Norðanfari - 14.02.1942, Qupperneq 3
NORÐANFARX
3
Fyrsti fundur hinnar ný-
kjörnu bæjarstjórnar. r
Indriði Helgason og Ólafur Thorarensen ganga í kosn-
ingabandalag við K.E.A.-menn og Erling Friðjónsson.
Fundurinn var haldinn 3. þ. m.
og var eigi annað á dagskrá en
kosning forseta, bæjarstjóra, fastra
nefnda innan bæjarstjórnar, end-
urskoðenda og ýmsra nefnda, sem
bæjarstjórn kýs.
Árni Jóhannsson var kosinn for-
seti með 7 atkv. Voru það atkvæði
þeirra K. E. A.-manna og sam-
bandsmanna þeirra. Indriði Helga-
son fékk 1 atkv., Sjálfstæðismanns-
ins Jóns Sveinssonar.
Varaforseti var kosinn Indriði
Helgason með 7 atkv. sömu manna.
Ólafur Thorarensen fékk 1 atkv.
Bæjarstjóri var kosinn Steinn
Steinsen með 6 atkv., 5 seðlar voru
auðir.
! fjárhagsnefnd voru kosnir: Af sam-
bandslistanum Jakob Frímannsson og
Ólafur Thorarensen og af kommúnistum
Steingrímur Aðalsteinsson. Á lista Sjáit-
stæðismanna var Ó. Th. og hlaut sá listi
1 atkv.
Var síðan kosið áfram í aðrar nefndir,
hlutbundinni kosningu, og hlaut sam-
bandslisti kaupfélaganna ávallt 7 atkv.,
kommúnistaiistinn 3 atkv., en listi Sjálf-
stæðismanna 1 atkv. og kom aldrei manni
að.
I nefndir og starfa var skipað þannig:
Nöfn frambjóðenda Sjálfstæðislistans
eru í svigum fyrir aftan.
Vatnsveitunefnd: Erl. Fr., I. H., Tr.
H. (I. H,).
Veganefnd: Ó. Th., Þ. M. J., Jak. Á.
(J. Sv.).
Rafveitunefnd: Erl. Fr., Jónas Þór, I.
H. , Brynj. Sv., Áskell Snorrason (I. H.,
Axel Kr.).
Jarðeignanefnd: Á. Jóh., Ólafur Jóns-
son, Hafsteinn Halldórsson, Magnús
Gíslason (Jón Geirss., Ó. Th.).
Sundnefnd: I. H., Jr.k. Fr., Tr. H. (Ó.
Th.).
Brunamálanefnd: Þ. M. J., I. H., Erl.
Fr., Stgr. Aðalst. (Ó. Th.).
Húseignanefnd: Á. Jóh., Ó. Th., Jak. Á.
(I. H.).
Kjörskrárnefnd: Brynj. Sv., I. H., Jó-
hannes Jósefsson (Ó. Th.).
Búfjárræktarnefnd: Þ. M. J., Svanl.
Jónass., Gestur Jóhannss. (ó. Th.).
Hafnarnefnd: Innan bæjarstjórnar: Á.
Jóh., Erl. Fr. (J. Sv.).
Utan bæjarstjórnar: Jakob Karlsson,
Zóphónias Árnason (Guðm. Guðm.).
Bygginganefnd: Innan bæjarstjórnar:
I. H., Á. Jóh. (I. H.).
Utan bæjarstjórnar: Ól. Ágústss., Tr.
Jónatanss. (Sig. Hanness.).
Caroline Rest-nefnd: Jak. Fr., Ó. Th,,
Óskar Gíslason (I. H.).
Hitaveitunefnd: Þ. M. J., Steind. Steind.,
Tómas Björnss., Stefán Árnas., Steingr.
Aðalsteinss., Halld. Halld. (Br. T., I. H.).
Allsherjarnefnd: Jak. Fr., I, H., Jak. Á.
(J. Sv.).
Framfærslunefnd: Jóhannes Jónasson,
Jakob Ó. Péturss., Á. Jóh., Halldór Frið-
jónss., Elísabet Eirkísd. (Sveinn Bjarna-
son, Steinn Steinsen).
Varamenn: Haraldur Þorvaldsson,
Helga Jónsdóttir, Guðbjörn Björnsson, Þ.
M. J., Eggert Ól. Eiríksson (Sveinn
Bjarnason, Steinn Steinsen).
Fræðsluráð: Þ. M. J., Fr. Rafnar, Þór-
arinn Björnsson, Elísabet Eiríksdóttir
(J. Sv., Arnfinna Björnsd.).
Varamenn: Þorst. Stefánss., Gunnl. Tr.
Jónss., Steind. Steind., Geir Jónasson
(Arnfinna Björnsdöttir).
Barnaverndarnefnd: Fr. Raínar, Fr.
Magnúss., Helga Jónsd., Helgi Ólafss.,
Sigr. Þorst. (Arnfinna Bj., Jóninna Sig-
urðardóttir).
Varamenn: Steinþór Jóhannss., Gunnh.
Ryel (Arnfinna Bj.).
Spítalanefnd: ó. Th., Stefán Árnason,
Sigr. Þorst. (Gísli R. Magnússon).
Varamenn: Brynj. Sv., I. H., Óskar
Gislason (Gísli R Magnússon).
Mjólkurverðlagsnefnd: Jak. Ó. Péturs-
son, Stgr. Aðalsteinss. (I. H.).
Varamenn: Jón Sólnes, Magnús Gisla-
son (I H.).
Skólanefnd Gagnfæðaskólans: St. Árna-
son, Axel Kr., Halldór Frijónsson, Halld.
Halld. (Br. T., Arnfinna Bj.).
Sóttvarnanefnd: Steind. Steind. (Ó.
Th.).
Heilbrigðisnefnd: Þ. M. J. (Ó. Th.).
Verðlagsskrárnefnd: Jak. Fr. (I. H.).
Yfirkjörstjórn: Ingimar Eydal, Axel Kr.
(Jak. Karlsson).
Varamenn: Kristinn Guðm., I. H. (Jak.
Karlsson).
Undirkjörstjórn: Fr. Magnúss., Jak.
Karlss., Ásk. Snorras. (I. H.).
Varamenn: Þorst. Stefánss., Kristján
Arnas., Óskar Gíslason (I. H.).
Endurskoðendur bæjarreikn., P. Ein-
arsson, Brynj. Sv. (P. Einarsson).
Varamenn: Jóh. Frímann, Árni Sigurðs-
son (Árni ólafsson).
Sjúkrasamlagsstjórn: Á. Jóh., Steingr.
Jónssn, Jón Hinriksson, Jak. Á. (Vald.
Steffensen, J. Sv.).
Varamenn: Jóh. Frímann, Jak. ó. Pét-
urss., Steind. Steind., Ásk. Snorrason
(Vald. Steffensen).
Stjórn Sparisjóðs Akureyrar: Steingr.
Jónss., Þórarinn Bj. (J. Sv.).
Endurskoðendur Sparisjóðs Ak.: Brynj.
Sv., Axel Kr. (Ární ólafsson),
Varamenn: Gunnl. Tr. Jónsson, Torfí
Guðm. (I. H.).
Eftirlaunasjóður: A, Jóh., I. H. (Ó.
Th.).
Varamenn: Þ. M. J., Ó. Th. (Ó. Th.).
Úthlutunarnefnd: Erl. Fr., Axel Kr.,
Brynj. Sv., Bogi Ágústss. (Helgi Pálss.).
K. E. A.-menn mættu fyrstir á
fundinum, ásamt þeim Indriða og
Ólafi. Árni Jóhannsson sagði þeim
til sætis. Bað hann K. E. A.-menn
að sitja yzta á vinstri hönd forseta
og hið næsta þeim þá Indriða og
Ólaf. Kommúnistar tóku sér sæti,
samkvæmt venju, yztir á hægri
hönd forseta, en Árni vildi, að Jón
Sveinsson sæti fyrir miðju á
hægri hönd forseta og bað hann
Erling að standa upp úr sínu
gamla sæti og sitja þar út í frá
með Jóni. Hingað til hefir gilt sú
venja, að bæjarfulltrúar hafa tek-
ið sér sæti eftir vild, og vildu sumir
gera það enn eða þá láta hluta um
sæti. En Árni vildi hér ráða, taka
upp reglur K. E. A. og ekki líða
fulltrúunum neitt sjálfstætt brölt.
Var sem hann vildi sýna, að nú
væri kominn einráður og samhuga
meiri hluti í bæjarstjórninni, sem
ætlaði að hlýða æðri skipun og
„rétta upp putana“ eftir því, sem
þeim væri fyrir sagt, sbr. kosning-
ar í K. E. A.
Kosningin stóð yfir í 3 klst. og
lék sigurbros og húsbóndasvipur á
andlitum K. E. A.-manna allan
fundinn, og einnig undu þeir bæj-
arstjóri og Ó. Th. sér sýnilega
mjög vel. En I. H. var ákaflega
hnipinn, ýmist rauður sem dreyri
eða fölur sem nár, og leið honum
sýnilega mjög illa. Erlingur var fá-
látur, en reyndi þó að bera sig
mannalega, og kommúnistar voru
hljóðir. Jóni Sveinssyni sá enginn
bregða.
Vinnustöðvun prentara.
#
Vinnustöðvun prentara í
Reykjavík lauk með því, að
prentarar tóku upp vinnu að nýju
með sömu kjörum og verið hafði.
Má því gera ráð fyrir, að blaða-
útgáfa í höfuðstaðnum sé nú lcom-
in í venjulegt horf. Af því leiðir
aftur, að ákvæði bráðabirgðalaga
frá 17. jan. s.l. koma til fram-
kvæmda, þannig að bæjarstjórn-
arkosningar verði látnar fram
fara sem næst að 4 vikum liðn-
um.
Um úrslit bæjarstjórnarkosn-
inganna í Reykjavík skal engu
spáð, en naumast verður það tal-
inn góðs viti, að kommúnistum og
krötum tókst í byrjun þessa mán-
aðar að ná í sínar hendur stjórn
MANNALÁT
Dáinn er hjer í bænum 30. f.
m. Friðrik Kristjánsson húsgagna-
smiður, f. 22. dec. 1895 á Akur-
eyri, kvæntur 1920 Maríu Þur-
íði Jónsdóttur frá Drangsnesi í
Strandasýslu, hinni mestu atgerv-
is- og myndarkonu. Lifir hún
mann sinn, ásamt þremur börnum
þeirra: Önnu Sigríði, Héðni og
Jóni Kristjáni.
Friðrik sál. var hinn bezti
drengur, prúður í framgöngu og
ágætur heimilisfaðir. Hann veitti
forstöðu „Dívanastofu Akureyrar“.
Lengi hafði hann verið heilsuveill,
en bar þrautir sínar með karl-
mennsku. — Jarðarför hans fór
fram 10. þ. m. við fjölmenni.
Árni Kristjánsson verzlm. and-
aðist hjer í bæ 9. þ. m., 89 ára að
aldri. Hafði hann dvalið hér hjá
Kristjáni kaupm. syni sínum frá
1919, og fjekkst hann við skrif-
stofustörf við verzlun hans, og
sinnti hann þeim með prýði til
æfiloka. Árni sál. átti langan og
merkilegan starfsferil að baki.
Fæddur var hann 25. ág. 1852,
sonur hjónanna Kristjáns Árna-
sonar, hrstj. í Ærlækjarseli, og
Sigurveigar Guðmundsdóttur. —
Árni sál. naut aðeins sex vikna
kennslu hjá presti. Bráðger var
hann, manna bezt gefinn, lista-
skrifari og vel að sjer um margt.
Búskap hóf hann í Ærlækjarseli
en lengst bjó hann á Lóni í
Kelduhverfi. Þessi gervilegi vask-
leikamaður gerðist þegar snemma
hjeraðshöfðingi: hreppstjóri 32 ár,
sýslunefndarmaður, amtráðsmað-
ur, átti sæti í landsdómi og for-
ustumaður um verzlunarsamtök
sýslunga sinna. Einn af stofnend-
um K. Þ. og síðar lengi frkvstj.
Kaupfjelags Norður-Þingeyinga,
Kvæntur var hann Önnu Hjör-
leifsdóttur prests á Skinnastað,
Guttormssonar, en missti hana
1921. Börn þeirra eru þeir Guð-
mundur, nú bæjarpóstur hjer, og
Kristján kaupm. í Verzl. Eyja-
fjörður, báðir hinir mestu merkis-
menn. Tvær dætur áttu þau hjón
einnig, en misstu þær báðar á 1.
ári.
Lík Árna verður flutt til greftr-
unar að Tjörn í Svarfaðardal 18.
þ. m., en sorgarathöfn fer fram
hjer í kirkjunni 17. þ. m., og
hefst hún kl. 2,30 e. h.
Síðasti amtráðsmaður í Norð-
ur- og Austuramtinu er með Árna
sál. til grafar genginn.
verkamannafélagsins Dagsbrún,
með yfirgnæfandi meirihluta,
1073 atkv. gegn 719.