Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 08.03.2012, Side 4

Bæjarblaðið Jökull - 08.03.2012, Side 4
Northern Wave hátíðin var haldin í fimmta sinn um síðustu helgi. Hátíðin fór vel fram en rúmlega 200 manns sóttu hátíðina. Verðlaunaafhendingin var haldin á lokadegi hátíðar­ innar á sunnudag og voru veitt verðlaun að upphæð samtals 200.000 krónur, fyrir bestu alþjóðlegu stuttmyndina voru veitt 80.000 kr. verðlaun og hlaut pólska stuttmyndin Last Train eftir Weronika Tofilska þau verðlaun. 80.000 kr. verðlaun hlaut einnig Skaði eftir Börk Sig­ þórsson sem besta íslenska stutt myndin og fyrir besta íslenska tónlistarmyndbandið voru veitt verðlaun að upphæð 40.000kr og þau hlaut Inga Birgisdóttir en hún leikstýrði Smashed Birds með Sóley en Gogoyoko.com gaf einnig 50 evru inneign á Gogoyoko.com auk 12 mánaða premium áskrift á síðuna. Hinn grundfirski Lavaland hannaði verðlauna­ gripi úr endurunnu áli og hrauni úr Berserkjahrauni. Í dómnefnd voru þær Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri, Elísa­ bet Ronaldsdóttir klippari og franska kvikmyndatökukonan Isabelle Razavet. Í dómnefnd tónlistarmyndbanda var hljóm­ sveitin Magga Stína og Hringir en þau spiluðu einnig fyrir dansi á laugardagskvöldið á hátíðinni. Einnig var haldin Fiski rétta­ keppni á vegum hátíðar innar þar sem keppendur buðu upp á fiskiréttu í grundfirsku hráefni. Ellefu lið tóku þátt og gestir hátíðarinnar kusu svo um besta réttin. Sóknarprestur Grundarfjarðar Aðalsteinn Þor­ valdsson og konan hans Lína Hrönn Þorkelsdóttir voru yfir­ gnæfandi sigurvegara með lang flest atkvæði. Í verðlaun voru gjafabréf á bæði Fisk­ markað og Grillmarkað Hrefnu Sætran. Northern Wave lokið  Ástkær sonur minn, bróðir okkar og mágur THEODÓR ÁRNI EMANÚELSSON Grundarbraut 18, Ólafsvík Lést af slysförum föstudaginn 2. mars á heimili sínu Útförin fer fram frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 10. mars kl 14.00 Jarðsett verður á Búðum. Emanúel Ragnarsson Magnús Guðni Emanúelsson       Lára Hallveig Lárusdóttir Unnur Emanúelsdóttir og systkinabörn Frá fiskréttakeppninni. Lavaland hannaði verðlauna gripi úr endurunnu áli og hrauni úr Ber­ serkjahrauni. Íbúar Snæfellsbæjar áttu ekki von á að sjá ferðamann á reiðhljóli. Blaðamaður rakst á hann á sunnudagskvöld þar sem hann sat á Hobbitanum í Ólafsvík að snæðingi. Þetta er Tom Sercu sem er frá Belgíu og vinnur 5 mánuði á ári á hótelum og ferðast hina 7. Ísland varð fyrir valinu þetta árið og ætlar hann að ferðast hér um næstu 6 mánuði á hjólinu sínu og gista í tjaldi eða hóteli ef svo ber undir. Fannst honum ekki tiltökumál þó veðrið væri oft kalt og hvasst. Ferðin er ekki skipulögð neitt sérstaklega hjá Tom heldur lætur hann veður og aðstæður ráða ferð t.d. gisti hann aðfaranótt sunnudags á Kast gesthouse og hjólaði svo suður fyrir jökul, skoðaði Arnarstapa, Hellnar og fleiri staði. Á mánudeginum var ferðinni heitið í Stykkishólm þar sem hann ætlaði að ákveða framhaldið þegar hann væri búin að skoða áætlun Baldurs. Þegar blaðamaður talaði við hann var hann t.d. ekki búin að ákveða hvar hann ætlaði að gista um nóttina og klukkan orðin 20:00 og farið að dimma. Tom er mjög hrifin af landinu og finnst gaman að ferðast hér um. þa Á reiðhjóli í byrjun mars

x

Bæjarblaðið Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.