Feykir - 15.02.2023, Side 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Þjálfarar yngri landsliða Íslands
í körfubolta hafa valið næstu
æfingahópa sína fyrir
áframhaldandi úrtaksæfingar
sem framundan eru í febrúar.
Það eru yngri landslið U15, U16
og U18 drengja og stúlkna fyrir
sumarið 2023 sem um ræðir
og hefur leikmönnum og
forráðamönnum þeirra verið
tilkynnt um valið. Fjögur voru
valin úr Tindastól.
Fjögur úr Tindastól valin í æfingahópa
Yngri landslið KKÍ
„Framundan í sumar eru
fjölmörg skemmtileg og
spennandi verkefni hjá
íslensku liðinum. U15 liðin
fara til Finnlands í æfingabúðir
og leika vináttulandsleiki gegn
Finnum í byrjun ágúst. U16
og U18 liðin taka þátt á NM
2023 með Norðurlöndunum
og fara einnig á EM yngri liða
hvert um sig. Þá eru U20 ára
liðin á leið á EM einnig og í
fyrsta sinn í langan tíma á NM
fyrr í sumar,“ segir í
tilkynningu KKÍ.
Fjögur hafa verið valin í úr
Tindastóli í æfingahópa KKÍ
en það eru Emma Katrín
Helgadóttir í U15 stúlkna,
Axel Arnarsson U16 drengja
og í sinn hvorn U18 flokkinn
Ingigerður Sól Hjartardóttir
og Orri Már Svavarsson. /PF
Um sl. helgi fór fram
Meistaramót Íslands 11-14 ára
innanhúss í Laugardalshöllinni.
Skráðir voru um 300 keppendur
til leiks frá 16 félögum víðs vegar
af landinu og sendu UMSS,
USAH og Kormákur keppendur
til leiks. Níu mótsmet voru sett
og átti Guðni Bent Helgason frá
UMSS eitt af þeim er hann stökk
1,47m í hástökki 11 ára pilta. Hér
fyrir neðan má sjá þá einstak-
linga sem náðu sæti á palli (1.-3.
sæti) frá þeim félögum sem
sendu fulltrúa frá Norðurlandi
vestra.
60 metra hlaup pilta – 11 ára
Guðni Bent Helgason
– UMSS – 2. sæti (8,96 Pb)
400 metra hlaup pilta – 11 ára
Guðni Bent Helgason
– UMSS – 2. sæti (68,86 Pb)
Hástökk pilta - 11 ára
Guðni Bent Helgason – UMSS
– 1. sæti (1,47 Pb) Mótsmet!
Langstökk pilta – 11 ára
Guðni Bent Helgason
– UMSS – 1. sæti (4,33 Pb)
Kúluvarp pilta – 11 ára
Guðni Bent Helgason
– UMSS – 1. sæti (8,66)
Fjölþraut pilta – 11 ára
Guðni Bent Helgason
– UMSS – 1. sæti (203)
60 metra hlaup pilta – 12 ára
Aron Gabríel Samúelsson
– UMSS – 3. sæti (9,07 Pb)
400 metra hlaup pilta – 12 ára
Ísak Hrafn Jóhannsson
– UMSS – 2. sæti (66,48 Pb)
Aron Gabríel Samúelsson
– UMSS – 3. sæti (67,83 Pb)
4*200 metra boðhlaup pilta – 12 ára
Sveit UMSS – 2. sæti (2:07,39 Pb)
Fjölþraut pilta – 12 ára
Ísak Hrafn Jóhannsson
– UMSS – 2. sæti (128)
60 metra hlaup pilta – 13 ára
Friðrik Logi Haukstein Knútsson
– UMSS – 3. sæti (8,98 Pb)
600 metra hlaup pilta – 13 ára
Aron Örn Ólafsson
– USAH – 2. sæti (1:55,06 Pb)
60 metra grind (76,2) pilta – 13 ára
Friðrik Logi Haukstein Knútsson
– UMSS – 2. sæti (12,80 Pb)
Hástökk pilta - 13 ára
Hafþór Ingi Brynjólfsson
– UMSS – 3. sæti (1,31 Pb)
Langstökk pilta – 13 ára
Valdimar Logi Guðmannsson
– USAH – 2. sæti (4,52)
Kúluvarp pilta – 13 ára
Valdimar Logi Guðmannsson
– USAH – 1. sæti (8,77)
60 metra hlaup stúlkna – 11 ára
Herdís Erla Elvarsdóttir
– KORMÁKUR – 2. sæti (9,61)
400 metra hlaup stúlkna – 11 ára
Herdís Erla Elvarsdóttir
– KORMÁKUR – 3. sæti (80,42)
Kúluvarp stúlkna – 12 ára
Lárey Mara V. Sigurðardóttir
– USAH – 3. sæti (8,12 Pb)
60 metra hlaup stúlkna – 14 ára
Harpa Katrín Sigurðardóttir
– USAH – 3. sæti (8,58)
Þrístökk stúlkna – 14 ára
Harpa Katrín Sigurðardóttir
– USAH – 3. sæti (9,82 Pb) /SG
Frjálsíþróttir
MÍ 11-14 í frjálsum
Guðni Bent Helgason í hástökki þar sem hann gerði sér lítið fyrir og setti mótsmet þegar
hann stökk 1.47m. MYND WWW.FRI.IS
Tindastóll hefur komist að
samkomulagi við Breiðablik
um að fá Laufeyju Hörpu
Halldórsdóttur að láni út
tímabilið fyrir komandi átök í
Bestu deildinni. Hana þarf vart
að kynna fyrir
stuðningsmönnum Tindastóls
enda fædd og uppalin á
Króknum.
„Það eru gríðarlega stórar
fréttir fyrir okkur að við erum
búin að fá Laufey Hörpu
Halldórsdóttur aftur heim i
Tindastól frá Breiðablik.
Laufey á svo sannarlega eftir
að styrkja okkar lið til muna og
það er mikið fagnaðarefni að
fá heimastelpu aftur á
Sauðárkrók,“ segir Donni
þjálfari. Laufey er með betri
vinstri bakvörðum deildar-
innar, sterk og dugleg með
baneitraðan vinstri fót. Það
verður gaman að sjá hana aftur
Tindastóll endurheimtir leikmenn
Fótbolti kvenna
í Tindastólsbúningnum.
En það var ekki einungis
Laufey Harpa sem bættist í
gær í hóp Stólastúlkna fyrir
Bestu deildar sumarið því
Vatnsdælingurinn Lara
Margrét Jónsdóttir og
Akureyringurinn Rakel Sjöfn
Stefánsdóttir hafa einnig skipt
yfir í Tindastól. Báðar komu
þær við sögu með liði
Tindastóls í Lengjudeildinni
síðasta sumar.
Lara, sem er fædd árið
2001, kemur aftur í Tindastól
eftir stutt stopp hjá ÍR síðari
hluta tímabilsins í fyrra. Hún
hefur leikið 23 leiki fyrir
Tindastól í deild og bikar.
Rakel Sjöfn er fædd árið
2000. Hún kemur til
Tindastóls frá Þór/KA en hún
var á láni hjá Stólastúlkum
síðari hluta tímabilsins í fyrra
auk hálfs tímabils 2020. Hún
hefur leikið 16 leiki fyrir
Tindastól og skorað í þeim tvö
mörk.
Það er því ljóst að lið
Tindastóls er að taka á sig
ágæta mynd en ljóst er að það
þarf sterkan og breiðan hóp
ætli Stólastúlkur að halda sæti
sínu í efstu deild. /PF
Á aðdáendasíðu Kormáks á Fésbókinni er
kynntur til sögunnar nýr leikmaður Kormáks
Hvatar í 3. deildinni í karlafótbolta en stjórn hefur
gengið frá samningum við vinstri bakvörðinn
Mateo Climent frá Spáni.
„Mateo þessi þykir öflugur í háloftunum,
ásamt því að vera öryggið uppmálað með bolta í
fótum og áhættufælinn mjög í varnarleik sínum.
Bjóðum Mateo velkominn í hóp norðanmanna
og hlökkum til að sjá hann sprikla á velli þegar
snjóa leysir,“ segir í tilkynningunni.
Fyrsti leikur liðsins í deildinni verður háður
laugardaginn 6. maí gegn Hafnfirðingum í ÍH og
fer leikurinn fram í Skessunni, sem er
knattspyrnuvöllur þeirra Hafnfirðinga í fullri
stærð innanhúss. /PF
Spánskur Mateo Climent
til Kormáks Hvatar
Fótbolti karla
07/2023 5