Fjarðarfréttir - 05.10.2023, Page 15
www.fjardarfrettir.is 15FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2023
Hafnfirðingurinn Ásta Eyjólfsdóttir
er Þrautakóngur Ratleiks Hafnarfjarðar
2023 sem lauk 26. september eftir að
hafa staðið yfir í allt sumar.
Til að eiga möguleika á að verða
Þrautakóngur Ratleiksins þarf við
komandi að hafa fundið öll 27 ratleiks
merkin sem komið hafði verið fyrir við
áhugaverða staði vítt og breitt um
bæjarlandið og þó mest í upplandinu.
Sumarið, ekki síst júlí og ágúst, var
einkar gott fyrir ratleiksunnendur sem
sennilega var með í gera þetta að fjöl
mennasta Ratleik Hafnarfjarðar frá
upphafi. Eru þá aðeins taldir þeir sem
fundu a.m.k. 9 merki og skiluðu
úrlausnarblaði.
Alls skiluðu 265 þátttakendur inn
lausnum og 133 fundu öll 27 merkin og
geta því kallað sig þrautakóng Aðeins í
fyrra kláruðu fleiri allan leikinn en þá
kláruðu 6 fleiri allan leikinn. Heildar
þátttakan í sumar var því um 14% meiri
en í fyrra sem líka var metár.
69 fóru á a.m.k. 18 staði sem er 77%
fjölgun frá í fyrra og geta þeir kallað sig
göngugarp.
63 fóru á a.m.k. 9 staði sem er fjölgun
frá í fyrra og geta þeir kallað sig léttfeta.
Alls mættu um 140 þátttakendur á
uppskeruhátíð Ratleiks Hafnarfjarðar,
sem haldin var í í Hafnarborg sl.
fimmtudag. Á síðasta ári var met
þátttaka og yfirfylltist Apótek Hafnar
borgar svo nú farið í aðalsal Hafnar
borgar, svo mikil var þátttakan.
ÞÁTTTAKENDUR VÍÐA AÐ
Þátttakendur í Ratleiknum eru af öll
um aldri og er þetta vinsæll fjöl skyldu
leikur. Fólk kemur víða að og mátti sjá
þátttakendur frá Selfossi, Vogum,
Mosfellsbæ, Reykjavík, Seltjarnarnesi,
Garðabæ og Kópavogi og þó langflestir
komi frá Hafnarfirði þá mátti líka sjá
þátttakendur frá Noregi og Danmörku.
ÞRAUTAKÓNGUR 2023
1. Ásta Eyjólfsdóttir (62),
2. Þóroddur S. Skaptason (70)
3. Brynja Sif Gunnarsdóttir (7)
GÖNGUGARPUR 2023
1. Þór Sigurðsson, Seltjarnarnesi
2. Birkir Ingi Jónsson (15)
3. Guðný Steina Erlendsdóttir (65)
LÉTTFETI 2023
1. Ísak Móri Helgason (10), Kópavogi
2. Elín Margrét Guðmundsdóttir (54),
Selfossi
3. Jóhanna Gyða Stefánsdóttir (59)
Fjallakofinn gaf aðalvinninginn í ár,
Scarpa gönguskó fyrir verðlaunahafa
Þrautakóngs.
M Design í Firði gaf aðalvinninga í
flokki Göngugarps og Léttfeta og
Fjallakofinn bætti þar við höfuðljósi til
Léttfetans og göngustöfum til
Göngugarpsins.
Að auki fengu tveir í hverjum flokki
viðurkenningu, einn í hverjum flokki
fékk sundkort frá Sundlaugum Hafnar
fjarðar, og hinir fengu Gjafakort frá
Fjarðarkaupum, máltíð fyrir tvo á Von
mathús og gjafabréf frá Altis.
FJÖLMARGIR
STYRKTARAÐILAR
Það er Hönnunarhúsið ehf. sem gefur
út leikinn en Rio Tinto á Íslandi er
aðalstyrktaraðili leiksins auk Hafnar
fjarðarbæjar sem er samstarfsaðili um
útgáfu leiksins.
Ómar Smári Ármannsson, sem
heldur úti fróðleiksvefnum ferlir.is
hefur veitt gríðarlega aðstoð við gerð
leiksins en hann er meðal fróðustu
manna um Reykjanesið.
Þá voru veitt samtals 31 útdráttar
verðlaun en þau voru gefin af Sund
laugum Hafnarfjarðar, Altis, Von,
Burgerinn, Píluklúbbnum, Ban kúnn,
Tilverunni, Rif, Krydd, Músik og sport,
Gróðrarstöðinni Þöll, Snjóís, Fjalla
kofanum og Gormur.is Þá styrktu
Landsnet, HSveitur og Hberg leikinn.
VERTU MEÐ
Næstu Ratleikur hefst í júní 2024.
Fylgstu með á ratleikur.fjardarfrettir.is
Nánari frétt og myndir má sjá á
www.fjardarfrettir.is
Metþátttaka í Ratleik Hafnarfjarðar í ár
140 manns mættu á uppskeruhátíð leiksins sl. fimmtudag
Vinningshafar í Ratleik Hafnarfjarðar 2023 ásamt Guðna Gíslasyni, umsjónarmanni leiksins, frá vinstri: Elín Margrét,
Þóroddur, Brynja Sif, Ásta, Ísak Móri, Guðný Steina, fulltrúi Birkis Inga, Þór og Jóhanna Gyða.
Viltu losna við grenitré úr
þínum garði?
Hafnarfjarðarbær býðst til að fjarlægja grenitré úr görðum íbúa,
þeim að kostnaðarlausu. Tré sem uppfylla ákveðin skilyrði verður
komið fallega fyrir á opnum svæðum á aðventunni. Áhugasamir eru
hvattir til að hafa samband.
Nánar á hafnarfjordur.is
Alls voru veitt níu verðlaun og 31 útdráttarvinningur sem fyrirtæki gáfu af miklum rausnarskap.