Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 13.12.2018, Page 7

Bæjarblaðið Jökull - 13.12.2018, Page 7
Gjaldskrár fasteignagjalda í Snæfellsbæ 2019 Álagning fasteignagjalda byggir á fasteignamati húsa og lóða í Snæfellsbæ, sem tekur meðal annars mið af stærð þeirra, notkun og lóðarhlutastærð. Álagningarstofninn er fenginn frá Þjóðskrá Íslands 31. desember ár hvert auk þess sem fasteignaskattur leggst á nýjar lóðir og ný mannvirki í hlutfalli við ársálagningu frá næstu mánaðarmótum eftir að þau eru skráð og metin í Fasteignaskrá. Fasteignaskattur fellur niður næstu mánaðamót eftir að mannvirki er afskráð í Þjóðskrá Íslands. Byggingarfulltrúi sendir Þjóðskrá Íslands upplýsingar og gögn um nýbyggingar, viðbyggingar, eldri byggingar sem er breytt, hús sem eru rifin og aðrar viðeigandi upplýsingar. Eigendaskráning húsa og lóða er í höndum Sýslumannsins á Vesturlandi og er hún í samræmi við þinglýst skjöl/gögn. Allar þessar upplýsingar eru notaðar við álagningu fasteignagjalda, leiðréttingar, reikningagerð og innheimtu sem fer fram hjá Snæfellsbæ Fasteignagjöld íbúðarhúsnæðis: A-skattflokkur Fasteignaskattur A-flokkur 0,44% af fasteignamati Lóðarleiga A-flokkur 1,80% af lóðarmati Vatnsgjald A-flokkur 0,33% af fasteignamati Fráveitugjald A-flokkur 0,16% af fasteignamati Sorphirðu- og sorpeyðingargjald á íbúðir 36.500.- á tunnu Sorpeyðingar- og gámagjald á sumarhús 14.000.- á tunnu Fasteignagjöld á annað húsnæði: B- og C-skattflokkur Fasteignaskattur B-flokkur 1,32% af fasteignamati Fasteignaskattur C-flokkur 1,55% af fasteignamati Lóðarleiga B- og C-flokkur 2,50% af lóðarmati Vatnsgjald B- og C-flokkur 0,45% af fasteignamati Fráveitugjald B- og C-flokkur 0,20% af fasteignamati Í A-flokki eru íbúðir, íbúðarhús, sumarhús, útihús og mannvirki á bújörðum tengd landbúnaði. Í B-flokki eru opinberar byggingar. Í C-flokki eru allar aðrar byggingar. Veittur er afsláttur af fasteignaskatti til þeirra elli- og örorkulífeyrisþega sem búa í eigin íbúð. Miðast afslátturinn við eftirfarandi tekjumörk liðins árs og er hámarksafsláttur kr. 100.000.- 100% lækkun Einstaklingar með heildarárstekjur allt að 3.500.000 krónur Hjón með heildarárstekjur allt að 5.400.000 krónur 75% lækkun: Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 3.500.001 - 4.200.000 krónur Hjón með heildarárstekjur á bilinu 5.400.001 - 5.700.000 krónur 50% lækkun: Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 4.200.001 - 4.550.000 krónur Hjón með heildarárstekjur á bilinu 5.700.001 - 6.250.000 krónur 25% lækkun: Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 4.550.001 - 4.850.000 krónur Hjón með heildarárstekjur á bilinu 6.250.001 - 6.600.000 krónur Við álagningu fasteignagjalda er afslátturinn reiknaður út frá álagningu 2018 vegna skatttekna ársins 2017, þ.e. samtalan af stofni til útreiknings tekjuskatts og útsvars (reitur 2.7) og fjármagnstekjum samtals(reitur 3.10.) Gjalddagar fasteignagjalda eru 8: 1. febrúar og síðan 1. hvers mánaðar (mars september) Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga ef ekki er greitt fyrir eindaga. Veittur er 3% staðgreiðsluafsláttur ef gjöldin eru greidd í heild sinni fyrir 15. mars 2019. Hægt er að ganga frá staðgreiðslu með því að draga 3% frá heildarálagningu gjaldanna og leggja inn á banka: 0190-26-4240, kt.: 510694-2449.

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.