Úrval - 01.11.1978, Qupperneq 59
TÓNSKÁLDIÐ MOZART
57
Enn þann dag í dag ómar ódauðleg
tónlist Mozarts um heiminn. Mikið af
henni hefur með góðum árangri verið
stílfært fyrir popptónlistarmenn nú-
tímans, og þannig aflað honum nýrra
aðdáenda og bætt við stöðugt framlag
hans til lífsgleðinnar.
★
Kona við bílasala, sem var að sýna henni Mini-bíl: ,,Eigið þið ekki
hálfu númeri stærra?”
Forstjóri einn í Amsterdam efndi til kveðjusamkvæmis fyrir einka-
ritarann sinn, sem hafði unnið hjá honum í 12 ár. En honum brá
heldur en ekki í brún, þegar ekki kom aðeins einn kveðjandi einkarit-
ari 1 samkvæmið, heldur tveir alveg eins. Eineggja tvíburarnir ját-
uðu fyrir honum að hafa skipt með sér starfinu fyrir hann og sömu-
leiðis laununum.
O.W.H.
Áður en ég heimsótti tengdamóður mína í fyrsta sinn, sagði mað-
urinn minn mér frá þeirri áráttu hennar að stilla alltaf fram brúð-
kaupsmyndun af börnum sínum á áberandi stað. Ég var síðari kona
mannsins míns og við höfðum gift okkur í kyrrþey, án þess að brúð-
kaupsmyndir væru teknar. En tengdamamma dó ekki ráðalaus. Þegar
heim til hennar kom, fundum við brúðkaupsmynd af okkur á ariii-
hillunni. Hún hafði tekið mynd frá fyrra brúðkaupi mannsins míns
og límt höfuðið af mér yflr höfuð fyrri konunnar.
Marie Broadbridge
Þróun þýðir sama og hávaði. Við gætum meira að segja fastsett
þann dag, sem nútíma menning fæddist, ef við gætum grafið upp
hvenær maðurinn sagði í fyrsta sinn: , ,Lækkaðu þennan andskota! ’ ’
Bill Vaughan
Við slógum upp tjöldum eina nótt á fjölsóttu tjaldstæði. Kl. hálf
fimm um morguninn fórum við á fætur í því skyni að geta lagt
snemma af stað. Ég tók mér stöðu fyrir utan tjaldið og virti fyrir mér
svefnborgina, meðan ég rakaði mig með rafhlöðudriflnni rakvél. Ég
hafði ekki gert mér grein fyrir kyrrðinni, fyrr en ég heyrði hrópað
svefndrukkinni gremjuröddu úr einu tjaldinu: ,,Geturðu ekki beðið
með að slá flötina þangað til í dag?”
Robert Toland