Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 02.11.2023, Blaðsíða 4

Bæjarblaðið Jökull - 02.11.2023, Blaðsíða 4
Sunnudaginn 29. október var haldin afmælisguðþjónusta á Ingjaldshóli. Tilefnið var 120 ára afmæli kirkjunnar. Dóra Sólrún Kristinsdóttir og Ægir Örn Sveins­ son sóknarprestur leiddu stund­ ina. Tónlistaratriði voru í hönd­ um Kirkjukórs Ingjaldshólskirkju, Elena Makeeva, Evgeny Makeev, bræðranna Gabríels Góa og Oli­ vers Mar Jóhannssona ásamt Sig­ ríðar Eyrúnar Friðriksdóttur. Að lokinni messu var veisluhlaðborð á vegum Kvenfélags Hellissands. Veðrið skartaði sínu fegursta og var engu öðru líkt að almættið sjálft fagnaði með gestum. Eins og fram kom í upphafi þá er kirkj­ an 120 ára en hvergi er bilbug að finna. Undanfarin ár hefur kirkjan verið í stöðugu viðhaldi og hefur það kostað skildinginn. Eins og áður hefur komið fram skartar nýr ljósakross og byggingarártal kirkj­ unnar á turni forkirkju og nú ný­ verið var flísalagður inngangur kirkju. Sóknarnefnd Ingjaldshóls­ kirkju vill koma á framfæri sérs­ tökum þökkum til eftirfarandi að­ ila og allra þeirra sem hafa stutt við kirkjuna í hvaða formi sem það er. Fyrir hönd sóknarnefndar, Ari Bent Ómarsson. 100 ára afmæli Brimilsvalla­ kirkju var fagnað þann 28. október með hátíðarmessu en kirkjan var vígð þann 28. október 1923. Séra Ægir Örn þjónaði fyr­ ir altari í messunni og Kirkjukór Ólafsvíkur leiddi safnaðarsönginn við undirleik Nönnu Aðalheiðar Þórðardóttur. Fyrr í haust voru haldnir afmælistónleikar Brim­ ilsvallakirkju þar sem leikin var tónlist, sungin lög og flutt erindi sem tengdust Brimilsvallakirkju á einn eða annan hátt. Í hátíðarmes­ sunni lokinni þann 28. október var kirkjugestum boðið til kaffi­ samsætis í Safnaðarheimili Ólafs­ víkurkirkju og var það Kvenfélag Ólafsvíkur sem sá um veglegar veitingar fyrir gestina. Í Safnaðarheimilinu hélt Ver­ onica Osterhammer, formaður af­ mælisnefndar Brimilsvallakirkju, ræðu og fór yfir hvað hefur ver­ ið gert fyrir kirkjuna. Auk Ver­ onicu sátu Sigurbjörg Kristjáns­ dóttir, Hanna Metta Bjarnadóttir, Séra Ægir Örn Sveinsson og Pétur Bogason í afmælisnefndinni. Aðr­ ir gestir tóku einnig til máls í kaffi­ samsætinu og fóru með áhuga­ verð erindi en það voru þeir Sturla Böðvarsson, Einar Svein­ björnsson og Séra Friðrik J. Hjart­ ar. Þorsteinn Jakobsson söng einnig nokkur lög við undirleik Valentinu Kay. Veðrið lék við kirkjugesti sem náðu að njóta afmælisdags Brim­ ilsvallakirkju til hins ýtrasta. SJ Ingjaldshólskirkja 120 ára Brimilsvallakirkja 100 ára Steinprent ehf. Skarðsvík ehf. Sandbrún ehf. Breiðavík ehf. Láarif ehf. Fiskmarkaður Íslands hf. Fiskmarkaður Snæfellsbæjar ehf. KG Fiskverkun ehf. Kristín Vigfúsdóttir Guðmundur Kristjánsson Guðbjartur ehf. Hópferðabílar Svans Kristóferssonar ehf. Snævélar ehf. Smári Jónas Lúðvíksson og fjölskylda Helga Hermannsdóttir og fjölskylda Lionsklúbbur Nesþinga Kristinn J. Friðþjófsson og fjölskylda

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.