Selfossi. Önnur fermingin í Eyjum Þetta er í annað sinn sem boðið er upp á borgaralega fermingar- athöfn í Vestmannaeyjum og var það Zindri Freyr Ragnarsson Caine, athafnastjóri hjá Siðmennt, sem stýrði athöfninni. Auk hans talaði Inga Auðbjörg Straumland, formaður Siðmenntar, en hún flutti sérstaka hátíðarræðu þar sem hún lagði áherslu á mikilvægi gagnrýninnar hugsunar. Giftir, nefnir og fermir „Það hefur komið mér ánægju- lega á óvart hvað viðbrögðin eru góð hérna í Eyjum,“ segir Zindri Freyr um áhuga á starfsemi Siðmenntar, en hann útskrifaðist sem athafnastjóri í fyrra, en hlutverkinu fylgja vígsluréttindi, svo nú eru húmanískar athafn- ir á lífsins tímamótum í boði í Eyjum. Zindri Freyr stýrir bæði hjónavígslum og nafngjöfum, ásamt því að taka þátt í fermingar- athöfnum. „Þetta er einstaklega gefandi og skemmtilegt hlutverk, og mikill heiður að fá að veita þessa þjónustu,“ segir Zindri, sem leggur áherslu á að athafnirnar séu persónulegar og innilegar. Þrjú fermdust borgaralega í Kviku Fermingarbörnin voru þrjú í þetta sinn og sitja hér undir fögrum flutningi á þjóðhátíðarlagi síðasta árs. Zindri Freyr, athafnastjóri hjá Siðmennt, finnur fyrir miklum áhuga á þjónustu félagins í Eyjum. Zindri er með vígsluréttindi og tekur að sér athafnir eins og giftingar og nafngjafir.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.