Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2004, Blaðsíða 11
Stofnun kvennahóps ÖBÍ:
Undirbúningur í fullum gangi
Við erum að vinna að undir-
búningi og áætlum að stofna
hópinn formlega næsta vor,
segir Guðríður Olafsdóttir, félags-
málafulltrúi Öryrkjabandalagsins,
aðspurð um kvennahóp ÖBI. „I
fyrstu átti að halda stofnfund nú í
haust en það var talið of snemmt,
vegna þess að enn átti eftir að vinna
ýmsa undirbúningsvinnu. Við
ákváðum því að fresta því fram á
næsta vor. Við ætlum m.a. að nýta
tímann í vetur til að fá betri kynn-
ingu innan aðildarfélaganna, virkja
konur sem þar eru, bjóða upp á sjálf-
styrkingarnámskeið og ýmislegt
fleira. Það eru fjölmörg mál sem
tengjast þessum málaflokki sem við
erum að vinna í, einnig erum við að
sanka að okkur ýmsu efni.“
Guðríður, sem er ein af talsmönn-
um kvennahópsins, segir stofnun
kvennahóps hafa fengið góð við-
brögð. „Við höfum þegar haldið
nokkra fundi og viðbrögðin hafa
verið góð. Um sextíu konur eru
komnar á skrá hjá okkur sem hafa
mikinn áhuga á að taka þátt í þessu
starfi. Öryrkjabandalagið átti frum-
kvæðið að stofnun kvennahóps. Þar
á bæ hefur orðið vart við að konur
kvarti undan þeirri meðhöndlun sem
þær fá, s.s. innan heilbrigðiskerfis-
ins og víðar. Konur, sem eru fatlað-
ar á einhvern hátt, verða fyrir mikl-
um fordómum jafnt og aðrar konur,
en það er kannski ennþá verra hjá
þeim vegna fötlunarinnar. Ein kona
sagði okkur t.d. frá því að einn lækn-
ir hafi sagt við sig að hún þyrfti nú
ekki að hafa miklar áhyggjur af sín-
um málum. Hún liti svo vel út að
hún gæti bara farið og náð sér í
mann! Þetta á víst að vera grín en
konur taka svona hluti nærri sér. Eitt
af þeim málum sem við erum að
kanna er aðgengi fatlaðra kvenna á
heilbrigðisstofnunum og víðar.
varðandi þessi málefni, en það hef-
ur aldrei verið neitt gert til að styðja
konur til að stofna slík samtök hér á
landi. í raun hefði fyrir löngu átt að
vera búið að því, vegna þess að
þörfin er afar brýn. Við þurfum hins
vegar að kynna þetta betur og fá
konur til að tjá sig. Það getur tekið
langan tíma fyrir þær að opna sig,
vegna þess að oft er um afar per-
sónuleg mál að ræða. Margar konur
líta á þessi mál sem mikið feimnis-
mál og margar hverjar hafa orðið
fyrir niðurlægingu sem þær eru
e.t.v. ekki tilbúnar að ræða um. Oft
er verra fyrir viðkomandi konur að
„Margar konur líta á þessi mál sem mikið feimnismál og
margar hverjar hafa orðið fyrir niðurlægingu sem þær eru
e.t.v. ekki tilbúnar að ræða um."
Hver er t.d. staðan ef fötluð kona,
sem beitt hefur verið ofbeldi, leitar
til Neyðarmóttöku eða til Kvenna-
athvarfsins? í Kvennaathvarfinu er
ekki gert ráð fyrir konu í hjólastól
svo dæmi sé tekið. Margar fatlaðar
konur sem hafa eignast börn hafa
t.d. átt í erfiðleikum með að komast
í sturtu eftir barnsburð, en reyndar
er búið að laga það víða núna. Ann-
að málefni tengist þeirri miklu feg-
urðardýrkun, sem ríkir í þjóðfélag-
inu gagnvart konurn. Margar fatl-
aðar konur telja sig ekki falla inn í
þann ramma. Þetta gerir það að
verkum að þeim líður illa með lík-
ama sinn og þora jafnvel ekki að
fara í sund. Þetta eru aðeins nokk-
ur dæmi af þeim fjölmörgu málum
sem við munum taka á og ræða.“
Mikið feimnismál
Guðríður segir að víða erlendis séu
starfræktir svona kvennahópar.
„Konur frá íslandi hafa sótt fundi
verða fyrir niðurlægingu, vegna
þess að sjálfstraustið hjá þeim er
kannski ekki upp á marga fiska.“
Að sögn Guðríðar verður boðið
upp á fyrirlestra í vetur í tengslum
við kvennahópinn. „Við ætlum að
byrja á að fá Kolbrúnu Dögg Krist-
jánsdóttur, varaformann Sjálfsbjarg-
ar lsf., til að ræða ýmis mál út frá
sinni fötlun. Rannveig Traustadótt-
ir mun fjalla um fötlunarfræði og
rannsóknir tengdar þeirri grein. Þá
ætlar Sigríður Lillý Baldvinsdóttir,
starfsmaður Tryggingastofnunar
ríkisins, að ræða um örorku kvenna,
þróun, nýgengni og streitusjúk-
dóma. Við munum auglýsa þessa
fundi þegar þar að kemur og reyna
að ná til sem flestra kvenna.“
Þær konur sem vilja fá nánari
upplýsingar um Kvennahóp ÖBI er
bent á að hafa samband við Guðríði
Ólafsdóttur eða Báru Snæfeld hjá
ÖBÍ í síma 530-6700.
-kmh.
11