Fréttir - Eyjafréttir - 19.10.2023, Page 2
„Við Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri
og Gísli Stefánsson bæjarfulltrúi,
höfundar skýrslunnar ákváðum
strax að fylgja ábendingum eftir
þannig að við afhendingu lægju
fyrir ákvarðanir stofnana sem um
málin fjalla. Það hefur að stórum
hluta tekist,“ sagði Árni Sigfússon
formaður starfshóps um eflingu
samfélagsins í Vestmannaeyjum
sem skilaði af sér mánudaginn 9.
október sl.
„Samtal okkar við forystumenn
Landsnets, um lagningu tveggja
rafstrengja þýðir að þeir eru
komnir á framkvæmdaborðið. Það
var alls ekki sjálfgefin lausn að
hætta að vandræðast með bilaðan
streng, heldur ákveða að leggja
tvo nýja strengi 2025. Hið sama
á við um nýja vatnsleiðslu til
Eyja. Þar þarf að styðja HS veitur
í að fá fram breytingar svo þau
geti svarað fyrir þá fjárfestingu
eigenda sinna að leggja í svo
mikla fjárfestingu.
Vatn til Eyja er almannavarnarmál.
Þess vegna þarf þingið að stíga
inn í og tryggja að framkvæmda-
aðilanum sé mögulegt að gera
þetta. Eyjar eiga ekki að þurfa að
greiða óeðlilega hátt gjald fyrir
búsetu sína, rétt eins og varnir á
snjóflóðasvæðum eru greidd úr
sameiginlegum sjóðum. Þetta er
mál sem þingmenn Suðurkjör-
dæmis þurfa að berjast fyrir,“
sagði Árni.
Hann sagði víða verið að gera
góða hluti í fullvinnslu sjáv-
arafurða. „Hugsjónamaðurinn
Hallgrímur Steinsson hjá Laxey,
fjárfestar og samstarfsmenn eru
verðlaunadæmi um allt þetta.
Ekkert sveitarfélag hefur enn
tekið af skarið með að lýsa yfir
að það stefni að grænni framtíð
sem samfélag. Það væri því sterk
yfirlýsing.“
„Guðlaugur Þór skildi ekki fyrst
hvers vegna hann sem umhverfis-
ráðherra ætti að fjalla um jarðgöng
til Eyja. Við bentum honum á
þau sem lagnakjallara fyrir alla
innviðina sem hluta umhverfis- og
orkumála, sem yrði auðvelt að
viðhalda og hann samþykkti.“
Á léttari nótunum
Árni segir ráðherra hafa mikinn
áhuga á orkuframleiðslu og eigin
orkulausnum í Eyjum. „Það eru
ábendingar um það í skýrslunni.
Í tilefni nýafstaðinnar Bjarg-
veiðimannahátíðar langaði mig
þó, Bjarnareyingnum, að stríða
nágrönnum okkar og leggja til
að vindmyllur verði settar upp í
Elliðaey enda fátt þar um lunda.
Írísi og Gísla þótti það grín alls
ekki við hæfi, ekki mér heldur.
Fyrir þessa húmorstilraun fékk
ég þó birta mynd af Bjarnarey
á forsíðu skýrslunnar. Forseti
bæjarstjórnar, Palli Magg bróðir í
Bjarnarey var ánægður með hana.
Margt meira um þetta verkefni að
segja síðar. En í alvöru, ég vona
að efni skýrslunnar marki sterk og
jákvæð spor framundan. Við vor-
um heppin að hafa Írisi og Gísla
um borð og njóta ábendinga frá á
fjórða tug sérfróðra,“ sagði Árni
að endingu.
Útgefandi: Eyjasýn ehf. - kt. 480278-0549
Ægissgötu 2 - 900 Vestmannaeyjum.
Ritstjórn og ábyrgð: Ómar Garðarsson og Sindri
Ólafsson - omar@eyjafrettir.is - sindri@eyjafrettir.is.
Umbrot: Leturstofa Vestmannaeyjum ehf.
Ljósmyndir: Blaðamenn Eyjafrétta.
Prentun: Stafræna Prentsmiðjan ehf.
Sími: 481 1300
Netfang: frettir@eyjafrettir.is.
Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is
Veffang: www.eyjafrettir.is
EYJAFRÉTTIR er áskriftarblað.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Guðlaugur og Árni.
Tveir rafstrengir og
vatnsleiðsla árið 2025?
Nýtt skipurit ÍBV
Skipað var í sáttanefnd ÍBV
íþróttafélags desember síðastliðinn
vegna ósættis sem skapaðist um
skiptingu tekna innan félagsins.
Nefndina skipa þau Arnar Péturs-
son Unnur Sigmarsdóttir, Ingi
Sigurðsson og Jón Óskar Þórhalls-
son auk Vilhjálms Egilssonar sem
leiddi viðræðurnar. Sæunn Magn-
úsdóttir formaður Aðalstjórnar
ÍBV sagði í samtali við Eyjafréttir
nefndina nú hafa lokið störfum og
segist ánægð með niðurstöðuna.
„Nefndin náði sátt um skiptingu
tekna auk þess sem hún setti
fram tillögur um uppstokkun á
verkaskiptingu milli Aðalstjórnar
og deilda sem miðast við að dreifa
betur ábyrgð og ná meiri slagkrafti
í starf deilda með áherlsu á barna-
og unglingastarf.“
Hverjar eru stærstu breytingarnar
sem þið ætlið að ráðast í eftir
vinnu nefndarinnar? „Verksvið
Aðalstjórnar verður þrengt en
verkefni færð til deilda. Deildirnar
munu bera ábyrgð á barna- og
unglingastarfi og öllum rekstri
sem tengist íþróttastarfi öðru
en mótum. Skipuriti félagsins
verður breytt þannig að fram-
kvæmdastjórar deilda færast ofar
í skipurit og bera ábyrgð á rekstri
og fjárhagsáætlanagerð deilda sem
áður lá hjá sjálfboðaliðum í hand-
knattleiks- og knattspyrnuráði.“
Sæunn segir þetta fyrirkomulag
skila meiri yfirsýn og aðhaldi í
rekstri og fjármálum félagsins.
Betra starfsumhverfi þar sem
boðleiðir verða styttri og fram-
kvæmdastjórarnir ættu að geta
hlaupið undir bagga hver með
öðrum. „Þetta kemur til með að
færa ábyrgð á fjárhag og fjárhags-
áætlanagerð frá sjálfboðaliðum
yfir á launaða starfsmenn sem
skapar vonandi betri umgjörð um
sjálfboðastarf þar sem allir geta
lagt sitt af mörkum til jákvæðra og
gefandi verkefna. Þá er barna- og
unglingastarf fært undir deild-
irnar og því í raun þrír fram-
kvæmdastjórar sem skipta með sér
ábyrgð á því í stað eins áður.“
Sæunn segist binda vonir við að
þessar breytingar verði félaginu til
heilla. „Ég er bjartsýn en við þurf-
um öll að leggjast á eitt og vinna
að hag félagsins okkar. Breytingar
sem þessar gerast ekki á einni
nóttu en ég hef trú á því að þær
séu af hinu góða og muni skila sér
til lengri tíma litið.“