Feykir


Feykir - 15.02.2023, Blaðsíða 7

Feykir - 15.02.2023, Blaðsíða 7
Nú er aðeins vika í fyrsta keppniskvöld Meistaradeildar KS og áfram haldið með kynningar liðanna sem taka þátt hér í Feyki. Byrjað verður þann 22. febrúar á gæðingalist, sem áður kallaðist gæðingafimi, en þar eru sýndir vel þjálfaðir gæðingar á listrænan hátt, þar sem öll þjálfunarstigin eru sýnd. Í reglum LH segir að knapi flétti saman gangtegundum og æfingum og sýni í einni heild, jafnvægi, þjálni, kraft og fimi hestsins. „Nú er Gæðingalist orðin keppnisgrein undir regluverki LH líkt og hver önnur keppnisgrein og ljóst að keppni í Gæðingalist er að fara vel af stað,“ segir í frétt á lhhestar.is. Hér fyrir neðan eru lið Íbishóls og Storm Rider. Íbishóll Fimmta liðið sem kynnt er til leiks er sigurliðið frá árinu 2021, lið Íbishóls, en það endaði 2. sætinu í fyrra með 385 stig. Fátt er reynslunni fróðara, segir gamalt máltæki og á það vel við liðsstjóra þessa liðs, Magnús Braga Magnússon, hrossaræktanda á Íbishóli á Langholti. Með honum er sonur hans Guðmar Freyr Magnússon nemandi á þriðja ári við Háskólann á Hólum, en hann var kjörinn knapi ársins 2022 hjá hestamannafélaginu Skagfirðingi og árið áður efnilegasti knapi ársins 2021 af valnefnd Landssambands hestamanna. Það eru engir aukvisar sem skipa önnur sæti liðsins því þar eru einnig Védís Huld Sigurðardóttir, þjálfari á Sunnuhvoli í Ölfusi, Freyja Amble Gísladóttir, þjálfari JF hesta, og ný inn í deildina kemur Árný Oddbjörg Oddsdóttir, reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Storm Rider Næsta lið sem kynnt er til leiks í Meistaradeild KS þennan veturinn er Storm Rider. Liðið er feiknasterkt og hafnaði í 4. sæti eftir síðasta keppnis- tímabil með 332 stig. Foringi liðsins er Elvar Einarsson á Skörðugili en hann er útskrifaður tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Þá má geta þess svona til upplýsinga að hann er einnig formaður hestamannafélagsins Skagfirðings. Með Elvari er Bjarni Jónasson, þjálfari á Staðarhofi, hinu nýja í Staðarhreppi hinum forna, og Weierholz í Sviss, margreyndur keppnismaður og sýnandi. Þá er sonur Bjarna, Finnbogi, einnig í liðinu, útskrifaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum og þjálfari á Staðarhofi, Arndís Björk Brynjólfsdóttir reiðkennari á hestabraut FNV og Ásdís Ósk Elvarsdóttir nemandi á þriðja ári við Háskólann á Hólum en hún hefur sýnt það frá unga aldri að vera meðal bestu knapa hverrar keppni sem hún tekur þátt í. Stendur hún þétt við bakið á liðsstjóranum sem er einmitt faðir hennar. Keppni í Meistaradeild KS í hestaíþróttum hefst á gæðingalist þann 22. febrúar nk. í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki, þar sem allar keppnir fara fram. Fjórgangur fer fram 8. mars; fimmgangur 17. mars; slaktaumatölt 5. apríl; 150m og gæðingaskeið sumardaginn fyrsta 20. apríl og lokakvöldið er svo 28. apríl þegar keppt verður í tölti og flugskeiði. /PF Meistaradeild KS í hestaíþróttum Spennan magnast Á Hólmagrundinni á Króknum býr Jóna Katrín Eyjólfsdóttir ásamt kærastanum sínum, Fannari Kára Birgissyni, og eiga þau saman tveggja ára dóttur, Valdísi Björgu, og hundinn Mjölni. Mjölnir er skemmtileg blanda með ríkjandi Terrier gen en þeir voru upphaflega ræktaðir til að veiða meindýr. Flestir voru notaðir til veiða á rottum, músum og öðrum nagdýrum en aðrir í að veiða refi, kanínur, minka og önnur stærri dýr. Við veiðarnar grafa þeir sig niður í jörðina og skríða inni í neðanjarðarholum og göngum við leit að bráð. Terrier hundar eru mjög orkumiklir, fjörugir, aðlögunarhæfir og útsjónasamir og elska að vera í miklum hasar. Þeir henta almennt vel á virkum heimilum því þeir þurfa mikla hreyfingu og athygli og ef þeir fá það ekki gætu þeir snúið hegðun sinni í að eyðileggja hitt og þetta með að grafa upp garða sér til skemmtunar, naga það sem má ekki naga og jafnvel gelta óspart til að ná athygli. Margar undirtegundir eru til af Terrier tegundinni og er hver og ein einstök á sinn hátt. Feyki langaði til að kynnast Mjölni aðeins betur og sendi Jónu nokkrar spurningar. Hvernig eignaðist þú Mjölni? Við fengum hann árið 2018 úr Borgarfirðinum. Sem er reynar mjög fyndin saga því ég frétti af þessum tilvonandi hvolpakaupum út af óvæntu símtali við kvöldmatarborðið einn daginn. Fannar svarar þá í símann og segir ,,heyrðu já ég var að pæla í einum hvolpi” og á þeim tímapunkti vissi ég ekkert en var fljót að samþykkja það. Hvað er skemmtilegast við Mjölni? Hann er algjört kúrudýr sem vill helst liggja ofan á manni. Algjör frekjurófa sem heimtar bæði klapp og nammi og er mjög barngóður. Hvað er erfiðast? Það hvað hann getur verið afskaplega sjálfstæður. Það hafa sjálfsagt flestir bæjarbúar séð hann draga okkur (mig og Fannar) um bæinn. Svo getur verið einstaklega erfitt fyrir bæði hann og okkur þegar það fer tík að lóða í nálægt heimilinu okkur því þá fer hann að spangóla og þá er nú eins gott að hann sleppi ekki frá okkur. Ertu með einhverja sniðuga eða merkilega sögu af Mjölni? Við förum oft í sumarbústaðinn hjá mömmu og pabba (Ingibjörg Axelsdóttir og Eyjólfur Sveinsson) með hann og þar hefur hann gert mörg prakkarastrik. Eitt sinn var mamma að græja lambafille sem átti að fara á grillið. Hún labbaði frá kjötinu í nokkar sek. og þá var Mjölnir ekki lengi að grípa tækifærið og nældi sér í eitt fille og át það með bestu list. Þar fór dýr biti í hundskjaft! Jóna Katrín, Valdís Björg, Fannar Kári og Mjölnir. AÐSEND MYND Hefur gert mörg prakkarastrik ÉG OG GÆLUDÝRIÐ | siggag@nyprent.is Jóna Katrín og hundurinn Mjölnir 07/2023 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.