Bæjarblaðið Jökull - 05.10.2023, Qupperneq 1
Nú geta krakkar í Snæfellsbæ
farið að æfa rafíþróttir en æfingar
byrjuðu formlega í þessari viku.
Gunnlaugur Páll Einarsson og
Hreinn Ingi Halldórsson verða
þjálfarar í vetur og fara æfingarnar
fram í Félagsmiðstöðinni á Hell-
issandi. Hópnum verður skipt í
tvo aldusrhópa og þeim hópum
skipt í tvennt svo flestir komist
að, þannig komast 20 börn að úr
5.-7. bekk og 20 börn úr 8.-10.
bekk. Æfingar yngri hóparanna
verða mánudaga og þriðjudaga
og eldri hóparnir verða miðviku-
daga og fimmtudaga.
Lionsklúbbur Ólafsvíkur færði
ungmennafélaginu styrk að upp-
hæð 250.000 krónur við tilefnið
en honum er ætlað að styðja enn
frekar við þróun rafíþrótta í bæj-
arfélaginu. Ungmennafélagið hef-
ur lagt mikið á sig til þess að auka
fjölbreytni í afþreyingu sem boð-
ið er upp á og mun þessi styrkur
koma sér vel í þeirri áframhald-
andi vinnu. Tinna, Gulli og Hreinn
tóku við styrknum fyrir hönd ung-
mennafélagsins Víkings/Reynis en
á myndinni eru einnig Hilmar og
Sigurður fyrir hönd Lionsklúbbs
Ólafsvíkur.
JJ
1083. tbl - 23. árg. 5. október 2023
Æfingar í rafíþróttum hafnar í Snæfellsbæ
- Bílaviðgerðir
- Skipaþjónusta
- Almenn suðuvinna
- Smurþjónusta
- Smábátaþjónusta
- Dekkjaverkstæði
vegr@vegr.is vegr.is
S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
Líkt og kom fram í síðasta
tölublaði Jökuls voru aðstand-
endur myndarinnar Heimaleik-
urinn staddir í Svíþjóð á dögun-
um þar sem myndin var tilnefnd
í flokki bestu norrænu heim-
ildarmyndarinnar til Nordisk
Panorama verðlaunanna í Mal-
mö en Nordisk Panorama há-
tíðin er stærsta heimildar-
myndahátíð Norðurlandanna.
Heimaleikurinn, í leikstjórn
Smára Gunnarssonar og Loga
Sigursveinssonar, hefur hlotið
virkilega góðar móttökur frá því
hún fór í sýningar á kvikmynda-
hátíðum í vor. Um er að ræða
bráðfyndna mynd sem fjallar um
það hvernig Kári Viðarsson upp-
fyllir draum föður síns, Viðars
Gylfasonar, með því að safna í
lið heimamanna til að spila lang-
þráðan vígsluleik á fótboltavell-
inum sem Viðar lét byggja á
Hellissandi 25 árum áður. Á há-
tíðinni í Malmö hlaut myndin
áhorfendaverðlaun Nordisk
Panorama en verðlaunin eru
önnur áhorfendaverðlaun-
in sem Heimaleikurinn hlýtur.
Fékk hún einnig áhorfendaverð-
laun á heimildahátíðinni Skjald-
borg i byrjun sumars. Almennar
sýningar á Heimaleiknum hefj-
ast í Smárabíó og Bíó Paradís
þann 13. október næstkomandi
og í Frystiklefanum á Rifi laugar-
daginn 14. október.
SJ
Önnur áhorfendaverðlaun
Heimaleiksins