Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2004, Blaðsíða 8

Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2004, Blaðsíða 8
þetta svo hræðileg tala. Á íslandi er talað um 75% örorku eða minna. Það var auðvelt að ganga frá öllurn pappírum í þjóðskrá þegar við flutt- umst til Noregs, en hins vegar komst ég aldrei á skrá þar sem öryrki. Ég vildi vera inni í kerfinu, m.a. til að fá ýmsan afslátt sem öryrkjum stóð til boða, sem og stuðning við at- vinnuleit, en það tókst aldrei. Kerfið þeirra er ólíkt kerfinu hér heima og á endanum gafst ég upp.“ Guðbjörg segist hafa heyrt marga Islendinga tala um hversu hár ör- orkulífeyrir sé í Noregi og hvort þeir ættu ekki bara að flytja þangað. Málið sé hins vegar ekki svo einfalt. „Fólk áttar sig ekkert á því að það heldur sínum íslenska örorkulífeyri þrátt fyrir að það flytji á milli landa. Breytingin var gerð eftir að EES, evrópska efnahagssvæðið, kom á. Áður fyrr fengu íbúar sem fluttu frá einu norrænu landi til annars lífeyri frá því landi þar sem það hafði búið í að mig minnir fjögur ár. Eftir að ég flutti aftur til Islands fékk ég reynd- ar þær upplýsingar hjá Trygginga- stofnun að eftir þriggja ára dvöl í Noregi átti ég rétt á að fá greiddan mismuninn af lífeyrinum frá íslandi og Noregi, þ.e. frá kerfinu í Noregi.“ Að sögn Guðbjargar eru greiðslur í lífeyrissjóð í Noregi hluti af skatt- greiðslum. „Þar er einn miðlægur lífeyrissjóður og hann er hjá ríkinu. Tekjuskattsstofn hvers og eins segja því til um hvað viðkomandi er búinn að safna miklu í lífeyrissjóð og hve háar ellilífeyrisgreiðslumar verða. Svipað gildir um örorkulífeyrinn. Sá sem hefur haft há laun til skatts og verður öryrki fær töluvert hærri örorkulífeyrisgreiðslur úr þessum sama sjóði og sá sem hefur aldrei getað unnið neitt. Greiðslurnar geta þá numið allt að 180 þúsund krónum Að sögn Guðbjargar er erfitt að segja til um hvort maður er betur staddur í einu landifrekar en öðru, það sé svo margt sem þurfi að taka með í reikninginn. „Persónulega finnst mér það koma mjög svipað út að búa á Is- landi og í Noregi.“ Mynd/kmh. á mánuði. íslendingar reka margir hverjir upp stór augu við þessar upp- hæðir og hugsa sér gott til glóðar- innar. Þeir gera sér hins vegar ekki grein fyrir því að einungis þeir sem hafa haft háar tekjur áður en þeir verða öryrkjar fá þessar greiðslur. Á Islandi er aldrei talað um hvað fólk fær úr sínum eigin lífeyrissjóðum. Fólk hér er með lágmarkstryggingu hjá Tryggingastofnun ríkisins, síðan er um að ræða viðbót ef viðkomandi hefur unnið sér inn einhver réttindi annars staðar. Aftur á móti eru það ekki opinberar tölur eins og greiðs- lur frá TR, þannig að ekki er allt sem sýnist. Annað, sem margir athuga ekki, þegar verið er að bera saman örorku- lífeyri í löndum, er að það er mis- munandi dýrt að framfleyta sér. Laun í Noregi eru hærri en á íslandi, en Noregur er aftur á móti frekar dýrt land að búa í og er t.d. húsaleiga í stóru borgunum mjög há. I raun er því erfitt að segja til um hvort mað- ur er betur staddur í einu landi frek- ar en öðru, það er svo margt sem þarf að taka með í reikninginn. Per- sónulega finnst mér það koma mjög svipað út að búa á íslandi og í Nor- egi.“ Alsæl á íslandi Guðbjörg og fjölskylda hennar fluttu til íslands um jólin 2002. „Við komum hingað í sumarfrí það ár og það var sko ekki á dagskrá að flytja frá Noregi. Mánuði síðar gerðist það að sonur okkar fékk heiftarleg ofnæmisviðbrögð við moskítóbiti í Noregi. Hann var í lífshættu og þurfti í kjölfarið að vera með adrenalínsprautu á sér og taka inn ofnæmistöflur til öryggis. Við þurft- um að hafa net fyrir öllum gluggum og reyna að forðast moskítóflugur. Við hjónin tókum þá ákvörðun að það væri fjölskyldunni fyrir bestu að flytja til Islands þar sem ekki eru moskítóflugur. Við fluttum heim um jólin og bjuggum í kjallaranum hjá foreldrum mínum til að byrja með. Maðurinn minn var atvinnu- laus í heilt ár og það var nokkuð erfitt tímabil. Þó gat Dirk nýtt þenn- an tíma til að læra íslensku. Hann „Mér þykir einnig sárt að heyra þegar verið er að tala um samdrátt og niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Auðvitað þarf að hafa hemil á kostnaðinum, en því má ekki gleyma að / Islendingar borga tiltölulega mikið í sjúkratryggingar í gegnum skattkerfið." „Islendingar reka margir hverjir upp stór augu við þessar upphæðir og hugsa sér gott til glóðarinnar. Þeir gera sér hins vegar ekki grein fyrir því að einungis þeir sem hafa haft háar tekjur áður en þeir verða öryrkjar fá þessar greiðslur." 8

x

Sjálfsbjargarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjargarfréttir
https://timarit.is/publication/1896

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.