Bæjarblaðið Jökull - 13.06.2019, Síða 2
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og
dreift á hvert heimili í Snæfellsbæ og
Grundarfirði. Blaðið kemur út vikulega.
Upplag: 1.100
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf.
Sandholt 22a, Ólafsvík
355 Snæfellsbæ
Netfang: steinprent@simnet.is
Sími: 436 1617
Fiskmarkaður Snæfellsbæjar,
Slægingarþjónustan og Daniel
Wasiewicz færðu sjúkrbílunum
í Snæfellsbæ góða gjöf í síðustu
viku. Færðu þeir sjúkrabíunum
bakpoka sem mun auðvelda
sjúkrflutningamönnum störf sín
mikið en bakpokan geta þeir
notað þegar ganga þarf og setja
þá nauðsynleg gögn í hann enda
auðveldara að bera á bakinu. Það
voru þeir Magni Jens Aðalseinsson
og Daniel Wasiewicz sem afhentu
þeim Patryk Zolobow og Birnu
Dröfn Birgisdóttur bakpokan.
Sögðu þeir að þeim væri ánægja
að geta lagt þessu frábæra
starfsfólki lið sem stendur vaktina
á sjúkrabílnum í bæjarfélaginu.
þa
Gáfu bakpoka í sjúkrabíla
Það fer vel um lómaparið
sem liggur á eggjum sínum í
Rifsósnum. Þetta sama par verpti
þarna á ósnum í fyrra en þá flaut
hreiðrið þeirra upp eftir miklar
rigningar og komu þeir engum
ungum upp. Kom parið aftur í
vor og verpti á sama stað en þeim
eggjum var stolið undan honum.
Brá Sæmundur Kristjánsson á
það ráð að setja gras hjá honum
til að minni líkur væru á að
hreiðrið flyti upp ef rigndi og
hefur hann verpt þar aftur og
liggur nú á eggjunum. Ekki eru
neinar rigningar í kortunum
framundan svo vonandi komast
ungarnir á legg að þessu sinni.
þa
Lómur verpir
í Rífsós
Laus staða við
Grunnskóla Snæfellsbæjar
Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir eftir starfsmanni í eldhúsi
í 70% starf við Lýsuhólsskóla.
Starfsvið:
• Skipuleggur matseðil hvers mánaðar
• Annast aðdrátt á matvörum
• Eldar og ber fram mat
• Sér um frágang og þrif í eldhúsi
• Tekur þátt í öðrum verkefnum innan skólans
Menntun, reynsla og hæfni:
• Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
• Góð kunnátta í íslensku er skilyrði
Borgað er samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga
og Samflots bæjarstarfsmannafélaga.
Umsóknarfrestur er til 23. júní, umsóknareyðublað er á heimasíðu
Snæfellsbæjar, https://snb.is/wp-content/uploads/2013/12/Atvinnuums%C3%B3kn.pdf
Upplýsingar veitir Hilmar Már Arason skólastjóri í síma 894 9903 og Rósa
Erlendsdóttir síma 863 8328. Umsóknir skal senda til skólastjóra
hilmara@gsnb.is.