Árnesingur - 01.06.1943, Qupperneq 2
2
ÁRNESINGUR
Fortíð og; framtíð
í nóvember 1930 komu nokkrir Árnes-
ingar saman á fund á Pósthúsloftinu við
Ölfusá. PósthúsiS var þá í smíðum, fund-
armenn voru rúmir 30. Á þessum fundi var
Kf. Árnesinga stofnað, ákveðið var þá þeg-
ar að kaupa Sigtún með nokkri verzlunar-
aðstöðu og að opna búð 2. janúar 1931. —
Ýmsum þótti þessir menn færast nokkuð
mikið í fang og fara óvarlega. Mikið var
um það rætt, að lítill félagsandi stæði á
bak við ráðstafanir þeirra, enda vantreystu
þá margir félagsþroska Árnesinga. —
Ljúft er mér að minnast góðs gests, sem
sat fundinn, Sigurðar Sigurðssonar, bún-
aðarmálastjóra. •— Sigurður var mikill
hvatamaður að félagsstofnuninni og á
fundinum spáði hann því, man ég, að Árn-
ingar mundu ekki eftirbátar annarra í fé-
lagsskap, þegar á reyndi. •—
Á þeim árum, sem ég síðan hef starfað
við K. Á., hefur mér oft komið í hug, að
Sigurður hafi þarna spámannlega mælt. —
Árnesingar hafa vissulega staðið einhuga
K. Á. til þess látið sér nægjá að vísa með
þögninni einni til þess árangurs, sem það
hefur náð og er auðfundinn og sýnilegur
hverjum manni, sem að honum hyggur.
Þetta aðgerðaleysi um sjálfsvörn félagsins
hefur dugað, enda ekki verið við neinn ó-
venjulegan andróður að stríða. Hins vegar
hafa nú nýlega verið látnar í ljós opinber-
lega fyrirætlanir óviðkomandi aðilja til
mikilsháttar íhlutunar um málefni sam-
vinnufélaganna í landinu. Má ætla að
þessum fyrirætlunum verði fylgt eftir á
næsta ófyrirleitinn hátt, enda hefir þess
þegar orðið vart á félagssvæði K. Á., bæði
í riti og í persónulegum áróðri við einstaka
félagsmenn. Gegn svo illkynjuðum og
skipulögðum áróðri móti félaginu, verður
það að snúast til nokkurrar varnar.
um félög sín, kaupfélagið og mjólkurbúið.
— Félagatalan hefur aukizt jafnt og þétt,
og eru nú flestir búandi menn sýslunnar i
K. Á. — Það hefur þótt nokkur gaili og fé-
lagslegt tómlæti, að lausafólk er ekki margt
í félaginu, og vissulega gæti það styrkt fé-
lagsskapinn, að það fjölmennti þar einnig.
Hygg ég líka að því muni smásaman fjölga,
en vel finnst mér það geta átt við hér
eins og annars staðar, að — „sígandi lukka
er bezt.“ -—
Bráðum eru liðin þrettán ár frá stofnun
K. Á. — Eins og tölur þær úr efnahags-
reikningi félagsins, sem fylgja hér í blað-
inu, bera með sér, hefur talsvert á unnizt
í því að tryggja efnalega framtíð og sjálf-
stæði þess. Ég vil einnig halda því fram,
að á þessum árum hafi félagsmenn notið
góðra viðskipta í félaginu, enda hafa þeir
oft sýnt, að þeim þykir vænt um það, þeg-
ar á hefur reynt. —
Eins og félagsmenn sjá, hefur nú verið
horfið aö því ráði að gefa út félagsrit.
Fyrirhugað er að blaðið komi út nokkr-
um sinnum á ári eftir ástæðum og þörf.
Að útgáfu þess verður að öllu leyti unnið
í hjáverkum, og er því ekki hægt að hafa
fasta útkomudaga. Brot blaðsins verður
framvegis hið sama, sem það birtist í nú,
ef lesendunum fellur það, en stærðin að
öðru leyti mismunandi eftir atvikum. Út-
gáfunefnd blaðsins er fyrst um sinn skip-
uð Bjarna Bjarnasyni, skólastjóra á Laug-
arvatni, Grími Thorarensen, fulltrúa, Sel-
foss, og undirrituðum. Nefndin sendir þetta
fyrsta eintak blaðsins til félagsmannanna
með von um, að þeir veiti því nú vinsam-
legar móttökur, en taki síðan sjálfir því
meiri þátt í útgáfu þess, sem tímar líða
lengra fram.
Páll Hallgrímsson.