Þroskaþjálfinn - 18.05.2000, Síða 5
Afmælisblað Þroskaþjálfafélags íslands li
Skrif formanns
Sólveig Steinsson formaöur Proskaþjálfafélagsins
Þann 18 maí s.l. voru liðin 35 ár frá stofnun Félags gæslu-
systra sem er sá grunnur sem Þroskaþjálfafélag Islands
hvílir á. Lög um þroskaþjálfa voru sett á Alþingi 17. apríl
1978 og reglugerð nr. 215/1987 við þau lög, um störf,
starfsvettvang og starfshætti þroskaþjálfa. Tilgangur
reglugerðar var að skýra og skilgreina þroskaþjálfun og
störf þroskaþjálfa. I reglugerðinni segir svo í 3.4 gr. II kafla:
„Markmið þroskaþjálfunar er hœfing að samfélaginu þar
sem gengið skal út frá því að fatlaðir taki fullan þátt í
samfélaginu með hliðsjón af sérþörfum hvers og eins. Skalþað
gert í samvinnu við hinn fatlaða, foreldra ogforráðamenn og
aðrar fagstéttir". Gr. 3.6. „Þroskaþjálfar skidu í störfum
sínum leggja sérstaka áherslu á skyldur samfélagsins við hina
fótluðu og stuðla að því að samfélagið mœti þörfiim
þeirra“. Þessi markmið eru enn í fullu gildi því langt er í
land með að þjónusta við fatlað fólk sé með fullnægjandi
hætd.
Hugmyndafræði þroskaþjálfunar byggir m.a. á jafnrétti
í þeirri merkingu að fatlað fólk hafi jafnan rétt á við aðra
þjóðfélagsþegna til þátttöku í því samfélagi sem við búum,
að þörfum ólíkra einstaklinga sé mætt á þann hátt sem
þeim hentar og að þeim séu sköpuð skilyrði til að þroskast
og eflast.
Stofnanir á vegum ríkisins hafa verið aðal starfsvett-
vangur þroskaþjálfa til langs tíma en breyting er orðin þar
á. I samræmi við markmið reglugerðarinnar hefur stöðug
barátta fyrir bættum hag fatlaðs fólks í samfélag-
inu verið mikilvægur þáttur í starfi þroskaþjálfa. Þetta
hefur leitt til þess að þroskaþjálfar hafa óhikað farið út af
hefðbundnum starfsvettvangi sínum tilbúnir til að veita
þroskaþjálfun hvar sem hennar er þörf. I samræmi við þá
hugmyndafræði sem er ríkjandi í dag hefur m.a. sér-
deildum fyrir fötluð börn í leikskólum og grunnskólum
fækkað verulega og er það vel. Þörf fatlaðra barna fyrir
þroskaþjálfun er hinsvegar jafn mikil og áður og gæta
verður þess að réttur þeirra til viðeigandi þjálfunar verði
ekki af þeim tekinn. Mikilvægur þáttur í störfum
þroskaþjálfa er samvinna við aðra sérfræðinga og eru þeir
því vanir slíkri samvinnu. Það kemur sér vel þar sem þörfin
fyrir samvinnu hinna ýmsu faghópa og þverfagleg vinnu-
brögð hefur líklega sjaldan verið meiri en nú.
Send hafa verið út til umsagnar drög að frumvarpi nýrra
laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Tilgangurinn með
breytingum á lögum þessum er sá að skipa fötluðu fólki á
sama beldr og öðrum íbúum sveitarfélaga og gera þeim
kleift að sækja rétt sinn og fá þjónustu samkvæmt
almennum lögum en ekki sérlögum. Markmiðið hlýtur
einnig að vera bætt þjónusta. Sveitarfélög eru nú eitt af
öðru að taka yfir málefni fatlaðra og fjölgar stöðugt þeim
þroskaþjálfum sem starfa hjá þeim. Til þess að sveitarfélög
geti veitt íbúum, fötluðum sem ófötluðum fullnægjandi
þjónustu þurfa þau að hafa á að skipa starfsfólki sem hefur
þekkingu og færni til að mæta þörfum íbúanna. Þeim
aðilum sem hafa með höndum félagsþjónustu sveitarfélaga
gera sér æ betur grein fyrir þessu og hafa þau sveitarfélög
sem leggja metnað sinn í að veita fötluðu fólki góða
þjónustu séð sér hag í því og telja þörf á að ráða
þroskaþjálfa til starfa. Þar á bæ gera menn sér grein fyrir
því að þekking og færni þroskaþjálfa er mikilvægur þáttur
í því að móta stefnu og skipuleggja þjónustuna með þeirn
hætti að um samþættingu þjónustu fatlaðra og ófatlaðra
verði að ræða.
I breyttum lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga sem
samþykkt verða mun væntanlega verða kveðið á um þá
þjónustu sem sveitarfélögum verður skylt að veita. Fjár-
hagur sveitarfélaga er ærið misjafn og tryggja verður að
nægilegt fjármagn fáist til að mæta þjónustuþörf fatlaðra.
Umræður um forgangsröðun verkefna er og verður hluti
af þeim veruleika sem við búum við. Þroskaþjálfar eru
hvattir til að taka þátt í umræðum um þjónustu við fatlað
fólk, hver í sinni heimabyggð og hafa þannig áhrif á
skipulag og uppbyggingu þjónustunnar og tryggja að
raunverulegum þörfum sé mætt.
Mínar bestu afmæliskveðjur sendi ég öllum
þroskaþjálfum.
Sólveig Steinsson.
M
ÍSLENSK KW ERFÐACREIINING
5