Sólargeislinn - 01.01.1942, Page 3

Sólargeislinn - 01.01.1942, Page 3
Sólargeislinn 3 myndu, með hörku sinni og vantrú, leiða dóm Guðs yfir þjóð sína. Lesið Lúkas 19, 29—44. »Kóng minn, Jesús, ég kalla þig, kalla þú þræl þinn aftur mig. Herratign enga að heimsins sið, held ég, þar mega jafnast við«. Kr. Sæm. Gréta. Hún er svo inndæl hún Gréta litla, þar sem hún situr í sunnudagaskóíanum, sunnudag eftir sunnu- dag. Enginn tekur betur eftir en hún. Pegar ég er að segja frá Jesú, er hún ekkert nema eftirtekt. Stóru skæru augun hennar, og allt and- litið, endurspeglar einlægan áhuga. Það er því lík- ast, sem hún megi ekki missa eitt einasta orð. Hún svarar einnig spurningum betur en nokkur annar, enda þótt að hún sé svona lítil. Dag einn var eldri systir hennar ekki með henni. Þær fylgjast annars alltaf að, því að það er löng leið að fara til sunnudagaskólans. Eldri systir hafði svo mikinn hlustarverk, að hún gat ekkí sofið nótt- ina áður, svo að hún varð að vera kyrr heima^ Gréta litla var áhyggjufull. »Hvað eigum við að gera fyrir Maju okkar, sent er veik?« spurði ég. »Við skulum biðja«, svaraði hún. Gréta veit að bænin hjálpar. Alltaf hefir hún eitt- hvert bænaefni að leggja fram, eitthvað, sem hún þráir að Jesús hjálpi sér með. Ef til vill, er ekki æfinlega hætta á ferðum, en hún þráir svo heitt, að

x

Sólargeislinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sólargeislinn
https://timarit.is/publication/1908

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.