Landvörn - 01.05.1948, Blaðsíða 1

Landvörn - 01.05.1948, Blaðsíða 1
0*70 Mlmð éhúðra Iiorgara. I. árg. Reykjavík, 1. maí 1948. 1. tbl. -ónaó Aonóóon: Meima og erlendis Landvörn. Landvörn byrjar nú göngu í þriðja sinn. Eftir síðustu aldamót hófu Benedikt Sveinsson, Bjarni Jónsson frá Vogi og Einar Benediktsson útgáfu blaðs með þessu heiti og hafði skáldið valið nafnið. Landvörn undirbjó skilnað Is- lands og Danmerkur. Blaðið myndaði hreyfingu en ekki flokk. Landvamarmenn voru hinn lífræni kjarni í flokka- bandalögum, sem knúðu að lokum fram sáttmálann 1918. Næst gaf ég út nokkur eintök af Landvörn, vorið 1946, með heimild fyrri eiganda. Þá var lagður grundvöllur að nýju verki, að tryggja frelsi þjóðarinnar gegn innrás landræningja. Nú er hafizt handa í þriðja sinn um það ákveðna verkefni að eiga þátt í að bjarga atvinnufrelsi og eignarrétti á Islandi frá ótímabærum og hættulegum þjóð- nýtingartilraunum. Síðan 1942 hafa kommúnistar ráðið mestu um atvinnuþróun hér á landi, með þeim árangri, að nú er hér tiltölulega meiri ríkisrekstur og dýrtíð heldur en í öðrum sambærilegum löndum, að Rússlandi undan- teknu. Dómur þjóðarinnar. Landskunnur stjórnmálamaður, sem hefir árum saman verið í mjög náinni samvinnu við kommúnista, veitt þeim lið og þegið frá þeim hjálp til áhrifa og mannvirðinga, lýsir þessum fyrrverandi samstarfsmönnum sínum í for- ystugrein í einu af helztu blöðum landsins 18. apríl síðast- liðinn með svo feldum orðum: „íslenzk alþýða veit nú: Að það eru kommúnistadeildirnar um öll lönd Vestur-Evrópu, sem sendar eru út af örkinni, til þess einmitt að eyðileggja frelsi og sjálfstæði þjóða sinna. Að hver sú þjóð, sem ratar í þá gegndarlausu ógæfu og glötun, að kommúnistar nái völdum í landi hennar, hættir að vera til, sem sjálfstæð þjóð. Hún er afmáð af jörðinni, að heita má. Eða hvað segja menn t. d. um baltnesku þjóðirnar? Hvar er sjálfstæði þeirra? Og hvað verður um smáþjóðir yfirleitt, er verða fyrir annari eins meðferð og þær. Hin austræna „herraþjóð“ hefur tekið öll ráð af smáþjóðum þessum. En þeir menn, sem líklegir voru til að andæfa harðstjóm og hryðjuverkum, eru fluttir úr landi með valdi, til fjarlægra eyja austur við Kyrrahafsströnd, þeir, sem þá komast þang- að lifandi. Eru það ekki fíflskaparmál, að tala um sjálfstæðar þjóðir, þar sem hin alþjóðlega kommúnistastjórn, fyrirmynd nas- ismans og arftaki hans, hefur náð völdum? Svo gerir þessi auðvirðivegi leigukjaftur hins alþjóða kommúnisma Brynjólfur Bjarnason sig að því fífli, að tala sem hann sé alvaldur fyrirmaður íslenzkrar alþýðu!“ hluti borgaranna taldi nána samvinnu við bolsivika vera happaráð. Meðan þessu fór fram, gerðu kommúnistar sér tíðrætt um, að þjóðin ætti 600 milljónir króna í pundum og doll- urum, sem mætti auðveldlega taka frá réttum eigendum. Buðu bolsivikar þetta fjármagn þeim, sem talað var við, í hvert sinn. Varð þessi rausn að vonum til að auka vin- sældir þeirra. Mjög margir menn sáu glögglega gegnum blekkingarvefinn hvert stefndi. Þeir urðu síðan beint og óbeint til að styðja útgáfu Ófeigs, þar sem í litlu rúmi var reynt að láta þjóðina fylgjast með hvað var að gerast í landinu. Það var tími plægingar á landsmálasviðinu. Nú er tími til að sá og að gefa þeim, sem hafa verið innibyrgð- ir í þrengslum sérhyggjunnar, tækifæri til að segja opin- berlega, hvað þeim býr í brjósti. Óháð blað á vegum al- mennings verður þá farvegur fyrir innibyrgða orku. Horft yfir rústir. Þegar stríðsgróðavíman rann af þjóðinni, var lítið eftir af glæsimyndum þeim, sem bolsivikar höfðu brugðið á loft fyrir augum borgaranna. Frelsið virðist komið í langt ferðalag. Nefndir skamta framleiðendum í sveit og við sjó kaup og kjör, borga jafnvel fyrir þá félagsgjöld, til að tákna algert ósjálfstæði þeirra. Húseigendur eru ófrjálsir að því að skjóta skjólshúsi yfir þeirra eigin börn. Búið að loka, eftir því sem frekast verður við komið, verzlunarvið- skiptum við það eina land, sem hefur á boðstólum flestar þær vörur, sem landsmenn vilja kaupa, — eina landið, þar sem verzlunin er frjáls. Helzta atvinna þeirra, sem fást við framkvæmdir eða verzlun, er að bíða í löngum röðum eftir að fá að tala við þær nefndir sem hleypa gestum inn til sín einu sinni eða tvisvar í viku. Atvinnuvegirnir til lands og sjávar bera sig ekki, nema með því að fá að gjöf frá ríkissjóði 70 milljónir kr. eins og til er ætlað 1948. Þar að auki verður ríkið að borga 20 milljónir í skaðabætur til þeirra, sem veiddu Hvalfjarðarsíldina í vetur. Ríkið varð um áramótin að lána úr bláfátækum bönkum 23 millj- ónir upp í tap á fiski árið sem leið. Síldarverksmiðjur ríkis- ins voru skuldlausar og áttu í sjóði, þegar kommúnistar tóku við stjórn þeirra. Nú skulda þær 60 milljónir kr. Til að stýra landinu hafa verið settir 6 ráðherrar. Bak við þá eru þrír flokkar, með mörgum undirdeildum. Auk ríkis- stjórnarinnar stýra 112 nefndir landinu. Ein þeirra er yfir landstjórninni. Alþingi situr 6—9 mánuði. Það getur ekki tekið á stórmálum, en augnabliksmál er hægt að leysa, ef stjórnin vinnur í 6—8 vikur að því að fá flokkana og undirdeildir þeeirra til að sætta sig við framkvæmdina. Fjárlagaútgjöld landsins eru í ár áætluð 247 milljónir. Reykjavíkurbær, telur sig þurfa nálega 60 milljónir í starf- rækslu sína í ár. Til sérstakra framkvæmda eins og topp- stöðvar Reykjavíkur eða í strandferðaskip ríkisins, þarf að taka lán, meðan þau fást. Fall krónunnar er óhjákvæmi- leg með slíkum þjóðarbúskap, og þar næst hallærislán frá útlöndum. Að plægja og að sá. Frá vordögum 1942 og til ársbyrjunar 1947 var flokkur kommúnista áhrifamesta landsmálahreyfing á Islandi. Á þessu tímabili tókst flokknum að gerbreyta þjóðfélaginu, í samræmi við stefnu Rússa, án þess að landsmenn gættu verulega að því, hvað hér var í húfi. Leiðtogar borgara- flokkana háðu á þessum árum ákaft samkeppnisstríð um vináttu og brautargengi þeirra bolsivika, sem nú er dag- lega í blöðum sömu manna brugðið um föðurlandssvik og fleiri ódyggðir. Borgarablöðin áttu mikinn þátt í hversu fór í þessu efni. Þau túlkuðu stefnu forráðamanna sinna og léttu verk allra þeirra, er gerðu gælur við hina austrænu byltingarhreyfingu. Svo mjög var þá um stund dregið þrek og þróttur úr þjóðinni, að þegar Brynjólfur og Áki settust í ráðherrastólanna var í öllu þinginu ekki greitt nema eitt atkvæði með vantrausti móti valdatöku þeirra. Með sefjun, sem blöðin voru völd að, kom þar um síðir að verulegur Bolsivismi eða þjóðfylking. Efling bolsivisma á Islandi stafar af þrem ástæðum: Gróðrasýki, hörðu flokksskipulagi og vöntun á skapskyggni frá hálfu borgaranna. Bolsivikar bjóða öllum sem telja sig vanta einhver jarðnesk gæði að ná þeim frá réttum eig- endum með ránum og lögbrotum. Sverrir konungur fann upp þessa aðferð. Hann afréð að vinna krónu Noregs með hóp af hungruðum og klæðlitlum stigamönnum. Sverrir hét hverjum þeirra að erfa auð og mannaforráð allra, sem þeir dræpu. í langri styrjöld voru gömlu stofnarnir feldir, en kappar Sverris mynduðu valdastétt í landinu. Fáum áratugum eftir að Sverrir hreinsaði burtu stoðir þjóðfélagsins, féll Noregur magnlaus við fætur erlendra kúgara. En aðferð Sverris á vel við alla menn, sem vantar orku og manndóm til að ryðja sér braut með eigin atorku. Áróðurskerfi bolsivika er þrauthugsað og margendur- bætt af gáfuðum og hungruðum útlögum. Agi flokksins er Framhald á 2. sí'ðu. Toppstöðin Undanfarin ár hefur verið í byggingu mikið fyrirtæki á veg- um Reykjavíkurbæjar. Það er hin svokallaða Toppstöð við Ell- iðaárnar. Stöðin er byggð til þess að létta undir með rafmagiisveit- unni og hitaveitu Reykjavíkur. Uppliaflega var til þess ætlazt, að grípa mætti til þessarar stöðvar, þegar notkun rafrnagns og vatns væri sérstaklega mikil, vegna kaldrar veðráttu eða óeðii- lega mikillar notkunar. En nú munu aðstæður liafa breytzt svo, að stöðvarinnar er full þörf mikinn hluta ársins. Þegar ráðgert var að byggja stöðina, var stofnkostnaðurinn reiknaður út af sérfræðingum þeim, sem bærinn hefur á að skipa í þessum málum. Og þeim mun hafa talizt hann vera 6—8 miljónir króna. — Nú, þegar stöðin er tekin í notkun, mun þessi kostnaður vera talinn 19— 20 miljónir króna, og skulum við þá gera ráð fyrir, að stoín- kostnaðurinn sé þar allur talinn. Mörgum mun þykja hér vera inyndarlegur skakki á útreikn- ingi og veruleika. En þó myndi ég telja annan galla meiri á þess- ari stöð en þann, hvað mikið hún fór fram úr áætlun sérfræð- inganna. Höfuðgallinn á mannvirkinu, og óverjandi ágalli, er sá, aS stöðin á aö brenna erlendu elds- negti. í voru fossaauðuga landi er óverjandi, að byggja aflstöð fyrir bæi eða byggðarlög, sem ætlað er að brenna erlendu elds- neyti. Hvað sparaði rafmagnsveitan og hitaveitan okkur mikinn er- lcndan gjaldeyri á stríðsárun- um? Og erum við vissir um, að við hefðum getað flutt að okkur allt það eldsneyti, ef þessarra mannvirkja hefði ekki notið við. Man enginn nú, hve miklir erf- iðleikar voru á öflun eldsneytis í ófriðnum 1914—1918? Munum við ekki, hvar skórinn kreppti að Norðmönnum og Dönum í síðasta ófriði, þegar kuldinn var þeim þungbærari en liungrið? Hvers virði er okkur þessi stöðvar-hít, sem kvað brenna ókjörum af olíu og kolum dag- lega, ef við getum ekki aflað okkur svo að segja ótakmarkaðs eldsneytis? Þá væri hún eins og svo margur ofninn, fyrr og síð- ar, sem var kaldur, af því að eldsneytið vantaði. Það má segja, að ekki þýði að sakast um orðinn hlut, þótt hann geti orðið okkur til varnaðar. — En borgarar Reykjavíkur verða að sameinast um eina kröfu, og hún er sú, að þessi dýra topp- stöð má ekki verða til þess að draga á langinn, meira en orðið er, frekari virkjun Sogsins. Við verðum að vera svo mikið sjálf- bjarga sem mögulegt er. Fátt er okkur nauðsynlegra en hlý húsa- kynni. Við erurn búin að búa nógu margar aldir við kulda og raka. Fossarnir eru okkar elds- neyti. Þá eigum við að virkja. Toppstöðin er dýrt barnagam- an, sem ekki má endurtaka. Borgari. \ Á

x

Landvörn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Landvörn
https://timarit.is/publication/1927

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.