Árnesingur - 01.06.1948, Side 1

Árnesingur - 01.06.1948, Side 1
J nncýctngó Þessu eintaki af Árnesing er aðallega ætlað að koma til félagsmanna reikningi félagsins fyrir árið 1947. Auk þess er í blaðinu fleira, sem erindi á til viðskipta- manna félagsins, skal þar fyrst bent á grein um brunatryggingar. Þráfaldlega heyrist sagt frá stærri og smærri brunum út um sveitir landsins og ekki ósjaldan fylgir fregninni, að innbú, eða hey og aðrir lausir munir séu óvá- tryggðir. Mér þykir það vafalaust, að margir okkar viðskiptamanna hafi ekki komið því í framkvæmd að vátryggja lausafé sitt. Ég vil sérstaklega benda þeim á að lesa greinina um samvinnutrygging- ar á öðrum stað í blaðinu og láta síðan ekki líða einn dag, þar til þeir koma hér á skrifstofuna og fá muni sína vátryggða. Þá vil ég vekja athygli á sjálfum reikn- ingi félagsins, sem prentaður er í blaðinu. Félagsmenn hafa fengið í stofnsjóð 4% af öllum búðarvarningi og erlendri matvöru, sem þeir hafa keypt hjá félaginu, á fyrra ári var þetta 10% — hér er ekki um óveruleg hlunnindi að ræða. í þessu sam- bandi leyfi ég mér að fullyrða það, að verðlag hjá félaginu er ávalt hið rétta söluverð varanna. Við tökum nú upp þá nýbreyttni að auglýsa hér í blaðinu verð á öllum helztu vörum, en vegna þess að Árnesingur kemur sjaldan út, munum við framvegis senda verðlista til félagsmanna okkar öðruhvoru, og hvetjum við þá til að bera verð okkar saman við verð annarra verzlana, sem þeir ná til og hafa svo jafn- framt í huga að hingað til hefir félagið getað greitt verulegan arð við reiknings- lok. Félagið treystir sér vel í þessum sam- anburði. Eitt vil ég svo sérstaklega taka fram og biðja félagsmenn vora að hugleiða. Nú er mjög erfitt í ári hvað verzlunar- rekstur snertir, og þá sérstaklega hjá stór- um fyrirtækjum. Vöruþurrðin er mikil og þá einmitt helzt á þeim vörum, sem bezt standa undir rekstrarkostnaði. Á hinn bóg- inn eru allar hinar nýju hömlur og eftir- lit, sem á verzlunina hafa verið settar vinnufrekar og dýrar í rekstri, svo sem skömmtunarfarganið allt, miðamóttaka, sortering og skýrslugerðir, eltingaleikur við innflutnings- og innkaupaleyfi og margt fleira. Það er því alveg sérstök þörf fé- lagsins að einmitt nú standi félagsmenn- irnir hvað fastast um félagið. Það geta allir félagsmenn lagt sinn skerf til þess að félagið standist hina örðugu tima með því að verzla þar alla sína verzlun, að svo miklu leyti, sem vörur eru þar til. Ég skora á hvern félagsmann að hafa þetta nú sér- staklega hugfast og sýna í verkinu skiln- ing sinn á samvinnumálunum, og um leið v* \sland/a*)

x

Árnesingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árnesingur
https://timarit.is/publication/1915

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.