Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.10.2023, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 19.10.2023, Blaðsíða 2
„Við Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Gísli Stefánsson bæjarfulltrúi, höfundar skýrslunnar ákváðum strax að fylgja ábendingum eftir þannig að við afhendingu lægju fyrir ákvarðanir stofnana sem um málin fjalla. Það hefur að stórum hluta tekist,“ sagði Árni Sigfússon formaður starfshóps um eflingu samfélagsins í Vestmannaeyjum sem skilaði af sér mánudaginn 9. október sl. „Samtal okkar við forystumenn Landsnets, um lagningu tveggja rafstrengja þýðir að þeir eru komnir á framkvæmdaborðið. Það var alls ekki sjálfgefin lausn að hætta að vandræðast með bilaðan streng, heldur ákveða að leggja tvo nýja strengi 2025. Hið sama á við um nýja vatnsleiðslu til Eyja. Þar þarf að styðja HS veitur í að fá fram breytingar svo þau geti svarað fyrir þá fjárfestingu eigenda sinna að leggja í svo mikla fjárfestingu. Vatn til Eyja er almannavarnarmál. Þess vegna þarf þingið að stíga inn í og tryggja að framkvæmda- aðilanum sé mögulegt að gera þetta. Eyjar eiga ekki að þurfa að greiða óeðlilega hátt gjald fyrir búsetu sína, rétt eins og varnir á snjóflóðasvæðum eru greidd úr sameiginlegum sjóðum. Þetta er mál sem þingmenn Suðurkjör- dæmis þurfa að berjast fyrir,“ sagði Árni. Hann sagði víða verið að gera góða hluti í fullvinnslu sjáv- arafurða. „Hugsjónamaðurinn Hallgrímur Steinsson hjá Laxey, fjárfestar og samstarfsmenn eru verðlaunadæmi um allt þetta. Ekkert sveitarfélag hefur enn tekið af skarið með að lýsa yfir að það stefni að grænni framtíð sem samfélag. Það væri því sterk yfirlýsing.“ „Guðlaugur Þór skildi ekki fyrst hvers vegna hann sem umhverfis- ráðherra ætti að fjalla um jarðgöng til Eyja. Við bentum honum á þau sem lagnakjallara fyrir alla innviðina sem hluta umhverfis- og orkumála, sem yrði auðvelt að viðhalda og hann samþykkti.“ Á léttari nótunum Árni segir ráðherra hafa mikinn áhuga á orkuframleiðslu og eigin orkulausnum í Eyjum. „Það eru ábendingar um það í skýrslunni. Í tilefni nýafstaðinnar Bjarg- veiðimannahátíðar langaði mig þó, Bjarnareyingnum, að stríða nágrönnum okkar og leggja til að vindmyllur verði settar upp í Elliðaey enda fátt þar um lunda. Írísi og Gísla þótti það grín alls ekki við hæfi, ekki mér heldur. Fyrir þessa húmorstilraun fékk ég þó birta mynd af Bjarnarey á forsíðu skýrslunnar. Forseti bæjarstjórnar, Palli Magg bróðir í Bjarnarey var ánægður með hana. Margt meira um þetta verkefni að segja síðar. En í alvöru, ég vona að efni skýrslunnar marki sterk og jákvæð spor framundan. Við vor- um heppin að hafa Írisi og Gísla um borð og njóta ábendinga frá á fjórða tug sérfróðra,“ sagði Árni að endingu. Útgefandi: Eyjasýn ehf. - kt. 480278-0549 Ægissgötu 2 - 900 Vestmannaeyjum. Ritstjórn og ábyrgð: Ómar Garðarsson og Sindri Ólafsson - omar@eyjafrettir.is - sindri@eyjafrettir.is. Umbrot: Leturstofa Vestmannaeyjum ehf. Ljósmyndir: Blaðamenn Eyjafrétta. Prentun: Stafræna Prentsmiðjan ehf. Sími: 481 1300 Netfang: frettir@eyjafrettir.is. Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is Veffang: www.eyjafrettir.is EYJAFRÉTTIR er áskriftarblað. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Guðlaugur og Árni. Tveir rafstrengir og vatnsleiðsla árið 2025? Nýtt skipurit ÍBV Skipað var í sáttanefnd ÍBV íþróttafélags desember síðastliðinn vegna ósættis sem skapaðist um skiptingu tekna innan félagsins. Nefndina skipa þau Arnar Péturs- son Unnur Sigmarsdóttir, Ingi Sigurðsson og Jón Óskar Þórhalls- son auk Vilhjálms Egilssonar sem leiddi viðræðurnar. Sæunn Magn- úsdóttir formaður Aðalstjórnar ÍBV sagði í samtali við Eyjafréttir nefndina nú hafa lokið störfum og segist ánægð með niðurstöðuna. „Nefndin náði sátt um skiptingu tekna auk þess sem hún setti fram tillögur um uppstokkun á verkaskiptingu milli Aðalstjórnar og deilda sem miðast við að dreifa betur ábyrgð og ná meiri slagkrafti í starf deilda með áherlsu á barna- og unglingastarf.“ Hverjar eru stærstu breytingarnar sem þið ætlið að ráðast í eftir vinnu nefndarinnar? „Verksvið Aðalstjórnar verður þrengt en verkefni færð til deilda. Deildirnar munu bera ábyrgð á barna- og unglingastarfi og öllum rekstri sem tengist íþróttastarfi öðru en mótum. Skipuriti félagsins verður breytt þannig að fram- kvæmdastjórar deilda færast ofar í skipurit og bera ábyrgð á rekstri og fjárhagsáætlanagerð deilda sem áður lá hjá sjálfboðaliðum í hand- knattleiks- og knattspyrnuráði.“ Sæunn segir þetta fyrirkomulag skila meiri yfirsýn og aðhaldi í rekstri og fjármálum félagsins. Betra starfsumhverfi þar sem boðleiðir verða styttri og fram- kvæmdastjórarnir ættu að geta hlaupið undir bagga hver með öðrum. „Þetta kemur til með að færa ábyrgð á fjárhag og fjárhags- áætlanagerð frá sjálfboðaliðum yfir á launaða starfsmenn sem skapar vonandi betri umgjörð um sjálfboðastarf þar sem allir geta lagt sitt af mörkum til jákvæðra og gefandi verkefna. Þá er barna- og unglingastarf fært undir deild- irnar og því í raun þrír fram- kvæmdastjórar sem skipta með sér ábyrgð á því í stað eins áður.“ Sæunn segist binda vonir við að þessar breytingar verði félaginu til heilla. „Ég er bjartsýn en við þurf- um öll að leggjast á eitt og vinna að hag félagsins okkar. Breytingar sem þessar gerast ekki á einni nóttu en ég hef trú á því að þær séu af hinu góða og muni skila sér til lengri tíma litið.“

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.