Fréttir - Eyjafréttir - 19.10.2023, Qupperneq 14
14 | | 19. október 2023
„Ég er ráðherrabílstjóri í
fæðingarorlofi . Er í mastersnámi
í áfallastjórnun við Háskólann á
Bifröst, hliðarverkefni við að ala
upp barn,“ segir Eyrún Haralds-
dóttir verkefnastjóri starfakynn-
ingar sem verður í Þekkingar-
setrinu 16. nóvember nk. „Ég
vann í fimm ár í ferðaþjónustu og
þar á undan vann ég í 15 ár með
unglingum, bæði í félagsmið-
stöð og í Fjölsmiðjunni,“ bætir
Eyrún við sem hefur starfað með
Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur
í nokkur ár. Segir mastersnámið
eðlilegt framhald og nýja áskorun.
Ein jólin brá hún sér í grunnbúðir
Everest sem sýnir að Eyrún gerir
það sem henni dettur í hug.
„Maður finnur sér alltaf ný ver-
kefni og næsta skref er Starfa-
kynningin 16. nóvember. Er það
í þriðja skiptið sem kynningin
er haldin í Vestmannaeyjum.
Kynningin verður í Þekkingar-
setrinu og húsnæði Visku. Síðast
var hún árið 2018. Þá kynntu 25
fyrirtæki og stofnanir í Eyjum
starfsemi sína fyrir nemendum
Grunnskólans og Framhaldsskól-
ans og öllum Eyjabúum. Hún
heppnaðist mjög vel og ekki síður
fyrsta kynningin sem var uppi í
Framhaldsskóla.“
Eyrún hefur haft samband við
flest fyrirtæki og stofnanir í
bænum og kemur fjöldinn á óvart.
„Eflaust hef ég gleymt einhverjum
en þau sem ég hef haft samband
við eru yfir 130. Bið ég þá sem
ég ekki hafa heyrt frá mér að hafa
samband því auðvitað viljum fá
sem flesta. Ég hefði viljað vera
búin að fá meiri viðbrögð frá
þeim sem ég hef haft samband
við og væri gaman að heyra frá
fleirum, fyrirtækjum, einyrkjum,
frumkvöðlum og stofnunum.
Starfakynningin verður í einn dag.
Fyrripart dags koma efri bekkir
Grunnskólans og nemendur úr
Framhaldsskólanum og seinni
partinn er opið fyrir almenning.
Er full ástæða til að hvetja fólk til
að mæta og kynna sér fjölbreytt
og öflugt atvinnulíf í Vestmanna-
eyjum.“
Persónuleg og lifandi kynning
Tilgangurinn með starfakynn-
ingunni er stefnumót atvinnulífs-
ins við starfsmenn framtíðarinnar,
íbúa og önnur fyrirtæki. Fyrirtæki
eru hvött til að vera með, með
fleiri þátttakendum verður kynn-
ingin áhugaverðari og árángurs-
ríkari. Markmiðið er persónuleg
og lifandi kynning á starfsgreinum
og starfsemi fyrirtækja í bænum.
Með áherslu á fjölbreytni þeirra
og jafnframt að skapa umræðu
um þróunina. Kynningin verði
stefnumót ólíkra fyrirtækja sem
gæti jafnvel leitt til samstarfs.
Gefa nemendum skólanna tæki-
færi til að fræðast um atvinnulíf
í Vestmannaeyjum og þróun þess
og sjá hvaða tækifæri eru í boði í
heimabyggð.
„Setrið hentar einstaklega vel
fyrir kynningu eins og þessa. Flott
staðsetning en um leið getur fólk
fræðst um að það sem er að gerast
í húsinu. Nóg pláss á tveimur
hæðum og fyrir mig er þetta mjög
spennandi. Það eru 20 ár síðan ég
flutti héðan og gaman að sjá að
í Vestmannaeyjum er allt til alls
og meira til. Mikil uppbygging,“
sagði Eyrún sem hvetur þá sem
ekki fengu póst að hafa samband,
hægt er að senda póst á starfa-
kynning@gmail.com. „Eins ef
fólk er með einhverjar spurn-
ingar, endilega hafið samband og
vonandi verður fullt hús. Þetta er
tækifæri til að sýna hvað hægt er
að gera í Vestmannaeyjum.“
Stefnumót við framtíðina
Starfakynning í Þekkingarsetrinu 16. nóvember:
KÓTILETTUKLÚBBUR
VESTMANNAEYJA
Hin geysivinsæla
KÓTILETTUVEISLA 2023 verður haldin
í Höllinni fimmtudaginn 26. október.
Húsið opnað kl. 19.00, borðhald hefst kl. 19.30
Að ðgangseyrir aðeins kr. 5000
Þið sem hafið áhuga að taka þátt í
herlegheitunum þurfið að leggja inn á reikning
númer 0185 05 001957 Kt.: 140157-5979 fyrir
þriðjudaginn 24. október
til að hægt verði að panta hráefni
miðað við fjölda.
Allur afgangur eftir kostnað rennur
til góðra málefna hér í Eyjum.
SAGNALIST, SKEMMTUM OG GAMAN GAMAN
BORÐUM TIL GÓÐS!
LI
ST
Ó
20
23
Veislustjóri:
Bjarni Ólafur Guðmundsson, Daddi
Eyrún með soninn Harald.
Myndir frá Starfakynningunni í Setrinu 2018.