Vinnuveitandinn - 23.07.1939, Blaðsíða 6
4
VINNUVEITANDINN
1. árg., nr. 1
Einsog skjal þetta ber með sjer var
það gefið út í tveimur samhljóða
frumritum. Tók sveinaf jelagið við
öði'u, en hver múrarameistari fjekk
hitt með áritaðri kvittun formanns
sveinafjelagsins (Guðjóns Benedikts-
sonar) fyrir móttc-ku samritsins.
Töldu múrarameistarar að þannig
væri kominn á samningur milli þeirra,
hvers um sig, og sveinafjelagsins,
þar sem sveinafjelagið skuldbindi
meðlimi sína til þess að vinna hjá
múrarameisturunum með þeim skil-
yrðum, sem tiltekin eru í skuldhind-
ingarskjalinu.
Hófst nú vinna aftur við múrara-
störfin sama dag. En síðari hluta dags-
ins kom það fyrir, að tveir múrara-
meistarar hjeldu áfram að vinna
sjálfir með sveinunum við hús, sem
þeir hafa í smíðum, einsog þeir höfðu
áður gjört. Kom þá formaður sveina-
fjelagsins á vinnustaði þessa og bann-
aði sveinunum að vinna með meistur-
unum. Lögðu sveinarnir þá niður
vinnu samkvæmt fyrirskipun for-
manns síns. Meistararnir töldu þetta
brot á samningi þeim, sem nú var
kcminn á við sveinaf jelagið samkvæmt
því, er að ofan segir. Meistararnir
sneru sjer þá til sáttasemjara ríkisins
og báðu hann að reyna sættir í mál-
inu. Hjelt hann sáttafund með aðilj-
um 20. þ. m., en sú sáttatilraun varð
árangurslaus. Hefir síðan ávallt farið
svo, er meistararnir hafa farið að
vinna, að sveinarnir hafa lagt niður
vinnu, en tekið hana upp aftur þegar
meistararnir hafa hætt að vinna.
Munu meistararnir halda fund um
málið einhvern næstu daga til þess að
taka ákvarðanir um hvað gjöra skuli
útaf þessu máli.
í samningaumleitunum, sem farið
hafa fram milli meistarafjelagsins og
sveinafjelagsins áður en samningur
þeirra rann út, hafa sveinarnir gjört
mjög víðtækar kröfur, m. a. um það
að meistararnir vinni ekkert að iðn-
inni, að sveinarnir megi velja um
tímakaup eða ákvæðisvinnu, að meist-
ararnir greiði 1% af vinnulaunum til
skrifstofuhalds sveinafjelagsins o. s.
frv., en hvorki þessar kröfur þeirra
nje aðrar, sem ágreiningur var um
milli aðilja, voru teknar upp í áður-
greinda auglýsingu frá sveinafjelag-
inu, nje heldur hinn nýja samning.
Fjell sveinafjelagið þannig frá öllum
öðrum kröfum, en teknar voru upp .í
auglýsinguna og nýja samninginn, sem
samkvæmt 6. gr. laga nr. 80, 11. júní
1938, um stjettarfjelög og vinnudeilur,
gildir í minnst eitt ár.
16. gr. laga
Vinnuveitendafjelags íslands.
Fremst í blaðinu er áskorun til fje-
lagsmanna um það að muna eftir —
og fara eftir 16. gr. fjelagslaganna.
Þessi grein laganna er mjög þýð-
ingarmikil fyrir velfarnað fjelagsins.
Er því fastlega skorað á alla fjelags-
menn að festa sjer vel í huga innihald
þessarar lagagreinar.
Greinin er svohljóðandi:
16. gr.
A.
Það er m. a. skylda hvers fjelaga í
Vinnuveitendafjelaginu að styðja að
því, svo sem geta hvers fjelagsmanns
leyfir, að starfsemi fjelagsins á hverju
sviði sem er, nái sem best tilgangi sín-
um og framkvæmdir þess beri sem best-
an árangur, að efla samheldni innan
fjelagsins, og að taka að öðru jöfnu
fjelaga Vinnuveitendafjelags íslands
fram yfir aðra menn í hverskonar við-
skiptum, við framkvæmd verks og við
kaup og' sölu allskonar varnings.
Af þessu leiðir meðal annars:
1. Að fjelagsmönnum ber að styðja
hver annan með því að kaupa öðr-
um fremur af þeim, sem í fjelaginu
eru, og eigi aðeins þar, sem um er
að ræða vörukaup vegna iðnaðar
eða verslunar, heldur og í daglegum
innkaupum á venjulegum nauð-
synjavörum, svo sem fötum, skó-
fatnaði, húsgögnum og öðrum inn-
anstokksmunum, matvælum, munað-
arvörum, o. s. frv.
2. Að fjelagsmönnum ber að forðast
að taka samkeppnistilboðum frá
utanfjelagsmönnum, nema sjerstök
aðstaða í viðskiptum, sjerstakleg
gerð eða smíði þess, sem um er að
ræða, afhendingartimi eða því um
líkt gjöri það nauðsynlegt eða eðli-
legt að taka tilboðum frá mönnum
utan fjelagsins.
3. Að mönnum annars, þegar sams-
konar tilboð berast bæði frá fje-
lagsmönnum og öðrum, ber að taka
tilboðum frá f jelagsmönnum, og
þegar svo stendur á að fjelagsmenn
hafa tekið að sjer framkvæmdir,
þar sem bæði er um að ræða verk,
sem þarf að fela öðrum eða vöru-
kaup frá öðrum, þá sjeu fjelags-
menn látnir njóta slíkra viðskifta
frekar en utanf jelagsmenn, en forð-
ast sje að kaupa verk af verksöl-
um utan fjelagsins.
4. Að fjelagsmönnum ber, þegar
vinnustöðvun verður, að fara ná-
kvæmlega eptir fyrirmælum 22. og
23. gr. þessara laga.
5. Að á öll tilboð og samninga, sem
fjelagsmaður gjörir, ber honum að
rita eða stimpla og undirskrifa
sjerstaklega svohljóðandi fyrirvara:
„Jeg áskil mjer að fullnægja skyld-
um mínum sem fjelagi í Vinnuveit-
endafjelagi íslands viðvíkjandi verk-
sviptingum, verkföllum og félags-
skyldum samkvæmt lögum og ákvörð-
unum tjeðs fjelags og deilda þess, sem
hjer geta komið til greina“.
Fjelagið lætur alla fjelagsmenn fá
slíkan stimpil ókeypis.
Kærur yfir því, að fjelagar hafi
gerst ^ekir um brot á reglum þeim,.
sem skráðar eru í þessari grein skal
senda framkvæmdastjóra fjelagsins,
sem leggur kæruna fyrir framkvæmda-
nefndina. En takist henni ekki að
binda viðunandi enda á, málið, má
leggja það fyrir fjelagsstjórnina tiL
ákvörðunar á þann hátt sem hún tel-
ur rjett.
B.
Nú fer starfsmaður frá fjelags-
manni og hefir eigi unnið fyrir fyrir-
fram greiddu kaupi eða á annan hátt
gert sig sekan í óreiðu eða öðrum
brotum gegn fjelagsmanni og skal
hann þá, ef hann er beinn meðlimur
fjelagsins, tilkynna þetta fram-
kvæmdastjóra, en annars deildarfor-
manni, og láta getið nafns og heimilis
starfsmannsins, svo og upphæðar þeirr-
ar, sem ræðir um í þessu sambandi.
Framkvæmdastjóri eða deildarformað-
ur tilkynna þetta síðan öðrum fje-
lagsmönnum eptir því, sem þeir telja.
tilefni til og má þá enginn fjelags-
maður, sem slíka tilkynningu fær, taka
starfsmanninn í þjónustu sína, nema.
hann fyrst bæti fyrir sig gagnvart
fyrgreindum vinnuveitenda, enda sje-
það tilkynnt á tilsvarandi hátt. Fyrst
þar á eptir má taka starfsmanninn f.
þjónustu fjeiagsmanns.
Aths.
Fjelagsmenn eru beðnir að vitja hjá
framkvæmdastjóra fjelagsins stimpils.
þess, sem ræðir um í greininni.
Samband hinna norrænu
vinnuveitendafj elaga
heldur fund í Stokkhólmi dagana
29,—31. n. m.
Fundinn sækja af hendi fjelags vors,
formaður fjelagáins Kjartan Thors,.
konsúll, og Hallgrímur Benediktsson,.
stórkaupmaður.
Ábm.: Framkv.stjóri fjelagsins
Eggert Claessen hrm.
ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA H.F.