Feykir


Feykir - 15.02.2023, Síða 2

Feykir - 15.02.2023, Síða 2
Hin árlega Prjónagleði verður haldin á Blönduósi 9. – 11. júní 2023 og er að venju blásið til hönnunar- og prjónasamkeppni af því tilefni. Að þessu sinni gengur samkeppnin út að að endurvinna íslenska lopapeysu og nota hana sem grunnefniðvið í nýja nothæfa flík. Íslensku lopapeysurnar standa alltaf fyrir sínu, en þegar þær slitna eða eru ekki lengur nothæfar af einhverjum Það eru sviptingar á vinnumarkaðnum um þessar mundir þar sem takast á fylkingar Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hafa kjaramál þessara félaga verið í algjörum rembihnút eftir að Efling hafnaði samningsdrögum við SA og ekkert gengið hjá ríkissáttasemjara að höggva á þann hnút. Miðlunartillaga hans fór illa í Sólveigu Önnu Jónsdóttur, og hennar lið hjá Eflingu, sem neitaði að leyfa félagsfólki að greiða atkvæði um hana og dómstólar búnir að flækja málin enn frekar. Sátti fékk því framgengt að félagsmenn fengju að greiða atkvæði en fær ekki félagsskrána svo sú leið er ekki fær. Hefur hann nú sagt sig frá málinu og er einsdæmi á Íslandi. Verkföll sýnast því óumflýjanleg hjá Eflingarbílstjórum í eldsneytisflutningum, sem hafa mun gríðarleg áhrif á alla umferð tækja sem knúin eru jarðefnaeldsneyti syðra sem og hjá völdum hótelum þar sem starfsfólk þar hefur boðað vinnustöðvun. Ofan á þessar aðgerðir hafa stýrivextir Seðlabankans verið á bullandi uppleið svo útlitið er ekki björgulegt fyrir landsmenn. Þó aðgerðir Eflingar bitni harðast á fólki sunnanlands væri réttast fyrir alla að taka ástandið alvarlega og grípa í ekki svo gamlar Covid-aðgerðir, að halda að sér höndum og ferðast heima í stofu. Góðar stundir. Páll Friðriksson, ritstjóri LEIÐARI Allt í hnút Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 690 kr. hvert tölublað m/ vsk. Lausasöluverð: 835 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. AFLATÖLUR | Dagana 5. febrúar til 11. febrúar á Norðurlandi vestra Átta landanir í síðustu viku SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG Sjöfn SH 4 IGPL 5.660 Samtals á Hvammstanga 6.916 SAUÐÁRKRÓKUR Drangey SK 2 Botnvarpa 157.722 Málmey SK 1 Botnvarpa 119.922 Samtals á Sauðárkróki 277.644 SKAGASTRÖND Páll Jónsson GK 7 Landbeitt lína 117.816 Sighvartur GK 57 Landbeitt lína 87.998 Sæfari HU 212 Landbeitt lína 3.658 Samtals á Skagaströnd 209.472 HVAMMSTANGI Harpa HU 4 Dragnót 1.256 Á Skagaströnd komu þrír bátar í höfn með afla sinn í síðustu viku og lönduðu allir einu sinni. Heildaraflinn var 209.472 kg og var aflahæstur línubáturinn Páll Jónsson GK 7 með tæp 118 tonn. Á Króknum lönduðu Drangey og Málmey rúmum 278 tonnum saman og var Málmey með 119.922 kg og Drangey 157.722 kg. Á vef fisk.is segir að veðrið hafi verið frekar risjótt þegar Málmey og Drangey voru á miðunum en þær voru á veiðum við Rifsbanka og Grímseyjarsvæðið. Veiðin gekk vel og uppistaðan var þorskur og ýsa. hjá báðum. Enginn landaði á Hofsósi en tveir lönduðu á Hvammstanga, Harpa HU 4 og Sjöfn SH 4. Sjöfn landaði tvisvar alls 5.660 kg en Harpa HU 4 landaði 1.256 kg í einni löndun.. Heildarafli á Norðurlandi vestra í síðustu viku var því 494.032 kg í átta löndunum. /SG Samið hefur verið við Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra um að taka að sér framkvæmd hátíðarhalda vegna sumardagsins fyrsta í samfélaginu. Sama manneskjan, Ingibjörg (Lilla) Pálsdóttir, hefur frá upphafi hátíðarhalda á þessum uppáhaldsdegi landsmanna verið í fararbroddi dagskrárinnar á Hvammstanga í samstarfi við ýmis félagasamtök – eða í ein 65 ár og geri aðrir betur! Eldri borgarar munu nú sauma nýja búninga til notkunar á sumardeginum fyrsta sem koma eiga í stað þeirra sem voru orðnir lúnir eftir 65 ára notkun. Í frétt á vef Húnaþings vestra segir að árið 1957, þegar sumardeginum fyrsta var fyrst fagnað á Hvammstanga, hafi hátíðin verið „.. haldin til fjáröflunar Fegrunarfélagsins fyrir gróðursetningu í sjúkrahúsgarðinum á Hvammstanga. Í dag er sá garður orðinn stór og þéttur skógur. Þó hátíðin hafi ekki verið með nákvæmlega sama sniði öll þessi ár hefur Vetur konungur þó alltaf afhent Sumardísinni veldissprotann og hafa þau verið klædd í búningana sem forvígiskonur hátíðarinnar saumuðu. Ingibjörg Pálsdóttir (Lilla) hefur frá upphafi haldið utan um hátíðarhöldin með aðstoð frá ýmsum félagasamtökum en síðustu ár hefur fjölskylda hennar ásamt henni staðið fyrir hátíðinni.“ Í fyrra var tilkynnt að það yrði í síðasta sinn sem Lilla stæði fyrir hátíðarhöldunum. „Búningarnir sem notast hefur verið við hafa nú verið gefnir á Verslunarminjasafnið á Hvammstanga og verða þar til sýnis til marks um það ómetanlega starf sem Lilla hefur unnið,“ segir í fréttinni. „Eru Lillu færðar bestu þakkir fyrir sitt mikla framlag til menningarstarfs í sveitarfélaginu með hátíðarhöldunum um áratuga skeið sem og þeim fjölmörgu sem hafa komið að þeim með einum eða öðrum hætti í gegnum árin.“ /ÓAB Húnaþing vestra Félag eldri borgara tekur við af Lillu Prjónagleði 2023 Nýnot fyrir gamlar íslenskar lopapeysur Frá undirritun samkomulags við Félag eldri borgara um framkvæmd hátíðarhaldanna í ár. Jónína Sigurðardóttir varaformaður félagsins, Unnur Valborg sveitarstjóri og Guðmundur Haukur Sigurðsson formaður Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra. MYND AF VEF HÚNAÞINGS VESTRA Þjóðskrá hefur birt samantekt sína um íbúafjölda eftir sveitar- félögum í febrúar 2023 og kemur þar fram að meðan fækkar á Norðurlandi vestra, fjölgar íbúum eða stendur í stað í öðrum landshlutum. Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 601 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. febrúar 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 99 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fækkaði á tímabilinu um 18 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 159 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 88 íbúa, eftir því sem fram kemur á skra.is. Íbúum fjölgar eða stendur í stað í öllum landshlutum nema á Norðurlandi vestra, þar fækkar um 0,3% eða 23 íbúa og teljast þeir nú vera 7.423 talsins. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 0,8% sem er fjölgun um 257 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 1380 frá 1. desember 2022 til. 1. febrúar 2023 sem er um 0,4%. Fækkun varð í tveimur sveitarfélögum af fimm á Norðurlandi vestra, um tíu í Húnaþingi vestra (1249) og 23 í Skagafirði (4395). Aftur á móti fjölgaði um fjóra á Skagaströnd (487) og sex í Húnabyggð (1303) en í Skagabyggð stóð íbúafjöldinn í stað (89). /PF Norðurland vestra Íbúum fækkar orsökum geta þær orðið spennandi efniviður í nýja hönnun og öðruvísi flík. Nú reynir á hugmyndaauðgi og verkkunnáttu þátttakenda til þess að skapa nýtt úr notuðu. Reglur keppninnar og upplýsingar um skil má nálgast á heimasíðu Textílmiðstöðvar Íslands. Dómnefnd velur þrjú efstu sætin og verða úrslit kynnt á Prjónagleðinni 2023, þar sem verðlaun verða afhent. Verkin sem taka þátt í keppninni verða til sýnis á meðan á hátíðinni stendur. Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Pálsdóttir svana@ textilmidstod.is og þær má einnig finna á www. textilmidstod.is undir flipanum Prjónagleði. /Fréttatilkynning 2 07/2023

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.