Bæjarblaðið Jökull - 13.06.2019, Side 6
Sjómenn voru að venju heið
raðir á Sjómannadeginum í Snæ
fells bæ og fór heiðrunin fram í
sjómannagörðum bæjar félags
ins. Sigurður Höskuldsson
og Björn Erlingur Jónasson
ásamt eiginkonum sínum voru
heiðraðir í Ólafsvík. Voru þeir
báðir til sjós í nálægt 50 ár þar
af voru þeir skipsverjar í 38 ár á
Ólafi Bjarnasyni SH137.
Á Hellissandi var Kristján
Jóhannes Karlsson heiðraður en
hann er nýhættur til sjós.
Var Kristján vélstjóri á ýmsum
bátum í yfir 50 ár, var hann fyrst á
Sveinbirni Jakobssyni SH10.
þa
Björgunarbáturinn Björg hefur haft í nógu að snúast undanfarið, hefur hún
farið ófáar ferðirnar til að sækja báta og draga í land. Hafa bilanirnar verið
af ýmsum toga allt frá biluðum slöngum til vélarbilana.
Myndina tók ljósmyndari þegar Björgin sótti Geira SH vegna olíustíflu út að
Malarrifi og dró hann til hafnar á Rifi. Gekk ferðin vel þó leiðindaveður hafi
verið fyrir innan ness. Þess má geta að þegar þessi frétt er skrifuð er Björgin
í enn einu útkallinu og á leið í land með bátinn Snúlla SH frá Grundarfirði og
ferðinni heitið til hafnar í Rifi en hann bilaði 14 mílur norður af Rifi.
þa
Sjómenn heiðraðir á Sjómannadag
Björgin aðstoðar smábáta
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður
í Ólafsvík 15. júní og verður
hlaupið frá Sjómannagarðinum
kl. 11:00.
Í ár er 30 ára afmæli Kvenna
hlaups ins en þetta er í 29. skiptið
sem það er haldið í Ólafsvík.
Vegalengdir sem eru í boði
eru 2,5 km. og 5 km. Forsala
í sund lauginni. Þátttökugjald
fyrir 12 ára og yngri er 1.000 kr.
og fyrir 13 ára og eldri er gjaldið
2.000 kr. Kvennahlaupsbolur,
buff, Kristall og Nivea vörur
fylgja þátttökugjaldi og einnig
verður frítt í sund. Að auki
verður ávaxtaveisla í boði eftir
hlaup og glæsilegir happ drættis
vinningar dregnir út.
Elfa E. Ármannsdóttir og
Sigríður Þórarinsdóttir sjá um
hlaupið.
Konur á öllum aldri eru hvattar
til að mæta.
Sjóvá Kvennahlaup - Bílaviðgerðir
- Skipaþjónusta
- Almenn suðuvinna
- Smurþjónusta
- Smábátaþjónusta
- Dekkjaverkstæði
vegr@vegr.is vegr.is
S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður