Íþróttablaðið Sport - 16.04.1948, Síða 3

Íþróttablaðið Sport - 16.04.1948, Síða 3
Föstudaginn 16. apríl 1948 SPORT Sr <Hrlenclar \ Knattspyrnufréttir 30. maí n. k. fer fram í iVín landskappleikur milli Tyrklands og Austurríki. — ítalska knattspyrnuliðið F.C. Milano, sem er efst í Itölsku meistarakeppninni fer til Ist- ambul og keppir þar þrjá leiki um miðjan maí. Tyrkir eru sagðir all góðir nú, en yitanlega kemur geta þeirra í ljós í þessum leikum. Elzti knattspyrnuþjálfari í heimi heitir Amos Alonzo Stagg og er portugali. Hann liefur nýlega gert 10 ára samning við háskóla einn þar í landi, þó hann sé nú þegar 85 ára gamall. Kaldur kall J>a,ð. Benelux-löndin, Holland, Belgía og Luxemburg eru að hugsa um sameiginlegt lands lið í kappleikjum við Eng- land og Frakkland. I tilefni af 383 ára af- mæli Rio de Janero-borgar í Brasilíu var lagður horn- steinn að nýjum knattspyrnu velli (Stadion). Gert er ráð fyrir að 155 þús. áhorfendur geti horft á kappleiki. 30 þús. sæti verða númeruð, 90 þús. ónúmeruð og 30 þús. pallar. Á velinum verða 20 útvarpsklefar, 32 barar og 5 veitingastofur. 1 þús. manns ■vinna við byggingu þessa. Nýlega var ungverski knattspyrnumaöurinn Ku- bala seldur til Italska félags- íns Bologna fyrir ,,aðeins“ 100 þús. dollara. Tékkneska félagið Bo- hemia hefur síðan stríðinu lauk háð 45 leiki erlendis. Heimsótt Svíþjóð, Noreg, Frakkland, Algier, Marakko, Belgíu og Sviss. Það stendur til nú að félagið fari til Tyrklands. I ensku knattspyrnunni er Arsenal enn efst í I. deild. Nú fyrir skömmu tapaði Arsenal fyrir Blackpool með 3:0 og einnig fyrir Chelsea með 2:0. Vinningurinn ósóttur. Ungversku dagblöðin hafa undanfarið verið að auglýsa eftir þeim, sem unnið hefur hæsta vinninginn í ung- versku knattspyrnuveðmál- unum (tip) samtals 350.000 gyllin. Maðurinn, sem „tipp- aði“ rétt hafði lagt inn seðil sinn, án þess að skrifa á hann nafn sitt eða heimilis- fang. Veðmálin hafa aldrei verið meiri í Ungverjalandi en nú. Á hverri viku veðja minnst 500.000 menn. Það er líkt á komið með þeim ungverska og þeim sem eiga vinningsmiðana í bíla- happdrættunum hérna. —o— Danski Ólympíu- búningurinn. Danir hafa ákveðið föt þan er þátttakendur þeirra eiga að klæðast á Ólympíu- leikunum. Er það rauður jakki, hvít- ar buxur og rauður bátur á höfði með hvítri rönd. Á jakkabrjóstvasanum eru hvítir stafir með nafni lands- íng. ,. Búningur þessi er mjög smekklegur og áberandi. [*] Neitað um viður- kenningu. Jany neitað um viðurkenn- ingu á metum sínum. Alþjóða sundsambandið hefur neitað að viðurkenna sem heimsmet tíma Janys í 100 m. sundi frjáls aðferð 55,8 og 400 m. frjáls aðferð 4,35,2, hvort tveggja sett á síðastliðnu sumri. Ókunnugt er um ástæðuna fyrir þess- ari neitun. ----O---- 4.49 í stöng. Á frjálsíþróttamóti, sem nýlega fór fram í Bandaríkj- unum vann Marcom stanga- stökkkeppnina með 4.49 m. stökki. Eins og menn muna úr greinaflokkinum „Beztu frjálsíþróttaafrekin 1947“ hafði Marcom bezta árang- GOLF Myndin er af handknattleiksfl. Týs frá Vestm.- eyjum, sem i I golfkeppni, er fram fór fyrsta skipti k(jn í Caiiforníu fyrst á þessu ári J« landsmótiö m. vann M. iíarrison keppnina í vétur oy stóc Ben Barek hin „Svarta ur arsins. stjarna“ Frakklands í knatt- sþyrnu, mun koma til Sví- þjóðar'í sumar með frönsku knattspyrnuliði. ----O----- Holland—England 5:2 -o- Ólympískt hænsnabú? Mexíkanar eru hræddir um að íþróttamenn þeirra verði ekki eins góðir og þeir eiga að vera, vegna þess að þeir fái ekki nægan mat í Eng- landi. Mexíkanska Ólympíunefnd- in hefur því beðið um leyfi Enska áhugamannaliðið, sem valið hefur verið til æf- inga undir Ólympíuleikina keppti um pásloana bæði íUil að setja upp hænsnabú á Luxemburg og Hollandi. hinu mexíkanska Ólympíu- I Luxemburg varð jafn- svæði. Þeir vilja koma með tefli 1:1, en Hollenzka liðið fimm hundruð hænsni og yann með 5:2. hundrað kalkuna. og náði bezta árangri, sem atvinnumaður hefur hingað til náð í heiminum. 72 holur í 273 höggum var árangurinn, eða að meðal- tali hver hola í tæpum 4 höggum. Verðlaunin voru 2 þúsund dalir. 2. maður í keppninni var með 275 högg og þriðji 277, svo að segja má, að líkir hafi þeir verið. Blöðin spá Harrison sigur í einni aðalkeppni Californíu, þar sem 1. verðlaun eru 10 þúsund dalir. Blaðið hefur því miður eigi getað fengið upplýsingar um bezta árangur hér, en t. d. 1946 á landsmótinu í golfi á Akureyri vann Sigtrygg- ur Júlíusson og lék 72 holur í 343 höggum. Vitanlega er ekki hægt að bera saman árangur hér og erlendis, þar sem aðstæður eru svq ólíkar Bæði betri vellir og veðrátta erlendis, og auk þess atvinnu leikarar, sem hér um ræðir, en hér eru aðeins áhuga- menn. íslandsmeistarar í golfi síðan fyrst var farið að keppa um þann titil, 1942, hafa verið þessir: 1942: Gísli Ólafsson 1943: Gísli Ólafsson 1944: Gísli Ólafsson 1945: Þorvaldur Ásgeirss. 1946: Sigtr. Júlíusson 1947: Ewald Berndsen Árið 1935 hófust kapp- leikir á vegum Golfklubbs Is- lands og hafa farið fram árlega síðan. Meistarar í þeirri keppni hafa verið þessir: 1935 Magnús Andrésson 1936 Friðþjófur Johnson 1937 Helgi Eiríksson 1938 sami 1939 Hallgr. F. Hallgr.ss. 1940 Gísli Ólafsson 1941 sami 1942 sami 1943 sami 1944 sami 1945 Jakob Hafstein 1946 Helgi Eiríksson 1947 Ewald Berndsen ----O---- - BOWLING - I bowling-keppni í Detroit 31. marz s.l. vann Nick Mill- er nokkur frá Ohio einmenn- ingskeppnina og lilaut 709 stig. Annar maður var með 697 stig og þriðji 693 stig. Tveggja manna keppnin vannst á 1328 stigum. Fimm manna keppnina unnu félag- ar af veitingahúsi einu í Cleveland og höfðu 3002 st. ----O---- 'sig með ágætum. — Siúlkurnar ern frá vinstri GnÓni, GuSlaugsd. Sigur- leif Björnsdóttir, Sirrý Ólafsddótt- ir, Jöna Óskarsd. Sigrí'öur Bjarnad. Jóna Krisljáns., Eygló Einarsdótt- ir og Fjóla Jensd. Valur og Haukar unnu. Eins og skýrt var frá í síðasta blaði er liandknatt- Ieiksmóti Islands lokið nema í meistarafl. karla. Að vísu vantaði eina línu í fréttina af mótinu þar, sem nafn sigurvegara 3. fl. átti að vera, en þeir urðu Haukar. Sannleikurinn er sá, að ég sem skrifaði fréttina var svo handviss um að K.R. myndi vinna, og setti því nafn K.R. sem sigurvegara. Urslitaleik- urinn fór nefnilega fram sama kvöldið og blaðið fór í prentun, svo að ég þurfti að setja einhvern sem sigur- vegara 3. fl., ætlaði að vera afar „smart“ eins og það er orðað. Á síðustu stundu stundu komst ég að vélinni og lamdi á línuna, svo að Ifún varð auð. Jæja, þetta eru nú útúr- dúrar, sem koma e. t. v. ekki ekki málinu við, en sem sagt sigur Hauka kom m_j»g ó- vænt. Kom hann áreiðanlega til af því, að fyrir leikinn og hann allan voru Haukarnir vissir um að þeir gætu ekki unnið — en K.R.-ingar aft- ur allt of vissir um að vinna. Þarna kemur það í Ijós enn einu sinni, hyernig góð lið tapa fyrir verri liðum. — Þó ekki þar með sagt, að Haukar hafi verið lélegir. Það eru margir góðir leik- menn í liðinu eins og mark- vörðurinn ÓIi Ingimundar- son, lék einnig liðlega á öðr- um stöðum. Hann er mjög skemmtilegur leikmaður. — Vinstri handar skotmaður, hægri framvörður, er skot- harður og gerði hann flest mörkin á móti K.R. Hann verður áreiðanlega góður með tímanum. K.R.-liðið er skipað skemmtilegum piltum og góðum leikmönnum, yfirleitt mjög jafnir. Miðframherji K- R. skar sig þó dálítið úr með léttari og betri leik en hinir, svo og Hörður. Ármann var með skemmti- legt lið og vel samstillt. — Snorri miðframherji og v. framherji voru beztu menn liðsins. Fram og Víkingur sendu í fyrsta skipti 3. fl. Landskeppni í borðtennis nú og voru báðir flokkar milli Svíþjóðar og Tekkó-‘ skipaðir frískum drengjum. slovakíu fór fram fyrir Dóri bar af í liði Fram. skömmu og lauk með sigri Í.R.-liðið var vel samstillt Tékkóslóvakíu 5:0. og skemmtilegir leikmenn. Liðið var samt óheppið, þar sem það tapaði öllum leíkj— um sínum með aðeins 1 marka mun. F.H.-liðið var eitt bezta liðið en samt tals- vert misjafnt. 2. flokk vann Valur og voru þeir vel að sigri sínum komnir, þar sem þeir léku bezt liðanna í flokknum. — Halldór og Sólmundur í markinu eru beztu mennirnir en hinir allir yfirleitt mjög' líkir, sem er mikill kostur fyrir hvert lið. Þetta lið kemst áreiðanlega langt haldi það æfingum saman á- fram. K.R. var í lirslitunum á. móti Val og tapaði 2:6. Ey- þór í markinu hefur skemmti legan stíl og ver vel og auð- veldlega. I I.R.-Iiðinu er hver góður. sem einstaklingur eins og Ingi, Atli og Jón, en vantar tilfinnanlega samleik og auga fyrir spili. Ingi er þó beztur. Fram og K.R. gerðu jafn- tefli, K.R. vann Víking en. Víkingur vann aftur Fram. Þannig að leikarnir vígsluð- ust afar mikið í mótinu. Pálmi, er góður hjá Vík- ing, Orri og Hannes í Fram leika báðir með meistarafl. og eru ágætir. F.H. hefur góðan markmann og Grétar, sem er einhver bezti skot- maður 2. flokks. Haukaliðið vantar meiri æfingu — en í liðinu eru margir efnilegir piltar. [*} Ferracin vann Kane. Eins og skýrt var frá í 2. tbl. Sports var keppnin í batamvigt um Eivrópumeist- aratitilinn milli Peter Kane og Guido Ferracin. Sá síðai- nefndi vann eftir 15 lotur á. stigum. Ferrancin er ítali. Nú er ákveðið að þeir mæt- ast aftur 16 apríl í Man- chester. VERZLUNIN VARMÁ Hverfisgötu 84 Sími 4503 NÝLENÐUVÖRUR Sendum heim.

x

Íþróttablaðið Sport

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið Sport
https://timarit.is/publication/1898

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.