Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2021, Page 3
Af friði, ást og trú
Sumir segja að jólin séu
samsett úr skyldum, hefðum og
erfðum; einingarhátíð þar sem
fjölskyldur rækta tengsl sín,
samfélög iðka siði sína og við
setjum okkur í samband við
eitt hvað rótgróið. Þetta síðasta
er svolítið áhugavert - þetta
með jarðsambandið og núll-
punktinn - því það nær út fyrir
tímann og tengir við eitthvert
upp haf; upphaf sem við vitum
að er ekki upphafspunktur
tímans eða mannkynssögunnar,
heldur upphaf tímatalsins. Og
svo nátengt jólahátíðinni sjálfri
fögnum við umvendingu og
framrás þess sama tímatals á
áramótum þar sem við kveðjum
hið liðna og höldum á vit
framtíðar sem með einhverjum
hætti ber alltaf einhverja nýja
von í skauti sér. Kvittar fyrir
syndir hins liðna og endurnýjar
sig í stöðugri hringrás mann-
legrar tilveru. En jólin eru samt
ekki bara einhverskonar forspil
að nýju ári, óráðinni framtíð
sem fær að spjara sig með
hreint borð. Nei, þau eru
mikilvægari. Kannski því þau
snúast um kærleikann en ekki
kveðjuna, um vonina sem er
okkur heilagari en allt; ekki
uppgjörið, fórnina og fallið.
Sumir segja að jólin snúist um
undirbúninginn á aðventunni,
svona svipað og það sé beint
samhengi á milli hegðunar
barnanna og þeirrar umbunar
sem jólasveinarnir láta þeim í
té, í hinu leyndardómsfulla
ævin týri um ferðalög þessara
utan garðssveina af tröllakyni í
nætur húmi myrkasta mánaðar-
ins, ef við leyfum okkur að tala
bara út frá því hvernig desember
er útbúinn frá náttúrunnar
hendi. Jólin snúast jafnvel um
að við gerum allt eins og það
hefur alltaf verið gert. Jafnvel á
fordæmalausum tímum.
Friður
sem er öllu æðri
Við erum farin að venjast því
að vonir og væntingar fari ekki
alltaf saman; þessi áður annars
eðlilega samstæða er farin að
birtast í lífum okkar eins og
andstæð hugtök; það sem við
vildum að gæti verið og hitt og
það sem við erum farin að gera
ráð fyrir að verði. Að við fáum
ekki, megum ekki, getum ekki.
Óumræðanlegur ótti eða kvíði
er farin að grafa um sig þó við
berum okkur vel. Við erum
jafnvel hætt að vera hrædd við
blessaða pestina, að hún ógni
lífi og heilsu, en samt um leið;
þá er það skömmin sem ógnar
okkur - að aðrir gætu orðið að
líða fyrir það að við sjálf fórum
ekki nógu varlega. Ekki vil ég
lasta það, enda mætti segja að
ábyrgð og samkennd liggi þar
að baki. Og því er það á pari við
það að við otum ekki lengur
áfengi að ungmennum; sú tíð
er liðin þar sem það virtist
verða að vera hluti af þroska-
sögu hvers fullorðins ein-
staklings að „sjá heiminn“ með
augum hins ölvaða. Við erum
að þroskast sem samfélag og
við leggjum okkur fram við að
smitast hvorki né smita aðra.
Kannski er það fegursta við
kröfu pestarinnar til okkar, að
við göngumst við því að sum
eru veikari fyrir en önnur;
okkur langar ekki að stuðla að
ótímabærum dauðsföllum
þeirra sem mega sín lítils gagn-
vart þeirri heilsufarsógn sem
þessi undarlega veira annars er.
Hugvekja
Þorláksmessa 23/12 kl. 09 - 22
Aðfangadagur 24/12 kl. 10 - 14
Jóladagur 25/12 lokað
Annar í jólum 26/12 kl. 12 - 18
Mánudagur 27/12 kl. 10 - 22
Þriðjudagur 28/12 kl. 09 - 22
Miðvikudagur 29/12 kl. 09 - 22
Fimmtudagur 30/12 kl. 09 - 22
Gamlársdagur 31/12 kl. 10 - 16
Nýársdagur 01/01 lokað
Sunnudagur 02/01 kl. 10 - 22
Óskum Snæfellingum gleðilegra jóla
og þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
5.290,-
5.190,-
1.095,-
Ýmislegt
sniðugt í
skóinn fyrir
jólasveininn
4 ostborgarar,
milli franskar, 2 dósir sósa
og 2L Coke.
1.795,-
Ostborgari
1/2 L Coke, franskar og sósa
16” TILBOÐ
16” pizza x 2 álegg
8 brauðstangir + sósa
2L Coke
4.190,-
12” TILBOÐ
16” pizza x 2 álegg
5 brauðstangir + sósa
2L Coke
Hotwings 8 stk,
1/2 L Coke og koktail sósa
Bátur með
lambakjöti, osti,
piparsósu og
frönskum á milli.
BÚKOLLA
Bátur með
nautakjöti, osti,
bernaise og
frönskum á milli. HRIKALEGA GOTT
MIKKI
REFUR
Aðeins kr.
2.135
m/ 0,5L Coke