Feykir


Feykir - 15.02.2023, Qupperneq 11

Feykir - 15.02.2023, Qupperneq 11
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: LJÓS.. Sudoku Krossgáta Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar. Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. Ótrúlegt – en kannski satt... Þeim fer fækkandi sem muna eftir Tipp-Ex, hvítum legi sem notaður var til að hylja villur á vélritunarblöðum, þýsk framleiðsla og vinsæl um alla Evrópu. Í Ameríku var það hins vegar bandarísk vélritunarkona, Bette Nesmith Graham, sem fann upp leiðréttingarvökvann Liquid Paper og þróaði í eldhúsi sínu. Ótrúlegt, en kannski satt, þá var hún móðir gítarleikara hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Monkees, Michael Nesmith, sem lést árið 2021, 78 ára að aldri. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: STÓR STJARNA Á SKAGAHEIÐI. FEYKIFÍN AFÞREYING F RÉTTUR 1 Þorskur með pistasíusalsa 600 g þorskhnakkar eða þorskflök salt og pipar 3-4 msk. pistasíuhnetur, saxaðar (má líka nota furuhnetur) 3 msk sítrónusafi og rifið hýði af 1/2 sítrónu 1 msk olífuolía 1 dl fersk steinselja, söxuð 1/4 – 1/2 rautt chili, fræhreinsað og fínsaxað Aðferð: Ofninn hitaður í 220°C. Þorskflökin skorin í bita og þeim raðað í smurt eldfast form. Kryddað með salti og pipar. Því næst er blandað saman í skál: pistasíuhnetum, sítrónusafa, sítrónuhýði, steinselju, chili og ólífuolíu. Blöndunni er dreift yfir fiskinn. Bakað í miðjum ofni í u.þ.b. 12-15 mínútur eða þar til fiskurinn er fulleldaður. Gætið þess að ofelda hann ekki. Sætkartöflumús 600 g sætar kartöflur 1-2 kartöflur 1/2 rautt chili, fræhreinsað safi úr 1/2 límónu (lime) 1 msk. smjör salt og pipar Aðferð: Kartöflur og sætar kartöflur skrældar og skornar í svipað stóra bita. Þær eru svo settar í pott og vatn rétt látið fljóta yfir. Chili skorið í tvennt langsum, fræin hreinsuð úr og því svo bætt út í pottinn. Til að fá bragðsterkari kartöflumús er hægt að saxa chili smátt. Límónusafa bætt út í pottinn. Suðan látin koma upp og soðið í 15-20 mínútur eða þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar. Vatninu helt af og chili (ef það er í heilu) fjarlægt. Kartöflurnar stappaðar fínt með smjöri og bragðbættar með salti, pipar og jafnvel meiri límónusafa. Til að skerpa á hitanum á sætkartöflumúsinni er hún sett í pott og hituð upp við meðalhita, hrært í á meðan. Sojasmjörsósa 3 msk. smjör 1 skarlottulaukur (hægt að nota 1/2 rauðlauk), saxaður fínt 1 hvítlauksrif, saxað fínt 1 tsk. rautt chili, saxað fínt 2-3 msk. sojasósa 1 msk. steinselja, söxuð smátt Aðferð: Smjör brætt í potti og látið krauma við fremur vægan hita í u.þ.b. 15 mínútur þannig að smjörið verði brúnt. Froðan veidd af smjörinu. Lauk, hvítlauk, sojasósu, chili og steinselju blandað saman í skál og blandað út í smjörið rétt áður en sósan er borin fram. Verði ykkur að góðu! Við ætlum að skora á vini okkar þau Margréti Helgu og Helga Frey með von um að þau fari nú að bjóða okkur í mat fljótlega:) Þorskur með pistasíu- salsa, sætkartöflumús og sojasmjörsósu Matgæðingur vikunnar er Dagný Huld Gunnarsdóttir í Iðutúninu á Króknum. Dagný er gift Hirti Elefssen og eiga þau saman fjögur börn. Dagný vinnur á leikskólanum Ársölum og Hjörtur á Vélaverkstæði KS. „Takk kærlega fyrir Sigrún að skora á mig. Þú hefðir nú heldur átt að skora á hann Hjört þar sem hann er snillingur í eldhúsinu. En þessar uppskriftir eru í miklu uppáhaldi hjá okkur, njótið.“ Dagný og Hjörtur á jólunum. MYND AÐSEND Spakmæli vikunnar Ekki tala um sjálfan þig – það verður gert um leið og þú ferð... – Wilson Mizner Feykir spyr... Gætir þú hugsað þér að flytja út á land? Spurt á Facebook UMSJÓN: klara@nyprent.is „Já, mig langar að flytja á Krókinn þegar ég verð 85 ára og láta Elínu systur hjúkra mér á elliheimilinu, á það inni.“ Hjörleifur Björnsson „Já ,ég elska kyrrðina úti á landi og hlakka til að flytja aftur heim í fjörðinn fagra með fjölskylduna mína.“ Steinunn Jónsdóttir „Nei, ég gæti ekki hugsað mér það eins og er að minnsta kosti.“ Ása María H. Guðmundsdóttir „Já, ég væri alveg til í að flytja út á land. Í dag eru ekki allir í fjölskyldunni til í það, en það breytist kannski einhvern tímann.“ Jón Heiðar Ingólfsson ( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is Dagný Huld Gunnarsdóttir | Sauðárkróki 07/2023 11 Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Þú eina hjartans yndið mitt. Með auð og visku snilli. Mér birtu færir brosið þitt. Sem brúnir vorsól gyllir. KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.