Vestfirðingur - 27.06.1952, Side 1
0
VESTFIRÐINGUR
Isafjlörður, 27. júní 1952.
Þjóðin verður að vernda rétt sinn.
Þar, sem ekki er lýðræði eða
frjálsar kosningar, á almenningur
engan annan rétt en þann, sem
valdhafamir veita honum af náð
sinni, þegar vel liggur á þeim.
Þar, sem raunverulegt lýðræði
ríkir, og fjöldinn þekkir rétt sinn
og vald, eiga valdhafamir veg
sinn og gengi undir náð fjöldans.
Nægir að benda á það, þessu til
sönnunar, að meðan síðasta styrj-
öld stóð', gaf enska þjóðin Churc-
hill svo að segja ótakmarkað ein-
ræðisvald. Þegar stríðinu var lok-
ið og friðarstörf fram undan, neit-
aði þjóðin honum afdráttarlaust
um umboð til að stjórna áfram,
þrátt fyrir alla þá aðdáun, sem
hún hafði á honum sem leiðtoga
á stríðsárunum.
Og vitanlega lagði Churchill
möglunarlaust niður völdin.
Vonandi gerir meiri hluti ís-
lenzku þjóðarinnar sér ljóst, að
hún er sjálf hinn raunverulegi
valdhafi. Þingmennirnir eru þjón-
ar hennar. Þjóðin hefir gefið þeim
umboð til að fara með löggjafar-
valdið í landinu. Þess vegna beygir
hún sig líka *fyrir ákvörðunum
þeirra á því sviði.
Þegar að því kom að ákveða,
hvemig forseti hins íslenzka lýð-
veldis skyldi valinn, mun það hafa
verið ofarlega í hugum margra
þingmanna, að þingið réði þessu
eins og öðru.
Fjöldi manna meðal almennings
óskaði eindregið eftir, að forsetinn
yrði þjóðkjörinn. Varð það ofan á.
Þennan rétt vildi þjóðin eiga
óskoraðan, og þennan rétt telur
hún sig eiga. Hún telur nóg að-
gert samt um vald þings og stjórn
ar, þó að hún haldi þessum rétti
— íhlutunarlaust.
Það fer jafnan svo, að þegar
einstakir menn eða flokkar manna,
hafa komist yfir meiri auð eða
meiri völd, heldur en almennt ger-
ist, verða þeir þeim mun áfjáðari
í að auka auðinn eða völdin, sem
þeir eignast meira af þessum
heimsins gæðum.
Saga vor úir og grúir af dæm-
um, er sanna þetta. Það var þessi
eðlishneigð, sem olli því öllu öðru
fremur, að þjóðin týndi frelsi sínu
og sjálfstæði á sínum tíma.
Það er ekkert því til fyrirstöðu,
að afleiðingar geti orðið hinar
sömu enn í dag, — ef þjóðin er
ekki á verði.
Einmitt þess vegna er það lífs-
nauðsyn, þegar þjóðin gefur ein-
stökum mönnum eða flokkum um-
boð, áð gjalda varhuga við ágengni
þeirra og hneigð til að taka sér
meiri völd, en þeim eru veitt.
Foringjar stjórnmálaflokkanna
hafa fullan rétt til að taka á-
kvarðanir um stefnumál og þing-
mál innan þeirra takmarka, sem
Ásgeir Ásgeirsson, bankastjóri og
almenn lög og reglur flokkanna á-
kveða.
Seilist þeir út fyrir þessi tak-
mörk, er framtíð hins sanna lýð-
ræðis í veði, ef þjóðin er ekki vak-
andi á verðinum. Þá ber henni að
segja: Hingað og ekki lengra.
Þau undur hafa gerst með þjóð
vorri, að foringjar tveggja stærstu
stjórnmálaflokkanna hafa tekið
sér vald til að bjóða fram forseta-
efni í nafni flokkanna.
Enginn véfengir rétt þessara
manna, sem íslenzkra ríkisborgara
til að bjóða fram og styðja til for-
setakjörs hvern þann mann, er
þeim þóknast. Hitt leikur ekki á
tveim tungum, að þegar þeir leyfa
sér að bjóða fram mann í nafni
flokkanna, leggja undir sig blöð
þeirra og nota þau til hins svæsn-
asta áróðurs, þá eru þeir komnir
langt út fyrir það valdsvið, sem
þeim er markað.
Enginn kjósandi, sem ann lýð-
ræði, enginn, sem á sjálfstæða
hugsun og heilbrigðan metnað,
lætur slíkt viðgangast óátalið.
Þarna er alger óþarfi fyrir nokk-
urn mann að láta harðan áróður
eða jafnvel hálfgildingshótanir
beygja sig. Þegar kosningahríðin
er hjá liðin, munu foringjamir
láta sér annara um að vinna aft-
ur hylli þeirra, sem farið hafa
sinna ferða í þessu máli, heldur en
að dekra við hina, sem falla fram
og tilbiðja þá, hvað sem þeir taka
sér fyrir hendur.
Skiljanlegri hefðu þær verið, að-
farir stjórnmálaforingjanna, ef
fram hefðu verið komnar háværar
og eindregnar óskir um það, að
séra Bjarni yrði i kjöri.
kona hans frú Dóra Þórhallsdóttir.
En það var öðru nær.
Ekki verður það sannað, að eng-
um hafi dottið séra Bjarni í hug,
en þeir hinir sömu — ef nokkrir
voru — höfðu að minnsta kosti
ekki látið á sér kræla.
Og eitt er víst.
Foringjunum datt hann ekki í
hug, fyrr en þeir höfðu leitað út
og suður, austur og vestur eftir
forsetaefni.
Mennirnir, sem leitað var til,
höfðu neitað afdráttarlaust.
Það voru vitrir menn.
Á seinustu árum hefur flokks-
ræðið færzt ískyggilega í aukana
hjá okkur íslendingum og beinlín-
is virzt stefna að því að þoka
þjóðarviljanum til hliðar. í öllum
þeim málum, sém nokkm skiptir
fyrir þjóðina, hafa flokksstjórn-
irnar ákveðið úrslitin með alls
konar samningabraski sín á milli
þegar hverja þeirra hefur skort
þingræðislegan meirihluta til þess
að ákveða um úrslitin.
Fjöldi einstaklinga hefur dulið
óánægju sína og gremju og látið
Ein höfuðástæðan fyrir neitun
þeirra hefir sennilega verið sú, að
þeir hafa ekki talið foringjana
hafa umboð fyrir aðra en sjálfa
sig og í hæsta lagi nokkra menn
úr miðstjómum flokkanna.
Séra Bjami er gamall maður,
sem alla ævi hefur haft öðm að
sinna en að vasast í völundarhúsi
stjórnmálanna.
Það er ekki sennilegt, að hann
hafi gert sér ljóst umboðsleysi
þeirra, er til hans leituðu.
Ekki verður sagt að gömlum
starfsmanni í víngarði drottins
hafi verið sýnd sérstök virðing
með því að grípa til hans út úr
neyö, þegar allir hinir æskilegu
brugðust. Og það er ekki fallegt
að þvæla öldnum heiðursmanni,
sem lokið hefir dagsverkinu með
sóma, út í slika eldhríð, sem þess-
ar forsetakosningar hafa orðið
fyrir atbeina þeirra manna, er að
honum standa.
Leikurinn er ekki fagur, hvar
sem á hann er litið.
En sízt hæfir hann drottins
þjónum og gömlum glímukóngum.
Það getur vel verið, að ráðherr-
arnir okkar séu hæfustu mennirn-
ir, sem við eigum völ á, eins og
stendur, til að fara með fram-
kvæmdavaldið í landinu.
Um það skal ég ekki dæma.
En þarna hafa þeir gerst djarf-
tækari til valda, en hollt er eða
æskilegt.
Þess vegna mun þjóðin segja á
sunnudaginn kemur:
Hingað og ekki lengra.
kyrrt liggja, en með geig í brjósti
minnst þeirra ógnarstjórna, sem
sterkt og blint flokksræði hefur
skapað.
Þegar til þess kom að velja
þjóðhöfðingja hér á landi með
frjálsum kosningum, töldu flokks-
bundnir einstaklingar, að nú væri
komin sú stund, að þeir mættu
velja eftir sannfæringu, an flokks-
legra fyrirskipana eða álaga. Mik-
ill hluti þjóðarinnar hafði valið
forsetann áður en til framboðs
kom. Ásgeir Ásgeirsson hafði með
B. H. i.
Þjóðarvilji eða foringjavald.
r 3.NDSBÓKASAFN
Lvi «89034