Sólargeislinn - 01.12.1942, Blaðsíða 2

Sólargeislinn - 01.12.1942, Blaðsíða 2
46 Sólargeislina LESKAFLAR SUNNUDAGASKÖLANS 12. Texti: »Minnst þu Jesií Krists«. 2. Tím. 2, 8. Post. 1, 9—11. Mirvmngarorð: »Minnst þú Jesú Krists, 2. Tím. 2, 8. Textinn í þessu blaði er stuttur, aðeins eitt vers, en þó svo lærdómsríkur. Pað talar svo alverlega til okkar þetta orð: Minnst þú Jesú Krists. Við eigum öll mínningar ge/mdar í hjörtum okkar, minning* ar um það, sem hefir mætt okkur í llfiun. Þær g'eta verið bjartar og hlýjar, en þær geta líka verið dimm- ar og sárar. En það, sem er þýðingarmest, er að við minnumst Jesú Krists. Pað er ekki aðeins að hug'sa endrum og eins um hann, heldur að minnast þess af hjarta, sem hann hefir gert fyrir okkur. Hann kom til þess að frelsa okkur, en til þess þurfti hann að líða og deyja kvalafullan dauða á krossi. En eftir það reis hann upp og fór til himins. Nú. vill hann búa í hjörtum okkar, en til þess, að hann gæti það, þurfum við að biðja hann að hreinsa þau af öllu því, sem ljótt er, því að Jesús getur ekki buið nema í hreínu hjarta. Biðjum hann nú í einlægni að hreinsa hjörtu okkar, og taka sér bústað þar, svo að við getum ávallt tilheyrt honum í lífi og dauða. Tá, gerum það, því að liann þráir að mega frelsa litlu börnin, og vera Guð þeirra. Konráð.

x

Sólargeislinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sólargeislinn
https://timarit.is/publication/1908

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.