Íþróttablaðið Sport - 01.05.1958, Page 8
8
ÍÞRÖTTABLAÐIÐ SPORT
Knalfspyrnan í sumar:
Þegar pað var sjálfsmorð að „skalla”
í 2000 ár hafa ýmsir gárungar haldið
því fram að knattspyrnan væri búin að
lifa sitt fegursta og myndi brátt falla
í gleymsku og dá. En því er nú ekki svo
farið, því að í dag nýtur hún meiri vin-
sælda en nokkru sinni áður. Við meg-
um ekki gleyma því að knattspyrnan
er einn af elztu leikjum, sem til eru.
Allt að 300 árum áður en tímatal okk-
ar hefst, spörkuðu kínverjar skinn-
knetti fylltum hári. Þetta er 1. knött-
urinn, sem veraldarsagan greinir frá.
Það er því tilgangslaust að halda því
fram að knattspyrnan eigi sér ekki
langa og ,,harða“ sögu að baki.
Við getum fylgzt með þróun leiksins
um 900 ára skeið í kinverskum bók-
menntum, hvernig kínverjarnir eltu og
spörkuðu þessum háraknetti sínum.
Þeir höfðu félög, þeir höfðu deildaskipt-
ingu alveg eins og nú tíðkast — og
þeir höfðu meira að segja bikarkeppnir.
Það liðu mörg ár áður en knattspyrn-
an hélt innreið sína í Evrópu, og það
voru auðvitað ítalir, sem voru þar að
verki. Þeir höfðu ekki neina ákveðna
stærð á knattspyrnuvellinum og þeir
kærðu sig heldur ekki um neina af-
skiptasemi í sambandi við leikinn, eins
og það að hafa dómara!
Þeim var það nóg að knötturinn væri
á vellinum og þeir fundu það líka út að
knötturinn var mýkri ef hann var
fylltur með lofti í stað hára.
Frá Ítalíu „rúllaði" knötturinn til
Frakklands. Og nú voru það munkarn-
ir, sem fluttu leikinn inn. Þeir notuðu
leikinn sem skemmtiatriði á trúarhá-
tíðum sínum. Þeir voru annars mjög
djarfir leikmenn þessir munkar. Þeir
fundu það út að það væri mikið ódýr-
ara og endingarbetra að hafa knöttinn
úr tré! Og reglurnar sýna að þeir hafa
ekki verið neitt hræddir við að sjá
stjörnur. Það var nefnilega bannað að
snerta knöttinn með höndunum en
leyfilegt að skalla! Því miður höfum
við ekki skrá yfir hve margir munkar
týndu lífinu í þessum knattspyrnu-
kaþpleikjum, en hinsvegar skulum við
ekki gleyma því þegar við tölum um
harða knattspyrnuleiki, að eitt sinn var
leikin ennþá ruddalegri knattspyrna.
Og ef þessir munkar væru uppi nú,
myndu þeir kalla knattspyrnuna okkar
aðeins fyrir kvenfólk.
Það var fyrst í byrjun 18. aldar að
knattspyrnan barst til Englands, svo
það er hrein og bein fjarstæða að halda
því fram að England sé heimaland
knattspyrnunnar. Hinsvegar er það al-
veg rétt að Englendingar mótuðu knatt-
spyrnuna eins og hún er leikin í dag.
Þeir fundu upp leðurknöttinn, bjuggu
til knattspyrnureglur og byrjuðu að
nota dómara, í einu o.rði sagt, gerðu
knattspyrnuna eins „leiðinlega“ og við
sjáum hana leikna á íþróttavellinum
hvern einasta sunnudag.
En að hún hafi einu sinni verið fyrir
karlmenn, sannar eftirfarandi, er
franskur munkur skrifaði eftir kapp-
leik einn:
„Hvað knattspyrnu viðvíkur vil ég
fullyrða að hún getur ekki kallast frið-
samleg íþrótt eða skemmtun. Hún er
frekar blóðug slagsmál en félagslegur
kappleikur. Hver og einn leikmaður
bíður færis að þrífa mótherja sinn og
kasta honum til jarðar án þess að taka
tillit til þess hvað er undir. Það var
ekkert spurt hvar skyldi kasta mann-
inum, það átti bara að fleygja honum.
Og afleiðingin er sú að öðru hverju
brjóta þeir hálsinn, öðru hverju hrygg-
inn, öðru hverju hendur og fætur og
öðru hverju rennur bióðið úr nefinu
Það er heldur ekki neitt undarlegt
því að þeir nota allskonar óþokkabrögð
til að lama mótherjann, högg á hjarta-
stað reka olnbogann í magann eða slá
með krepptum hnefa upp undir rif-
in ....“
Hve margir áhorfendur myndu koma
á Laugardalsvöllinn ef 22 miðalda-
munkar, klæddir í svarta kufla, léku
þar hver á móti öðrum, sparkandi
knetti. Það yrði leikur leikjanna.
En sem betur fer er það útilokað.
Landsmótin
Yfirleitt munu landsmótin í knatt-
spyrnu hefjast í júní mánuði. Keppni í
1. deild hinn 18. júní n. k. og II. deild-
ar keppnin hér á suðursvæðinu 2. júní.
Knattspyrnuráð Reykjavíkur sér um
framkvæmd mótsins í I. deild, svo og
um II. deildar keppnina á suð-vestur-
svæðinu, að undanskildum nokkrum
leikjum, sem fara fram á vegum í-
þróttabandalags Vestmannaeyja og
íþróttabandalags Suðurnesja. Knatt-
spyrnuráð Akureyrar mun sjá um
framkvæmd I. deildar keppninnar á
norður svæðinu.
Landsmót í öðrum flokkum mun
K.R.R. sjá um, að undanskildum ein-
um riðli í 4. flokksmótinu, sem fram
fer á vegum íþróttabandalags Keflavík-
ur. Að þessu sinni verður bætt við
einum aldursflokki í landsmóti, en það
er 5. flokkur.
Landsleikir.
Tveir landsleikir verða háðir á árinu;
verður annar við íra, en sá leikur
fer fram í Reykjavík 11. ágúst n. k.
Leika þeir einnig tvo aukaleiki, 13. og
15. ágúst. Hinn landsleikurinn verður
háður við Breta og fer sá leikur fram
í London 13. sept. Tveir aukaleikir
verða leiknir.
Heimsóknir og utanferðir
Auk milliríkjaleikja þeirra, sem áður
eru taldir, munu þessar heimsóknir
og utanferðir eiga sér stað: Enska at-
vinnuliðið Bury F. C. kemur hingað í
boði KR og lið frá S.B.U. í Danmörku
verður hér um miðjan júlí í boði Fram.
Mun Fram síðan fara utan í boði SBU.
Um mánaðamótin júní—júlí koma hing-
að tvö dönsk unglingalið. Annað er frá
Roskilde í boði Fram og hitt frá Bags-
wærd í boði KR. Er hér um gagnkvæmt
boð að ræða og munu flokkar frá þess-
um félögum fara utan síðar. Þá er á-
kveðið að II. flokkur Í.A., Akranesi,
fari til Svíþjóðar og Finnlands í sumar,
2. flokkur KR til Þýzkalands og 3. fl.
Þróttar til Danmerkur. Loks má geta
þess að Í.A., Akranesi, hefur fengið
leyfi til að bjóða þýzku I. deildar liði
hingað til lands, en sú heimsókn mun
ekki vera ákveðin enn.
Skautamót Akureyrar (5000 m hlaup):
2. Sigfús Erlingsson .......... 10:53,2
3. Kristján Árnason ........... 10:54,6
Línur þessar féllu niður á bls. 7.