Þroskaþjálfinn - 18.05.2000, Qupperneq 20
IZ
1« Afmælisblað Þroskaþjálfafélags Islands
I samantekt minni á samtölum við viðmælendur mína
kom í ljós að megin vandamálið virðist ekki lúta að
öldruðum þroskaheftum, það er að segja þeim sem hafa
náð 67 ára aldri, þeir heyra undir sömu lög og reglugerðir
og aðrir aldraðir. Vandinn snýr hinsvegar að yngri
einstaklingum með Down's heilkenni og Alzheimer
sjúkdóm, sem aldurs síns vegna eiga ekki greiðan aðgang
að öldrunar- og hjúkrunarstofnunum en talið er að
fimmtugur einstaklingur með Down's heilkenni sé á
svipuðu öldrunarstigi og heilbrigður einstaklingur á
áttræðisaldri.
Verið er að endurskoða vistunarmat aldraðra með tilliti
til einstaklinga á aldrinum 18-67 sem vegna hverskonar
fötlunar þurfa á sér búsetuúrræði að halda.
Þegar rætt er við fulltrúa opinberra stofnana um
öldrunarþjónustu almennt þá er iðulega vitnað í lög um
málefni aldraðra og „67 ára aldurinn". I lögum um málefni
aldraðra er þó 67 ára aldursviðmiðun hvergi tíunduð.
Hinsvegar er í 11. gr. tryggingarlaga tekið fram að allir hafi
sama rétt til þjónustu við 67 ára aldur.
Samkvæmt þessu þá ættu einstaklingar með Down's
heilkenni og Alzheimer sjúkdóminn, að geta fengið
viðeigandi þjónustu fyrir 67 ára aldursviðmið.
Á ári aldraðra 1999 var mikið rætt um skort á
hjúkrunarrými fyrir aldraða. Þótt undarlegt megi virðast,
voru aldraðir þroskaheftir ekki taldir með þegar úttekt á
þeirri þörf var gerð, samkvæmt upplýsingum frá Félags-
málaráðuneytinu. Því má ætla að sú yfirsjón geti valdið
einhverri skekkju við gerð fjárhagsáætlana viðkomandi
sveitafélaga. Það hefur tiltölulega lítið reynt á málefni
þroskaheftra aldraðra, því skammt er síðan þeir urðu sýni-
legir í þjóðfélaginu. Þroskahömlun eldist ekki af fólki.
Þroskaheftir verða gamlir, þeir þurfa á samfélagslegri
þjónustu að halda frá vöggu til grafar.
Verið er að sinna mörgum verkefnum í þágu aldraðra
og er það af hinu góða. Samt virðist sem að þeir sem starfa
í viðkomandi málafloldci hafi ekki alltaf þekkingu af
starfssviði hvers annars. Þessi vanþekking getur skapað
óþarfa ágreining. Einnig myndi það létta á þjónustuþegum
ef opinberir aðilar störfuðu saman þannig að hægt væri að
nálgast nauðsynlegar upplýsingar á einum stað.
Viöauki
Eftir að ritgerðin var skrifuð var lögum um málefni
aldraðra breytt á eftirfarandi hátt og segir þar meðal
annars:
2. gr. I lögum þessum er merking eftirfarandi hugtaka
sem hér segir:
Aldraður: sá sem náð hefur 67 ára aldri.
(Lög um málefni aldraðra 1999 nr. 125 31. desember.)
Með ofangreindri lagasetningu geta nú opinberir aðilar
synjað þroskaheftum, sem eldti hafa náð 67 ára aldri, um
öldrunarþjónustu.
VÖLUSTEINN
Faxafen 14 » 108 Reykjavík ■ Sími 588-9505
OSTA OG
SMJÖRSALAN SE
BÚNAÐARBANKINN
- Traustur banki
Garðatorgi 5 • 210 Garðabær
y LANDSBRÉF HF.
tH. - h, //,
20