Bæjarblaðið Jökull - 08.03.2012, Page 6
Níu hressir og kátir ein
staklingar úr Félagi eldriborgara
í Snæfellsbæ tóku sig saman og
skráðu sig til leiks í lífshlaupinu.
Markmið Lífshlaupsins er að
hvetja almenning til þess að
hreyfa sig og huga að sinni
hreyfingu í frítíma, heimilis
stöfum, vinnu, skóla og við val
á ferðamáta . Lífshlaupið var
haldið í fimmta sinn nú í ár.
Hópurinn frá Félagi eldri
borgara endaði í öðru sæti í
keppninni um flesta daga og
fengu glæsilegan verðlauna
skjöld fyrir, fjölbreytt hreyfing
skilaði hópnum verðlaununum
en þau eru öll dugleg að taka
þátt í ýmiskonar hreyfingu og
íþróttum, má þar m.a. nefna
sundleikfimi, dans, göngu og
boccia. Í hópakeppninni var
mikil samkeppni en þátt tóku
457 vinnustaðir með 1.542
liðum og í þeim liðum voru
samtals 11.706 þátttakendur.
jó
Í öðru sæti
Hugmyndin er að við í Átt
haga stofu Snæfellsbæjar í sam
starfi við Félag Nýrra Íslend
inga setjum upp sýningu á
Vesturlandi (Akranes/Snæ fells
bær) með hópi nýrra Íslend
inga, þar sem þeir fá tækifæri
til að kynna list sína og þeim
er gefinn vettvangur til að sýna
það sem leynist inni í
hæfileikaskápnum. Undir list
felst ljósmyndir, málverk,
skúlptúrar, handverk og fleira.
Auk þess yrðu skipulagðir
opnunartónleikar í bæði skipt
in, á Akranesi og í Snæfellsbæ,
þar sem tónlistarmenn af
erlendum uppruna kæmu
fram, með hljóðfæraleik eða
sem söngatriði, dansarar eða
annað.
Óskað er eftir þátttöku og
ábendingum um listamenn og
tónlistarmenn af erlendum
uppruna á Snæfellsnesi hafið
samband sem fyrst við Barböru
í síma 8622998 eða sendið
línu á barbara@snb.is
Opnunartónleikarnir í Snæ
fells bæ verða væntanlega þann
28. apríl, laugardag, kl 16.00
og stendur sýningin til 11. maí
2012.
Fyrir hönd Átthagastofu
Snæfellsbæjar
Barbara Fleckinger
Þjóðalist
Vesturlands
Biskup Íslands auglýsti í
byrjun febrúar laust til
umsóknar embætti sóknar
prests í Ólafsvíkur og Ingjalds
hólsprestakalli til fimm ára og
mun nýr prestur taka við þann
1. maí 2012. Umsóknarfrestur
rennur út 15. mars nk.
Séra Ragnheiður Karitas
Pétursdóttir hefur verið
sóknarprestur í Ólafsvíkur og
Ingjaldshólsprestakalli frá því
að það varð að einu prestakalli
við sameiningu í árslok 2009,
áður var sr. Ragnheiður prestur
í Ingjaldshólsprestakalli. Sr.
Ragnheiður hefur ráðið sig til
starfa í Noregi og lætur af
störfum um næstu mánaðarmót,
til að brúa bilið þangað til nýr
prestur verður ráðinn hefur
verið samið við sr. Aðalstein
Þorvaldsson í Grundarfirði og
sr. Guðjón Skarphéðinsson á
Staðastað um að sinna
sóknarbörnum í Ólafsvíkur og
Ingjaldshólsprestakalli.
jó
Auglýst eftir
presti
Smáauglýsing
Til sölu
Rauður vel með farinn svefnsófi úr Húsgagnahöllinni til sölu. Stærð 2m x 90cm,
flauelsáklæði, lausir bakpúðar. Verðhugmynd 50.000.
Upplýsingar í síma 436 6843