Velferð - jún. 2022, Blaðsíða 6
6
„Þetta er nokkurn veginn í takt við það sem
við höfum verið að gera hérna á Íslandi.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi umræða
kemur upp og það hefur verið að skýrast á
undanförnum árum að aspirín er ekki jafn
hættulítið og ávinningurinn kannski ekki jafn
mikill og talið var.“
Þetta segir Davíð O. Arnar, yfirlæknir
hjartalækninga á Landspítalanum, um nýjar
ráðleggingar bandarískrar sérfræðinganefnd
ar um fyrirbyggjandi læknisfræði (USPSTF).
Samkvæmt þeim er einstaklingum 60 ára
og eldri ráðlagt frá því að taka aspirín, eða
magnýl, til að fyrirbyggja hjartasjúkdóma og
heilablóðfall og einstaklingum á aldrinum 40
til 59 ára ráðlagt að gera það aðeins í sam
ráði við lækni og að því gefnu að þeir séu í
verulega aukinni áhættu.
Ástæða breyttra ráðlegginga er sú áhætta
sem nú er vitað að fylgir notkun magnýl, það
er auknar líkur á blæðingum, sérstaklega í
meltingarveginum. Nefndin segir daglega
notkun aspirín vissulega geta haft fyrirbyggj
andi áhrif hjá sumum hvað varðar hjartaáföll
og heilablóðfall en hún geti einnig haft skað
vænleg áhrif, það er að segja leitt til innvortis
blæðinga.
Því sé mikilvægt að þeir sem séu á aldrin
um 40 til 59 ára og eigi sér ekki sögu um
hjartasjúkdóma, ræði við lækninn sinn um
það hvort notkun aspirín sé viðeigandi en
einstaklingar 60 ára og eldri ættu ekki að
taka aspirín að staðaldri til að fyrirbyggja
sjúkdóma, þar sem líkurnar á blæðingu aukist
með aldrinum.
Mikilvægt að vega og meta ávinning og áhættu
„Við erum í raun að nota magnýl í tvenns konar tilgangi; annars
vegar í annars stigs forvörnum gegn kransæðasjúkdóm, þar
sem við erum með einstaklinga sem hafa verið greindir með
kransæðasjúkdóm eða hafa fengið kransæðastíflu, og hins
vegar sem fyrsta stigs forvörn hjá þeim sem eru með áhættu
þætti hjarta og æðasjúkdóma en hafa ekki enn greinst með
sjúkdóm,“ segir Davíð.
Umræddir áhættuþættir eru til dæmis háþrýstingur, blóð
fituröskun, sykursýki, hár líkamsþyngdarstuðull, reykingar og
ættarsaga.
„Magnýl er ennþá notað hjá einstaklingum með staðfestan
kransæðasjúkdóm, óháð aldri. Það er ótvírætt að gagnast undir
slíkum kringumstæðum,“ segir Davíð O. Arnar.
Magnýl eða aspirín,
já eða nei?
Um breyttar áherslur
gegn hjartasjúkdómum.