Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 02.11.2023, Blaðsíða 1

Bæjarblaðið Jökull - 02.11.2023, Blaðsíða 1
Hrekkjavakan er haldin 31. október ár hvert og þegar dagur­ inn lendir í miðri viku, líkt og í ár, notar heimsbyggðin oft helg­ arnar sitthvoru megin við daginn sjálfan til að halda upp á hann. Grímubúningar, grasker, draugar og leðurblökur eru áberandi á þessum tíma og halda vinnu­ staðir og heimili iðulega skemmti­ lega viðburði með drungalegum skreytingum. Í ár setti menn ingar ­ nefnd Snæfellsbæjar Pakk húsið í Ólafsvík í drungalega yfir halningu og bauð bæjarbúum að eiga hrylli­ lega huggulega sam verustund sunnudaginn 29. október. Á staðnum var 10. bekkur Grunn­ skóla Snæfellsbæjar með kaffisölu og Ungmennaráð Snæ fellsbæjar bauð upp á and lits málningu. Pakkhúsið var skreytt að ut­ an sem innan með drungalegum en fjölskylduvænum skreyting­ um sem bæði börn og fullorðn­ ir höfðu gaman af. Föndursmiðja var á staðnum fyrir áhugasama þar sem hægt var að föndra múmíu kertalukt eða hrekkjavöku skraut­ borða og á annarri hæð hússins var gestum boðið í draugaleit en 13 draugum hafði verið komið fyr­ ir á víð og dreif um safnið og mik­ ið kapp var lagt í að koma auga á þá alla. Mikill fjöldi barna og unglinga í metnaðarfullum búningum mættu á viðburðinn ásamt for­ eldrum, systkinum, ömmum og öfum. Mikið líf var í Pakkhúsinu þennan dag og hver veit nema komin sé á árleg Hrekkjavöku­ hefð í Snæfellsbæ. SJ 1087. tbl - 23. árg. 2. nóvember 2023 Hrekkjavaka í Pakkhúsinu Hleðsla á grjótgarðinum austan megin við félagsheim­ ilið Klif er komin langt á leið en þegar ljósmyndari átti leið hjá á dögunum var unnið við að steypa yfir ræsi á Hvalsá. Ver­ ið er að lengja ræsið sem upp­ runalega var þar. Aðalvinnu við uppsetningu nýs ræsis er lokið en nú á eftir að tengja það nýja við það gamla. Steypan fær svo þrjár vikur til að þorna og verð­ ur þá gengið frá í kringum ræs­ ið og hlaðið yfir það. Grjótgarð­ urinn verður því heill og sam­ felldur yfir alla lengjuna. Í sam­ tali við Guðjón Björnsson hjá Vegagerðinni segir hann þessa framkvæmd verða til mikilla bóta en Vegagerðin í Ólafsvík er með verkið og Narfeyri ehf hefur séð um uppslátt og steypu. SJ Nýtt ræsi á Hvalsá Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.