Árnesingur - 01.06.1943, Blaðsíða 1
Kynningarorð
Stjórn Kaupfélags Árnesinga hefur á-
kveðið að byrja útgáfu félagsblaðs, sem
hér birtist í fyrsta sinni. Þykir rétt að gera
að upphafi nokkra grein fyrir þessari á-
kvörðun stjórnarinnar og fyrirætlunum
hennar um útgáfuna framvegis.
K. Á. mun aldrei hafa rekið neina svo-
kallaða útbreiðslustarfsemi, heldur munu
allir meðlimir þess hafa gengið í það af
eigin hvötum, eftir eigin athugun á því,
hvort þátttaka í félaginu væri þeim hag-
kvæm eða ekki. Það er ekki heldur nú til-
gangur félagsstjórnarinnar að víkja frá
þessari reglu með útgáfu blaðsins. Það
verður sent félagsmönnum endurgjalds-
laust og ekki leitað eftir frekari útbreiðslu
þess.
Þótt K. Á. sé meðal stærstu kaupfélaga
landsins, er það jafnframt meðal hinna
yngstu, nú aðeins á 13. starfsári. Endur-
tekin stórmistök í verzlunarmálum hér-
aðsins höfðu átt sér stað ekki löngu áður
en K. Á. var stofnað. Er því hvorttveggja,
að menn hafa hér um slóðir sérstaka
ástæðu til varfærni ög jafnvel tortryggni
í verzlunarfélagsmálum, enda hafa þeir
ekki langa samfellda reynslu um þau mál,
miðað við hin 60 ára gömlu kaupfélög
sumstaðar annarstaðar á landinu. Kem-
ur þetta fram í því, m. a., að af föstum
viðskiptamönnum eru hér hlutfallslega
færri félagsmenn heldur en títt er víða
annarstaðar.
Á hinum tiltölulega stutta starfstíma
hefur K. Á. þó tekizt furðanlega að koma
fyrir sig fótum efnalega, svo að það má
heita jafnvel statt að því leyti sem hin
eldri félög. Er hinu fremur áfátt, að mönn-
um sé hér vaxin félagshyggja og meðvit-
und um félagsþátttöku sína. Er blaðinu sér-
staklega ætlað að bæta úr þessu. Það á að
vera vettvangur umræðu um velferðarmál
félagsins, hverju nafni sem þau nefnast,
og er þess vænzt, að félagsmenn sendi blað-
inu greinar, fyrirspurnir og athugasemdir
varðandi félagsmál þau, sem ætla má að
gagnlegt sé að ræða opinberlega, og verður
þetta efni síðan tekið til birtingar og með-
ferðar í blaðinu eftir því, sem rúm þess og
ástæður leyfa. Enn fremur flytur það frá-
sögn af félagsrekstrinum, auglýsingar og
tilkynningar til félagsmanna.
Stjórnin treystir eingöngu á félagsmenn
og starfslið sitt til þess að halda blaðinu
úti með nægu og hæfilegu efni. Hún væntir
þess, að meiri þátttaka félagsmanna í um-
ræðum um félagsmál leiði til örari þroska
félagsins, til fleiri nytsamra nýmæla og
endurbóta á rekstri þess. Hún væntir þess
ennfremur, að blaðið geti treyst tengsli
félagsmanna og glætt áhuga þeirra fyrir
félagsskapnum, eytt misskilningi og kveðið
niður rangmæli um starfsemi þess. Fram
til þessa hefur af hálfu félagsins ekki verið
skeytt um kviksagnaflutning, sem sprottið
hefur af völdum andstæðinga þess eða af
misskilningi eða tortryggni félagsmanna
sjálfra. Gegn öllum slíkum mótbyr hefur
LAHDSt>£KAáA('f-J
JY3 15 438:-’
y. S bAíí!D s