Sólargeislinn - 01.01.1942, Page 2

Sólargeislinn - 01.01.1942, Page 2
2 Sólargeislinn LESKAFLAR SUNNUDAGASKÖLANS 1. Innreið Jesö í Jerusalem. Minningarorð: Blessaðor sé sá sem kemur i nafni Drottins. Bæði fyrr og síðar hafa konungar og sigurveg- arar haldið innreið sína í hina sögufrægu Jerúsal- emsborg. En enginn þeirra nefir komið á sama hátt og Jesús. Ríki hans var ekki af þessum heimi, þess vegna kom hann ekki með fyiktu herliði, eins og aðrir sigurvegarar, sem stríða með jarðneskum vopn- um og skilja eftir á leið sinni eymd og dauða, sár og kveinstafi, ekkjur og föðurlaus börn. Á þeirra kosínað vinna herforingjar heimsins sigra sína. Jes- ús sigraði í krafti kærleika. Hans ríki var æðra öll- um heimsins ríkjum. 1 fylgd með honum var fjöldi manna, kvenna og barna, sem hann hafði læknað og frelsað frá valdi illra anda. Allt þetta fólk söng nú fagnaðarsöngva, sem minntu á jólasöng englanna á Betlehemsvöllum, er Jesús kom í heiminn: »Bless- aður sé ltonungurinn, sem kemur í nafni Drottins! Dýrð sé Guði! Friður á jörðu og dýrð í upphæðum!« Og svo stráði mannfjöldinn blómum og trjágrein- um á veginn fyrir Jesúm, sumir breiddu jafnvel klæði sín á götuna, þar sem hann kom. En það voru ekki allir, sem fögnuðu Jesú, eða viðurkenndu kon- ungstign hans. Margir öfunduðu hann og leituðust ívið að ráða hann af dögum. Jesús þekkti líka hugs- anir þeirra, og er hann nálgaðist borgina, grét hann vegna þessara vondu manna, sem hann vissi, að

x

Sólargeislinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sólargeislinn
https://timarit.is/publication/1908

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.