Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 04.05.2023, Blaðsíða 7

Fréttir - Eyjafréttir - 04.05.2023, Blaðsíða 7
4. maí 2023 | | 7 Með hækkandi sól fara margir Eyjamenn að huga að útivist enda fáir staðir í heiminum sem henta betur til útivistar en Vestmannaeyjar á góðum sumardegi. Þetta þekkir Már Jónsson fyrrverandi kennari betur en flestir aðrir, þó svo að útivist Más sé ekki einungis bundin við sumar og blíðviðri. Síðustu ár hefur Már vanið komur sínar á Heimaklett á meðal annara staða í Vest- manneyjum en hann afrekaði það í nóvember á síðasta ári að fara ferð númer 4000 á Klettinn góða. Már fagnaði svo öðrum áfanga þann 16. apríl þegar hann varð áttræð- ur. Það var gaman að setjast niður með Má og ræða við hann um útivist, bjargveiði, náttúru Vestmannaeyja og þau ævintýri sem Már hefur upplifað í Eyjum. Fór ungur í björgin „Ég fór að fara í egg í fjöllunum löngu fyrir fermingu“, svarar Már aðspurður um hvar þessi áhugi hafi kviknað. „Við Björn Karlsson heitinn vorum mikið saman sem peyjar og þvældumst víða eins og gráir kettir og héldum því áfram fram eftir táningsárum.“ Már segir þá fáa staðina sem þeir hafi ekki kannað á þessum tíma og stundum komist í vandræði. Það var þó hvergi jafn nærri því að illa færi og þegar þeir félagar fóru að sækja fýlsunga í Dufþekju í eitt skiptið. „Það var þannig að við Björn fórum báðir niður í Dufþekju á spotta, sem var þar fyrir, til að ná í fýlsunga. Þegar við vorum komnir með fýl í tvo strigapoka, fórum við að spottanum og ákváðum að Björn færi upp og myndi svo hífa báða pokana áður en ég kæmi upp. Allt gekk eftir áætlun þar til ég ætlaði að fara upp. Ég var ekki kom- inn langt upp þegar að spottinn slitnaði og ég húrraði niður. Eftir á að hyggja var þessi kaðall búinn að vera þarna í mörg ár og fyrir löngu orðinn gegnum morkinn en við vorum ekkert að hugsa of mikið út í það áður en við fórum niður. Ég var heppinn að slasa mig ekki í fallinu en þó ekki lánsamari en svo að ég var fastur þarna niðri. Björn brá þá á það ráð að fara úr flestum spjörunum og hnýta þær við endann á spottanum sem fyrir var og þannig tókst mér á endanum að komast upp. Maður hefur nú í seinni tíð tamið sér að fara varlega í svona klöngur en svo var ekki þá.“ Tóku Hana í fóstur Smáeyjarnar, og þá sérstaklega Hani, hafa lengi verið Má kærar en um 60 ár eru síðan hann hóf að stunda þar bjargveiði. „Þannig var að ég reri hér í nokkur ár eftir að ég var búinn með menntaskól- ann, með Óla í Skuld á Ófeigi II. Í óvæntu stoppi datt og mér og Gunnari Hinrikssyni rafvirkja datt í hug að fara í lunda. Okkur langaði að komast út í Hana og veiða þar. Við fengum leyfi hjá bændum og sóknarnefnd sem fóru á þeim tíma með ráðstöfunarvald á Smáeyjum ásamt Bjarnarey sem tilheyrðu þá Ofanbyggjurum.” Þá var enginn kofi í Hana og hafði aldrei verið, menn gistu í tjöldum niðri í helli eða Bóli eins og það var kallað. „Í Hana höfðu menn stundað veiðar á lunda áður en fóru alla jafna og veiddu þar fyrir lundatímann sjálfan. Eyjan var einnig notuð undir vetrarbeit en svo var féð sótt á vorin til að hámarka fýlavarp sem var mikið á svæðinu. Við héldum áfram að stunda þetta og var legið í tjöldum í nokkur ár áður en við fórum að pæla huga að kofa. Við ræddum jarðarbændurna og safnaðarnefndina og fengum leyfi til þess að ráðast í framkvæmdir sem stóðu seinni hluta sjöunda áratugarins. Við vorum þrír, sem stóðum í þeim framkvæmdum, ég, Gunnar rafvirki og Siggi í Stakka- gerði. Upp úr 1970 bættust þeir svo við félagið Hörður Hilmisson og Björn Karlsson og vorum við fimm fram að gosi.” Hvergi nærri hættur eftir 4000 ferðir á Heimaklett Ber skylda til að passa upp á þessar perlur og skila þeim í góðu ástandi til komandi kynslóða Á leið í Hana úr Kaplagjótu Svavar, Már, Ingi Tómas og Baldvin. Fyrri kofinn í smíðum Hörður, Már, Gunnar. SINDRI ÓLAFSSON sindri@eyjafrett ir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.