Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 23.02.2024, Page 22
22 Framkvæmdafréttir nr. 729
1. tbl. 32. árg.
Rekstur jarðganga
„Að reka jarðgöng felst í raun um að halda mannvirkinu
opnu og öruggu,“ segir Steinþór. Meðal þess sem fellur
undir rekstur jarðganga er viðhald á öllum búnaði,
merkingum, stikum og malbiki.
Jarðgöng eru hluti af vegakerfi Vegagerðarinnar.
Þjónustustöðvar á hverjum stað sjá um rekstur
jarðganga á sínu svæði í samvinnu við vaktstöðvar
Vegagerðarinnar sem hafa yfirsýn yfir öll jarðgöng.
Einnig eru samningar við þjónustuaðila sem sinna
sérhæfðari verkum en Hvalfjarðargöngin eru einu
göngin þar sem öll þjónustan er boðin út.
Tvisvar á ári eru jarðgöng þrifin með sérstökum
þvottabíl. „Hann sprautar vatni á veggi og loft til
að safna saman ryki sem sest í sprautusteypuna.
Síðan eru vegirnir þrifnir en steyptu axlirnar gera
það að verkum að þrifin verða mun auðveldari og
árangursríkari.“
Vaktkerfi jarðganga
Rekið er vaktkerfi fyrir jarðgöng þar sem hægt er að
fylgjast með öllum búnaði í jarðgöngum. Kerfið gefur
til kynna þegar eitthvað er að, til dæmis ef upp koma
frávik eða villur. Starfsfólk vaktstöðva Vegagerðarinnar
fylgist stöðugt með vaktkerfinu og þjónustustöðvarnar
fylgjast reglulega með. Með kerfinu má einnig fjarstýra
ýmsum aðgerðum. Til dæmis er hægt að loka göngum
eða kveikja á blásurum.
Daglegt eftirlit
Vegagerðin vinnur eftir vottuðu gæðakerfi en í því
er sérstakt gæðakerfi fyrir jarðgöng. „Í því felst
meðal annars daglegt eftirlit þar sem starfsmenn
Vegagerðarinnar eða verktakar á hennar vegum aka
í gegnum göngin og athuga með sjónskoðun hvort
allt sé með felldu,“ lýsir Steinþór en einnig er farið
í skipulagt eftirlit samkvæmt gæðakerfi á tveggja
mánaða, sex mánaða og árs fresti. Þá er einnig sífellt
eftirlit í gegnum myndavélar og vaktkerfið.
„Á fimm ára fresti eru gerðar óháðar úttektir á
göngunum. Þá fáum við skýrslu þar sem taldar eru upp
aðgerðir sem þarf að fara í.“
↑
Almannaskarðsgöng. Hér er búið að steypa
kantstein og axlir í göngunum.
↑
Vaktkerfi jarðganga gerir viðvart þegar frávik verða. Með
kerfinu má einnig fjarstýra ýmsum aðgerðum. Til dæmis er
hægt að loka göngum eða kveikja á blásurum.
↑
Jarðgöng eru reglulega þrifin enda mikil
óhreinindi sem setjast í sprautusteypuna.
↑
Dýrafjarðargöng.