Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2021, Blaðsíða 3

Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2021, Blaðsíða 3
Af friði, ást og trú Sumir segja að jólin séu samsett úr skyldum, hefðum og erfðum; einingarhátíð þar sem fjölskyldur rækta tengsl sín, samfélög iðka siði sína og við setjum okkur í samband við eitt hvað rótgróið. Þetta síðasta er svolítið áhugavert - þetta með jarðsambandið og núll- punktinn - því það nær út fyrir tímann og tengir við eitthvert upp haf; upphaf sem við vitum að er ekki upphafspunktur tímans eða mannkynssögunnar, heldur upphaf tímatalsins. Og svo nátengt jólahátíðinni sjálfri fögnum við umvendingu og framrás þess sama tímatals á áramótum þar sem við kveðjum hið liðna og höldum á vit framtíðar sem með einhverjum hætti ber alltaf einhverja nýja von í skauti sér. Kvittar fyrir syndir hins liðna og endurnýjar sig í stöðugri hringrás mann- legrar tilveru. En jólin eru samt ekki bara einhverskonar forspil að nýju ári, óráðinni framtíð sem fær að spjara sig með hreint borð. Nei, þau eru mikilvægari. Kannski því þau snúast um kærleikann en ekki kveðjuna, um vonina sem er okkur heilagari en allt; ekki uppgjörið, fórnina og fallið. Sumir segja að jólin snúist um undirbúninginn á aðventunni, svona svipað og það sé beint samhengi á milli hegðunar barnanna og þeirrar umbunar sem jólasveinarnir láta þeim í té, í hinu leyndardómsfulla ævin týri um ferðalög þessara utan garðssveina af tröllakyni í nætur húmi myrkasta mánaðar- ins, ef við leyfum okkur að tala bara út frá því hvernig desember er útbúinn frá náttúrunnar hendi. Jólin snúast jafnvel um að við gerum allt eins og það hefur alltaf verið gert. Jafnvel á fordæmalausum tímum. Friður sem er öllu æðri Við erum farin að venjast því að vonir og væntingar fari ekki alltaf saman; þessi áður annars eðlilega samstæða er farin að birtast í lífum okkar eins og andstæð hugtök; það sem við vildum að gæti verið og hitt og það sem við erum farin að gera ráð fyrir að verði. Að við fáum ekki, megum ekki, getum ekki. Óumræðanlegur ótti eða kvíði er farin að grafa um sig þó við berum okkur vel. Við erum jafnvel hætt að vera hrædd við blessaða pestina, að hún ógni lífi og heilsu, en samt um leið; þá er það skömmin sem ógnar okkur - að aðrir gætu orðið að líða fyrir það að við sjálf fórum ekki nógu varlega. Ekki vil ég lasta það, enda mætti segja að ábyrgð og samkennd liggi þar að baki. Og því er það á pari við það að við otum ekki lengur áfengi að ungmennum; sú tíð er liðin þar sem það virtist verða að vera hluti af þroska- sögu hvers fullorðins ein- staklings að „sjá heiminn“ með augum hins ölvaða. Við erum að þroskast sem samfélag og við leggjum okkur fram við að smitast hvorki né smita aðra. Kannski er það fegursta við kröfu pestarinnar til okkar, að við göngumst við því að sum eru veikari fyrir en önnur; okkur langar ekki að stuðla að ótímabærum dauðsföllum þeirra sem mega sín lítils gagn- vart þeirri heilsufarsógn sem þessi undarlega veira annars er. Hugvekja Þorláksmessa 23/12 kl. 09 - 22 Aðfangadagur 24/12 kl. 10 - 14 Jóladagur 25/12 lokað Annar í jólum 26/12 kl. 12 - 18 Mánudagur 27/12 kl. 10 - 22 Þriðjudagur 28/12 kl. 09 - 22 Miðvikudagur 29/12 kl. 09 - 22 Fimmtudagur 30/12 kl. 09 - 22 Gamlársdagur 31/12 kl. 10 - 16 Nýársdagur 01/01 lokað Sunnudagur 02/01 kl. 10 - 22 Óskum Snæfellingum gleðilegra jóla og þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. 5.290,- 5.190,- 1.095,- Ýmislegt sniðugt í skóinn fyrir jólasveininn 4 ostborgarar, milli franskar, 2 dósir sósa og 2L Coke. 1.795,- Ostborgari 1/2 L Coke, franskar og sósa 16” TILBOÐ 16” pizza x 2 álegg 8 brauðstangir + sósa 2L Coke 4.190,- 12” TILBOÐ 16” pizza x 2 álegg 5 brauðstangir + sósa 2L Coke Hotwings 8 stk, 1/2 L Coke og koktail sósa Bátur með lambakjöti, osti, piparsósu og frönskum á milli. BÚKOLLA Bátur með nautakjöti, osti, bernaise og frönskum á milli. HRIKALEGA GOTT MIKKI REFUR Aðeins kr. 2.135 m/ 0,5L Coke
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.