Bæjarblaðið Jökull - 08.03.2012, Side 5
Það styttist í biskupskjör og til
þessa hlutverks landshirðis
þjóðkirkju Íslands hafa 8
kirkjunnar þjónar gefið kost á sér.
Sem einn þeirra er þann hóp fylla
skrifa ég þessar línur öllum þeim
sem kynnu að hafa hug á
málefnum kirkjunnar í landinu.
Skynsemi er huglæg viðleitni
manna til að höndla tilveru sína
og skilja samhengi þeirra
fyrirbæra sem þeim mæta. Trúin
er ekki skynsemdarlaus. Hún er
þó umfram allt annað lífssamband
manna við Skaparann í nafni Jesú
Krists. Þjóðkirkjan glímir nú í
anda trúar og skynsemi við þá
stöðu sína að fleiri og stærri
spurningarmerki eru sett við þátt
hennar í samfélaginu og
þjóðskipulaginu. Í þeirri stöðu
þarf hún ekki aðeins að leita vel
orðaðra svara heldur umfram
annað að grípa til viðbragða sem
í senn sæma henni og birta svar
hennar landsmönnum.
Þannig er það með sérhvern
þann veg sem mönnum er boðið
að ganga, að ekki er nóg að tala
um hann heldur þarf að benda á
hann og helst að birta þeim hann.
Öll höfum við sem gefið höfum
kost á okkur í embætti Biskups
Íslands talað í einlægni um að hin
breytta staða þjóðkirkjunnar
brenni nokkuð á okkur og ekki
síst tilefni hennar, hið dvínandi
traust landsmanna á henni. Ég
hef lagt á það áherzlu með
þessum vinum mínum öllum að
kirkjan þurfi að hyggja betur að
lífserindi sínu við menn en að
auki bent á það að embætti
Biskups Íslands sé danskur arfur
sem við þurfum að gera upp við.
Ég legg til þess bæði málefnaleg
sjónarmið og svo hagnýt að þau
hljóta að koma til skoðunar á
allra næstu árum. Þau eru að
umsvif biskupsembættisins í
Reykjavík séu orðin allt of mikil,
dýr og þurftarfrek og gagnist í
litlu efni starfi kirkjunnar í
landinu öllu. Þá er það hvorki
einum manni hollt að gegna
þessu né heldur kirkjunni og
starfi hennar. Það hafa dæmin
sýnt okkur síðustu árin.
Því þarf að færa biskupsþjónustu
nær fólkinu í landshlutunum og
búa þannig um hana að söfnuðir
þjóðkirkjunnar hvarvetna njóti
hennar í ríkara mæli. Áður voru
vígslubiskupar þjóðkirkjunnar
sóknarprestar sem höfðu það
hlutverk að til þeirra mætti grípa
er vígja þyrfti nýjan biskup í
landinu, í þeim aðstæðum að
þeim sem úr biskupsstóli viki yrði
ekki við komið. Þessu hefur nú
verið breytt til hálfs, þannig að
vígslubiskuparnir sitja á Hólum
og í Skálholti með óljóst hlutverk
svo ekki sé meira sagt. Okkur ber
því að stíga skrefið til fulls hvað
þetta varðar og vinna að því að
gera embætti vígslubiskupa
fullmyndug í sjálfstæðum
biskupsdæmum.
Við þurfum ekki lengur að una
þeirri skipan sem til varð 1801 er
yfirvöld ákváðu að leggja niður
þau tvö biskupsdæmi okkar og
gerðu landið að einu kirkjustifti
af 12 í kirkju Danakonungs. Hið
fagra býr ekki ósjaldan í því sem
smærra er og unnt er að sýna
viðeigandi ræktarsemi. Hugum að
þessu í alvöru. Þetta er ekki
aðeins hægt heldur er það auðvelt
og raunar nauðsynlegt. Þessi er
tillaga mín ásamt þeirri
endurnýjun hugarfarsins sem
okkur er nauðsynlegt að tileinka
okkur í kirkjulegum efnum. Trúin
á Krist er ekki háð kerfi sem á
rætur í danska kanselíinu og
dagaði hér uppi 1944 við
lýðveldisstofnun og hefur orðið
að miklu bákni. Evangelísk
lúthersk þjóðkirkja okkar er,
hvort heldur er samkvæmt
stjórnarskrá ríkisins eða ekki, ein
og hin sama þó biskupar hennar
og umdæmi þeirra verði tvö eða
þrjú. Eitt og annað verður í þessu
efni að útfæra nánar og það segir
sig sjálft að eigi
þjóðkirkjusamfélagið að rétta úr
kútnum verður það að gerast
mjög út á meðal fólks og birtast í
orði og í verki. Þá er framtíðin
ekki kvíðaefni, heldur tilefni
fögnuðar þegar þjóðkirkjan ekki
aðeins talar heldur starfar sem
henni ber.
Með blessunarósk,
Þórir Jökull Þorsteinsson.
Biskupinn nær