Sólargeislinn - 01.12.1942, Blaðsíða 3
Sólargeislinn
47
Bragi litli.
Brag'i var duglegur drengur. En hann átti það ti!
að vera stundum nokkuð óhlýðinn við mömmu sína.
Meðal annars kom það fram í því, hve hann sótt-
ist eftir að vera niðri við ána, sem rann í gegnum
kauptúnið. En mamma hans hafði stranglega bann-
að honum að vera þar, því það gæti orðið að slysi.
Lítill drengur, sem einu sinni var að leika sér við
ána, hafði drukknað í henni. En Bragi litli skeytti
í engu áminningu mömmu sinnar. Einu sinni þeg-
ar hann svo var niðri við ána að leika sér, sá hann
lítinn bát, sem bundinn var með ]angri taug við
stóran stein í flæðarmálinu. Báturinn var á floti
og hug'saði Bragi litli nú með sér, að þarna gæti
hann skcmmt sér ágætlega, með því að draga til
sín bátinn, fara upp í hann og láta strauni-
inn svo bera hann aftur frá landi. Báturinn var
vel bundinn við stóra steininn, svo þetta hlaut að
vera óhætt. Auk þess sá enginn maður til hans. Hann
dró þvínæst bátinn til sín og ætlaði að hoppa upp
í hann. En þá skeði nokkuð óvænt. Hann rasaði til, og
í stað þess að lenda uppi í bátnum, lenti hann ut-
an í honum, en náði þó taki á borðstokknum uin
leið. 1 sömu svifum bar straumurinn bátinn út á
byldýpið. En Bragi litli neytti allrar orku sinnar
til að halda sér föstum við bátinn. 1 þessu ástandi
var nú Bragi litli, þegar mann nokkurn bar þarna
að, sem gat bjargað honum til lands, og fært hann
iennandi blautan heim til mömmu sinnar. Svona
fór fyrir Braga litla, af því að hann óhlýðnaðisí