Bæjarblaðið Jökull - 14.12.2023, Side 2
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur
frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Blaðið kemur út vikulega.
Upplag: 500
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf.
Sandholt 22a, Ólafsvík
355 Snæfellsbæ
Netfang: steinprent@simnet.is
Sími: 436 1617
Síðastliðinn fimmtudag gaf
Skóg ræktarfélag Ólafsvíkur
dvalar heimilinu Jaðri glæsilegt
3,5 metra hátt jólatré.
Jólatréð stendur fyrir framan
Jaðar og hefur verið skreytt með
jólaljósum. Tréð er um það bil
20 ára gamalt Sitkagreni. Grenið
var fellt inni í RARIK-skógi sem
er austast á svæði Skógræktarfé-
lagsins. Samkvæmt félaginu mun
þetta verða árlegur viðburður að
sjá dvalarheimilinu fyrir jólatré. Á
myndinni eru Vagn Ingólfsson og
Hilmar Már Arason úr stjórn skóg-
ræktarfélagsins að afhenda Kristni
Jónassyni og Steiney Kristínu
Ólafsdóttur tréð fyrir utan Jaðar.
JJ
Jólatré úr heimabyggð á Jaðar
Leikfangahappdrætti
Lionsklúbbs Nesþinga.
Árlegt jólahappadrætti Lkl. Nesþinga
verður haldið 23. desember kl. 17:00
og hvetjum við alla til að mæta.
Miðar verða til sölu í Hraðbúð Hellissands og Fönix
og á Þorláksmessu í félagsh. Röst á milli kl. 16-17.
ATH engin posi á staðnum.
Fjöldi veglegra vinninga
Aðeins dregið
úr seldum miðum.
Miðaverð 300kr.
- Bílaviðgerðir
- Skipaþjónusta
- Almenn suðuvinna
- Smurþjónusta
- Smábátaþjónusta
- Dekkjaverkstæði
vegr@vegr.is vegr.is
S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
Til leigu
80fm einbýlishús
á Hellissandi
frá 1. janúar 2024.
Upplýsingar veittar
í síma 697 3864.
HÚS TIL LEIGU
Á HELLISSANDI
Sunnudaginn 26. nóvember
fór árlegur jólabasar Félags eldri
borgara í Snæfellsbæ fram í félags-
heimilinu Klifi í Ólafsvík. Vandað-
ur varningur úr smiðju meðlima
félagsins var til sölu, prjónavör-
ur, blásið gler, útskorinn viður og
jólaskraut svo eitthvað sé nefnt
að ógleymdum kökunum, brauði,
kæfu og sultum. Jólalegir félagar
eldri borgara Snæfellsbæjar stóðu
vaktina og líkt og áður var kaffi-
salan á sínum stað. Þá gátu gestir
gætt sér á nýbökuðum vöfflum og
heitu súkkulaði eða kaffi. Aðsókn-
in á jólabasarinn var örlítið minni
en hefur verið undanfarin ár en
skrifast það eflaust á mikil veik-
indi í samfélaginu síðustu misseri
og mikinn ferðahug í bæjarbúum
rétt fyrir jólahátíðina. Þó var tölu-
verð umferð um basarinn af fólki
að næla sér í fallegar vörur í jóla-
pakkann eða á heimilið í góðum
félagsskap.
SJ
Jólabasar Félags
eldri borgara